Austri


Austri - 13.02.1997, Blaðsíða 3

Austri - 13.02.1997, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 13. febrúar 1997. AUSTRI 3 Pólóbolir frá kr. 1. 180,- Baðhandklæði kr. 680,- Köflóttar vinnuskyrtur Einlit flísefni l<r* 7"’ í mörgum litum Nú er rétti tím- inn til að prjóna. Verslið þar sem úrvalið er ALLT í EINNI FERÐ Lopi og garn í fallegum litum! EGILSSTOÐUM Opið: Mónud. - fimmtud. kl. 9-18, föstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14 Steinsteypusögun - kjamaborun - múrb Ein sú fullkomnasta steinsteypusög á landinu! ^ ^ Sagar alit að 45cm þykka veggi! , . T Fjarstýrð! Sagar 100% beina skurði! Ofnasmiðja Björns Oddssonar Sími: 471-1665, 852-1916 Hraðvirkari og ódýrari kostur Arnað Gasprað upp í gjóluna 2 UTSALA Á FATNAÐI í FULLUM GANGI ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR OG 1 o% AUKAAFSLÁTTUR ÞESSA VIKU heilla Þann 10. febrúar síðastliðinn varð Sigríður M. Kjerúlf 80 ára. Sigríður er dóttir hjónanna Meth- úsalems J. Kjerúlf, bónda á Hrafn- kelsstöðum og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Árið 1940 giftist hún Einari Péturssyni frá Ormsstöðum í Skógum. Þau hefja búskap á Arn- hólsstöðum í Skriðdal árið 1942 og búa þar í 30 ár, eða þar til þau flytja í hús sitt að Bjarkarhlíð 2 á Egils- stöðum. Þar búa þau fram til ársins 1989, er þau flytja í eigin íbúð að Miðvangi 22. Sigríður og Einar eignuðust 5 böm og komust fjögur til fullorðins- ára. Þau eru:Guðrún húsfreyja í Snjóholti, Ingibjörg, búsett á Sauð- árkróki, Örn Sigurður, tölvufræð- ingur í Reykjavík og Erla Sólveig, leikskólastjóri í Reykjavík. Eiga Sigríður og Einar 16 barnaböm og fjögur barnabarnabörn. Sigríður missti heilsuna fyrir nokkxum ámm og hefur um árabil dvalið á Sjúkra- húsinu á Egilsstöðum og eru þau hjón þar nú bæði. Vill Einar nota tækifærið og þakka starfsfólki Sjúkrahússins einstaka hlýju og um- hyggju í garð Sigríðar á liðnum ámm. Sigríður Kjerúlf 80 ára. Afmæliskveðja frá bömum henn- ar og fjölskyldum þeirra: Árnaðaróskir við sendum þér hér á áttrœðisafmœli þínu. Blómin þau tala og hvísla að þér þakklœti, ástúð og hlýju. Megi svo framtíðin falleg og fín faðma þig, móðir vor kœra. Með gleði í hjarta við hugsum til þín, um allt, hvað þú lést okkur lœra. Margs er að minnast á œjinnar braut þú upplifðir tímanna tvenna. Með orfi og hrífu var heyjað í laut, nú rœður hér hraði og spenna. Sólveig Einarsdóttir. anna eftirspum. Hefð er komin á samstarf milli Brauðgerðarinnar og nemenda í 10. bekk Egilsstaðaskóla á bolludaginn Samstarfið felst í því að krakkarnir fara nokkrum dögum áður í fyrir- tæki og taka niður pantanir. Á bollu- dag sjá þau síðan um að dreifa pönt- ununum um bæinn. Nýtur þessi þjónusta mikilla vinsælda og keyrðu nemendur út, með aðstoð nokkurra foreldra, töluvert á annað þúsund bollum. Renna tekjurnar af þessari sölu í ferðasjóð nemenda. En bolluátið er ekki bara tengt bolludeginum. Margir taka forskot á sæluna og baka bollur á sunnudeg- Flutningabíll á hliðina Flutningabíll frá Landflutningum, á vegum Flutningamiðstöðvar Aust- urlands, fór út af veginum skammt frá Vík í Mýrdal. Bíllinn fór á hliðina, en ökumaður, farmur og bíll sluppu þokkalega. Farmurinn var aðallega frystivara og skemmdist hann ekki. Talsvert hefur verið um að flutningabílar á leið milli Reykjavíkur og Austfjarða hafi farið út af, sérstaklega á Suðurfjörðunum, en þar er um- ferðin mest. Tala menn um að vegimir séu ekki burðugri en svo að þegar komi hálka þá sé mikil hætta á að bílamir líði út af. Oft er vindi um að kenna, enda hefur oft komið fyrir að bílarnir fjúki út af, og var það raunin í óhappinu við Vík. Nemendur Menntaskólans á Eg- ilsstöðum em trúir gömlum hefðum og taka þátt í bolluáti með viðeig- andi tilþrifum. Á þessu stærsta heimili í Egilsstaðabæ vom bakaðar 770 bollur í tilefni bolludags og voru þær settar saman með 20 lítr- um af rjóma. Meirihluti þessa góð- gætis hvarf ofan í nemendur strax á bolludaginn, en afgangurinn var borðaður á sprengidag. En nemendur í ME vom ekki þeir einu sem sýndu tilþrif við bolluát. Starfsmenn Brauðgerðar KHB áttu annasama daga og nætur. Bollusala varð töluvert meiri en í fyrra og varð að kalla bakara út aftur til að inum sem er orðinn eins konar hitaeiningum geta svo huggað sig bolludagur fjölskyldunnar. Þeir fjöl- við að framundan er langafasta. mörgu sem seint og snemma pæla í Þá er söngleikurinn um Kátu ekkjuna kominn á fjalimar í höfuðstaðnum. Af því tilefni kemur upp í hugann minning um morgunþátt í ríkisútvarpinu fyrir nokkrum vikum. I þátt þennan var dreginn einn af meistarasöngvumm þjóðarinnar og hann yfirheyrður um tilvonandi sviðsetningu þessa söngleiks. Hafði hann þar meðal annars þau tíðindi fram að færa að kominn væri tími á ekkju þessa. Mun hann hafa átt við að kominn væri tími til að menn fengju að sjá þennan söngleik, með því allmörg ár eru liðin síðan hann var seinast færður upp á fjalir hér á landi. Gömlum sveitamanni þótti þetta á hinn bóginn heldur vafasamt orðalag um þessa ágætu ekkju. Hingað til hefur orðalagið „að koma tíma á“ eingöngu verið notað um Sigurður Óskar þann verknað að stilla svo til að kýr fái kálf Pálsson á réttum eða hentugum tíma og tími var kominn á kú þegar boli hafði lokið sinni athöfn þar að lútandi með fullum árangri. Mikilvirkir fjölmiðlar stuðla vissu- lega að örari málþróun en áður var og ekkert við því að segja, sé staðið eftir atvikum snyrtilega að verki. Á ekkjuna kemur ugglaust tíma óperufólkið á réttum tíma ef vökult það er, með aðgát fer og allir sig leggja í líma í íþróttafréttum var þess getið ekki alls fyrir löngu að tiltekin knattspyrnuhetja hefði mundað fót að knettinum uppi við markið. Því miður fór þessi merki vallarviðburður framhjá sjónvarpsmönnum. Að minnsta kosti höfum við ekki fengið að sjá það á skjánum er þessi frækni íþróttamaður geystist um völlinn með fótinn í höndunum til þess að berja með honum knöttinn. Er mundaði fót sinn við markið marksœkna hetjan sparkið hitti mjög vel í mark því að meistaraspark átti mundaður fótur á markið I viðtalsþætti í ríkisútvarpinu hér á dög- unum greindi virðuleg Reykjavíkurjómfrú, vel við aldur og sæmilega flámælt að auki, svo frá að hún hefði fengið að pipra í friði á sínum tíma og var harla ánægð með sitt hlutskipti í lífinu, að því er best varð greint. Ég fékk að piepra í frieðie ogfékk af því ró í gieðie því að karlmannsleysieð er langbesta leysieð og gefur þá sönnu glieðie. Frásöguþáttur, eða tilvitnun í hann, kom í útvarp- inu á dögunum. Þar greindi frá konu er á tilteknum stað og tíma hefði kvænst eiginmanni sínum. Hún Signý á Syðri-Bakka urn sumarmál eignaðist krakka með einum af sonum Asmundar skakka. Á krossmessu kvæntist hún honum. Hefur einhver haldið því fram að málþróun sé ekki í fullum gangi hjá útvarpinu okkar? Bolla, Bolla

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.