Austri


Austri - 13.02.1997, Síða 6

Austri - 13.02.1997, Síða 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, 13. febrúar 1997. Spurning vikunnar Spurt í matsal ME Hvað ertu búin(n) að borða margar bollur? A að borða fleiri? Helga Svanlaug Huldudóttir. Eina. Þær verða ekki fleiri, mér finnst þær ekki góðar. Brynjar Skúlason. Fjórar, jú, þær verða örugglega fleiri. Logi Helguson. Þetta er sú fimmta. Það má gjaman koma fram að bollumar hér í skól- anum eru alveg óskaplega góðar, miklu betri en þessar sem fást í bak- aríinu. Eysteinn Bragason. Fjórar, vonandi verða þær fleiri. Hanna Dóra Másdóttir. Eg er búin að borða þrjár. Ætli ég láti það ekki nægja. Tinna Brynjólfsdóttir. Eg var að borða eina núna. Eg hef ekkert ákveðið um framhaldið. t Gróa Kristrún Jónsdóttir Geitdal Gróa var fædd í Litla-Sandfelli 31.8. 1905. Hún lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 24. 1. 1997. Foreldrar hennar vom hjónin Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 9. 4. 1872, d. 30. 6. 1962 og Jón Runólfsson, f. 22. 1. 1864, d. 24. 9. 1924. Elst bama þeirra var Björg sem lést ung. Hin vom: Björg, f. 2. 7. 1896, d. 12. 1. 1994. Hennar maður var Einar Markússon, f. 9. 5. 1896, d. 22. 3. 1982. Björg átti tvö stjúpböm. Runólfur, f. 4. 11. 1902, d. 1.2. 1992. Hann var kvæntur Vilborgu Jóns- dóttur, f. 1.4. 1906, d. 5. 2. 1990. Þau eignuðust 9 böm. Fóstursystir þeirra er María Jensen f. 1.4. 1922. Hennar maður var Steingrímur Vigfússon, f. 12. 8. 1918, d. 25.1. 1975. Þau eignuðust eina dóttur. Árið 1939 giftist Gróa Snæbimi Jónssyni frá Vaði, f. 16. 9. 1902, d. 13. 5. 1972. Synir þeirra em: Jón Sigurður, f. 6. 10. 1939, hans kona var Sigríður Laufey Einarsdóttir, f. 26. 4. 1942. Þau slitu samvistir. Þeirra böm em: Laufey Sigríður, f. 9. 4. 1961, hennar maður er Pétur Hans Pétursson, f. 16. 1. 1960 og eiga þau tvíburana Snæfríði og Brynjar, f. 18. 9. 1992, Snæbjöm Rúnar f. 19.1. 1965, trúlofaður Stefaníu Pálsdóttur og Einar Öm, f. 18. 11. 1966, kvæntur Halldóm Ósk Sveinsdóttur, f. 21. 10. 1965. Böm þeirra: Sveinn Pálmar, f. 21. 7. 1986, Jón Kristinn, f. 28. 8. 1992 og Margrét Ósk, f. 21. 10. 1996. Bjarni, f. 4. 2. 1941. Sambýliskona hans er Sigríður Matthíasdóttir, f. 22.3 1942. Einar Amþór, f. 31. 3. 1942. Útför Gróu var gerð frá Þingmúlakirkju í Skriðdal 1. febrúar sl. Þann 13. maí 1972 dró ský fyrir sólu þegar Snæbjörn varð bráð- kvaddur. Eftir fráfall hans bjuggu synir þeirra, þeir Bjarni og Einar, áfram með móður sinni. Á yngri árum dvaldi Gróa um tíma á Akureyri og einnig í Reykja- vík, var þar í vist eins og kallað var. Það var af sumum talið jafnast á við góðan skóla. Hún lærði snemma fatasaum og marga fallega flíkina saumaði hún á mig og systkini mín þegar við vomm böm. Allt sem hún lagði hönd að var einstaklega fallegt og vel unnið. Gróa var okkur systkinunum alla tíð góð frænka. Atvikin höguðu því þó svo að hún tók sérstöku ástfóstri við Kjartan bróður minn sem lítið bam. Við söknuðum hennar öll þeg- ar hún fór af heimilinu, en hann ef- laust mest. Hann fór því að heim- sækja Gróu, fyrst nokkra daga í senn, en brátt lengdust þessar heim- sóknir og svo fór að hann átti sitt aðalheimili í Geitdal. Þau Kjartan og Gróa urðu svo nágrannar, þegar hann varð bóndi á Þorvaldsstöðum. Var alla tíð mikill samgangur á milli bæjanna og naut Gróa góðvildar og hjálpsemi þeirra Boggu, Kjartans og bama þeirra, ekki síst eftir að heilsa hennar fór að bila. Hún dvaldi síðustu árin á öldmn- ardeild Sjúkrahússins á Egilsstöðum og fram á síðasta dag hélt hún sínu góða minni, fullri heyrn og sæmi- legri sjón. Ég kveð kæra frænku með orðum Steins Steinars: Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku í þagnar brag. Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku einn horfinn dag. Ingibjörg Runólfsdóttir Fagna þú, sál mín. Allt er eitt íDrottni, eilíft og fagurt, - dauðinn sœtur blundur. Þótt jarðnesk dýrð og vegsemd visni’ og þrotni, veit ég, að geymast handar stœrri undur, þótt stórtré vor í byljum jarðar brotni, bíður vor allra’ um síðir Edenslundur. Fagna þú, sál mín. Lít þú víðlend veldi vona og drauma’ er þrýtur rökkurstíginn. Sjá hina helgu glóð af arineldi eilífa kœrleikans á bak við skýin. Fagna þú, sál mín, dauðans kyrra kveldi, kemur upp fegri sól, er þessi’ er hnigin. Gróa frænka er horfin á braut. Hún lagði í sína hinstu ferð 24. jan- úar sl. Hún var fædd í Litla-Sand- felli í Skriðdal og ólst þar upp ásamt eldri systkinum sínum, þeim Björgu og Runólfi. Foreldrar þeirra, þau Jón og Kristbjörg, tóku í fóstur Mar- íu Jensen, sem nú býr í Reykjavík. Þegar Gróa var innan við tvítugt, lést faðir hennar, en móðir hennar hélt áfram búskap, með hjálp bama sinna fyrst í stað. En skömmu seinna tók Runólfur við búinu, ásamt Vilborgu konu sinni. Gróa og María áttu þó heimili sitt áfram í Litla-Sandfelli, þar til þær stofnuðu sín eigin. Þegar ég hugsa til föðursystur minnar, er margs að minnast. Hún tengist svo mjög mínum fyrstu bemskuminningum. Hún var hluti af stórfjölskyldunni, sem saman- stóð af foreldrum mínum og sjö systkinum, ömmu Kristbjörgu, Gróu frænku og Maríu. Á heimilinu voru líka vinnumenn sem oft dvöldu árum saman. Á vetrum bættist svo farskólinn við, en þá komu böm af nágrannabæjum ásamt kennara og dvöldu þá jafnan þrjár vikur í senn á heimilum skólaskyldra barna. Ekki minnist ég þess að nokkur kvartaði um þrengsli, þótt stundum væri um og yfir tuttugu manns á heimilinu. Ég minnist miklu fremur glaðværðarinnar sem fylgdi öllu þessu fólki, bæði í leik og starfi. Farið var í leiki, bæði úti og inni, spilað á spil, farið á hestbak og fleira gert til gamans. Gróa frænka átti orgel og hafði lært að leika á það, eins og Björg systir hennar og oft var því gripið í orgelið, spilað og sungið. Gróa var seinna organisti í Þingmúlakirkju um árabil. Svo var það að móðurbróðir minn, hann Snæbjöm á Vaði, fór að venja komur sínar í Litla-Sandfell J.J. Smári og ég minnist þess að meira að segja við bömin fundum að eitthvað lá í loftinu. Úr þessum heimsókn- um varð trúlofun og síðar hjóna- band þeirra Gróu og Snæbjörns. Þau giftu sig 1939. Eftir brúðkaupið fluttu þau að Vallanesi, þar sem þau bjuggu í tvö ár. Þar fæddust synimir Jón og Bjarni. Árið 1941 keyptu þau Geitdal, sem er innsti bær í Norðurdal í Skriðdalshreppi. Fljót- lega hófust þau handa við að stækka túnið og byggja útihús. I Geitdal fæddist þeim þriðji sonurinn, Einar Arnþór. Árið 1952 féll snjóflóð á íbúðar- húsið í Geitdal og stórskemmdi það. Lán var í óláni að þetta gerðist að degi til og heimilisfólkið allt á fót- um. Vesturstafninn féll inn og efri hæðin, þar sem svefnherbergin voru, fylltist snjó og krapa, einnig flæddi eitthvað á neðri hæð. Þá sannaðist, sem endranær, að gott er að eiga góða að, því að sveitungar þeirra og vinir flykktust að, þeim til hjálpar. Húsið var hreinsað og fært í lag á ótrúlega stuttum tíma. Um vorið var svo hafist handa við bygg- ingu nýs íbúðarhúss á öðrum stað og var flutt í það árið 1953. Framan af búskap þeirra Gróu og Snæbjöms munu þau aðallega hafa stundað fjárbúskap, enda Geitdalur landmikil og góð fjárjörð. Seinna, þegar samgöngur breyttust til hins betra og mjólkurbú var risið á Egils- stöðum, ráku þau einnig kúabú. Öll ræktunarstörf voru þeim hjónum hugleikin. Gróa var mikil blóma- kona og eins var trjárækt þeirra áhugamál. Þau stunduðu líka kom- rækt árum saman með sæmilegum árangri. Þau Gróa og Snæbjöm vom höfð- ingjar heim að sækja og var alla tíð gestkvæmt hjá þeim þótt þau byggju ekki í alfaraleið. KÖRFUBOLTI 1. DEILD: '!' '!' Síðustu leikir Hattar Um liðna helgi gerðu Hattarmenn dágóða ferð á suðvesturhomið. Þeir byrjuðu í Þorlákshöfn þar sem Þórsarar tóku á móti þeim. Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti og höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. Bæði liðin léku maður-á-mann-vöm, sem reyndist nokkuð götótt, sem sést best á að staðan í hálfleik var 51:44.1 seinni hálfleik skipti Jón yfir í svæðis- vöm sem Þórsumm gekk illa að eiga við. Hattarmenn komust yfir um miðjan hálfleikinn og gáfu þá forystu ekki eftir það sem eftir lifði leiks. Skoruðu Þórsarar aðeins 29 stig í hálfleiknum móti 42 stigum Hattar þannig að lokatölumar urðu 86:80 fyrir Hött. Hattarliðið var mjög jafnt og skoraði Shahid „aðeins" 22 stig, enda í mjög strangri gæslu. Aðrir leikmenn héldu uppi merki hans og skoraði Viggó 17 stig, Hannibal, Héðinn og Unnar 14 hver, Guðjón 3 og Birkir 2. Á sunnudaginn mætti Höttur síðan Leikni í Breiðholtinu. Eins og stund- um áður byrjuðu andstæðingar Hattara betur og höfðu Leiknismenn for- ystuna allan fyrri hálfleikinn. í seinni hálfleik jafhaðist leikurinn og skipt- ust liðin á að hafa forystu allan hálfleikinn, en Leiknismenn höfðu sigur á lokasprettinum, 79:75, f leik sem gat farið á hvom veginn sem var. Leik- urinn daginn áður sat nokkuð í Hattarmönnum og skipti það e.t.v. sköpum. Shahid skoraði 31 stig og var stigahæstur að vanda. Viggó setti per- sónulegt met og gerði 24 stig og átti afbragðsleik í sókn og vöm. Hannibal gerði 10 stig, Unnar 7, Héðinn 2 og Birkir 1 stig. Staðan í 1. deild Höttur er nú í fimmta sæti í deildinni með jafnmörg stig og Selfoss, sem situr í því sjötta með verra stigahlutfall og tap gegn Hetti í fyrri umferð. Stjaman er í fjórða sæti, hefur fengið tveimur stigum meira og leikið ein- um leik færra. Fjögur efstu liðin komast í úrslitakeppni um sæti í úrvals- deildinni. Annars er staðan nú þessi skv. textavarpinu: Hinn bandaríski leikmaður Hattar er enn stigahæsti leik- maður deildarinnar og hefur skorað 35,3 stig að meðaltali í leik eða 494 stig alls. Höttur - Selfoss um helgina: Eins og sést á stöðunni í deild- inni, sem birt er hér, er þetta mjög mikilvægur leikur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Liðin eru með jafnmörg stig og mega ekki við að tapa stigum í baráttunni um fjórða sætið. Höttur vann með einu stigi í fyrri leiknum, en í fyrra var Selfoss eina liðið sem vann Hött eftir áramót, þannig að segja má að Selfyssingar hafi hefðina með sér. Hattarliðið er hins vegar í góðri stig 22 22 20 18 16 16 14 6 2 2 uppsveiflu þessa dagana og leggur sig örugglega allt fram um að nálg- ast fjórða sætið að nýju. Hattarmenn ætla að bjóða öllum grunnskólanemendum á leikinn án endurgjalds og vafalaust hvetja þeir Hattarliðið dyggilega. Allir aðrir sem þetta lesa eru einnig hvattir til að taka frá einn og hálfan tíma eftir hádegi á laugardaginn og koma á leikinn og má lofa þeim ágætri skemmtun. O.M. sæti lið leikir sigrar töp 1 Snæfell 14 11 3 2 Valur 14 11 3 3 Leiknir 13 10 3 4 Stjaman 13 9 4 5 Höttur 14 8 6 6 Selfoss 14 8 6 7 Þór 14 7 7 8 Stafholt 15 3 12 9 Reynir 13 1 12 10 fs 14 1 13

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.