Tilvera - 15.10.1990, Page 1
KVENNA ATHVARF
91-21205
FRÉTTABRÉF - samtaka um kvennaathvarf
——S—I—
Október 1990, 3. tölubl. 1. árgangur.
ERLENDAR KONUR í KVENNAATHVARFINU
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur það aukist að erlendar konur leiti til
Kvennaathvarfsins, eða að leitað sé þangað vegna þeirra. Auðvitað göngum við út frá því að
lang fiest hjónabönd íslendinga og útlendinga séu vel heppnuð hjónabönd, byggð á gagnkvæmri
virðingu. En reynsla okkar í Kvennaathvarfinu hefur vakið athygli okkar á því, að þegar
misbrestur verður á getur staða erlendra kvenna orðið mjög slæm.
í alvarlegustu tilfellunum hafa konurnar verið algerlega háðar eiginmönnum sínum og
varla farið út úr húsi án þeirra. Þær hafa ekkert vald á íslensku, vita ekkert um réttindi sín og
skyldur, hafa lítil sem engin samskipti við aðra en mann sinn og hafa þurft að þola svelti og
algera niðurlægingu.
Ástæða þess að við ákváðum að vekja sérstaka athygli á stöðu þessara kvenna er ífyrsta
lagi sú, að við töldum það skyldu okkar að upplýsa almenning um reynslu okkar og í öðru lagi
vildum við kalla opinbera aðila til ábyrgðar. Okkur er það Ijóst að illa er staðið að móttöku
þessara nýju íbúa af hálfu yfirvalda. Okkur finnst að allir útlendingar sem setjast hér að eigi
að fá greinagóðarupplýsingarumréttindisínogskyldurámálisemþeirskilja. Aðþeimverði
gert skylt að sækja námskeið í íslensku og íslenskum málefnum á vegum yfirvalda og að þeir
eigi aðgang að sérstakri stofnun aða aðila sem getur veitt þeim hagnýtar upplýsingar og
aðstoð á meðan þeir eru að að aðlagast hinum nýju heimkynnum sínum.
í\[anna Christiansen.
ÚR KVENNAATHVARFINU
Fyrstu 9 mánuði ársins hafa 139 konur verið skráðar til dvalar í Kvennaathvarfinu. Það
hefur vakið athygli okkar að í þessum hópi er lang mest um konursem eru að leita til athvarfsins
í fyrsta skipti.
Símtöl á þessu sama tímabili eru 1302. Mest er um svokölluð stuðningsviðtöð, þar sem
þolandi ofbeldis eða aðstandandi hans er að leita sér stuðnings. Einnig er mikið um viðtöl þar
sem viðkomandi er að afla sér hagnýtra upplýsinga s.s. varðandi skilnaðarmál og kynferðislega
misnotkun, þeim málum er vísað til Kvennaráðgjafarinnar og Stígamóta. Aðeins hefur orðið
vart við að karlmenn, sem
beitt hafa konur ofbeldi hafa leitað eftir ráðgjöf hjá Kvennaathvarfinu, þeim málum hefur verið
vísað til sálfræðinga.