Tilvera - 15.11.1998, Blaðsíða 2
Nhvrænair konur gegn ofbeldi
í september s.l. var komið að grænlensku konunum að halda
ráðstefnuna Norrænar konur gegn ofbeldi og var hún haldin í
bænum Ilulissat á Grænlandi. Um 130 konur tóku þátt í ráð-
stefnunni en ég var sú eina frá Islandi. Við komum á áfanga-
stað þann 18. September en snérum tilbaka þann 23. Sept.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru: Else Poulen (psykolog),
sem fjallaði um áhrif ofbeldis á fjölskyldur, Marie Möller
Christensen og Karen Dassau sem fjölluðu um barnastarf í
Kvennaathvarfi í Kaupmannahöfn (Kvindehjemmet), og Fatuna
Ali (psykoterapeut) fjallaði um sjálfshjálparhópa. Einn dag
ráðstefnunnar voru hafðir vinnuhópar og valdi ég „Kvenna-
athvörf á Grænlandi“. (Nánar sagt frá efni ráðstefnunnar á
OPNU HÚSI þann 10. nóv. n.k.)
Bærinn Ilulissat eða Jakobshöfn liggur við skriðjökul í fullri
framleiðslu svo fjörðurinn er alltaf fullur af ísjökum sem fljóta
svo á haf út. Þetta gefur staðnum sérstakt yfirbragð og fórum
við m.a. í siglingu innan um risastóra ísjaka og heyrðum
drunurnar í jöklinum þegar brotnaði framan af honum. Við
fengum líka tækifæri til að kaupa ferð með þyrlu upp á jökul en
það var stórkostleg upplifun.
Öll ráðstefnan var til fyrirmyndar og má grænlenski
hópurinn vera stoltur af þessari ráðstefnu. Umræður voru góðar
og einblínt mikið á fjölskylduna í heild og bömin. Einnig var
töluvert rætt um aðstæður grænlenskra kvennaathvarfa, sem em
Síðastliðið vor þreyttu þrír nemendur vor-
próf í gmnnskóla Kvennaathvarfsins. Þrátt fyrir að
sólin sleikti barnskinnar í gegnum gluggann og
útþráin barðist um í hjörtum barnanna gekk þeim
vel og tóku góð próf. Einstök veðurblíða var í
sumar og fór barnastarfið að mestu leyti fram utan
dyra. Við fómm m.a. í vettvangsferðir, á leikvelli,
niður á höfn, í skrúðgarða og hápunktur útivemnnar
var yfirleitt í enda dags þegar við drukkum nestið
okkar úti. Vegna sumarleyfa og veikindafrís starfs-
manns lá bamastarf niðri í ágústmánuði. Hjá þessari
ráðstöfun var ekki komist og einungis gerð í neyð.
Enn á ný er haustið komið með sitt hefðbundna
skólastarf og öðmm þáttum barnastarfs. Framundan
er skemmtilegur tími snjósleða og jólahalds þar sem
notalegar stundir við kertaljós bíða okkar.
Bestu kveðjur!
Barnastarfsmenn Kvennaathvarfsins
óneitanlega öðmvísi en á hinum Norðurlöndunum m.a. vegna
smæðar hvers bæjar fyrir sig og fjarlægðar milli staða en
athvörfin eru 8 talsins. T.d. búa í Ilulissat aðeins um 4.200.
manns en samt er Ilulissat þriðji stærsti bærinn á Grænlandi.
Á næsta ári verður ráðstefnan haldin í Noregi en Finnland
baðst undan að halda ráðstefnuna vegna erfiðra aðstæðna.
Kœr kveðja,
Fríða B. Einarsdóttir
Barnastarfsmaður Kvennaathvarfsins.
Frá aðalfundi
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf var haldinn
í Litlu Brekku þann 28. maí s.l. og mættu 30 félags-
menn á fundinn.
Ný stjórn var kosin en hana skipa eftirfarandi
konur: Helga Tulinius, stjórnarformaður. Sandra D.
Gunnarsdóttir, varaformaður. Margrét Einarsdóttir,
ritari. María Sólbergsdóttir, gjaldkeri og Sigríður
Stefánsdóttir, meðstjórnandi. Varamenn stjómar eru:
Hrefna Þórarinsdóttir og Pálína Jónsdóttir.
Dagskrá aðalfundar var með hefðbundnu sniði.
Ársskýrsla 1997 var kynnt en þar kemur m.a. fram að
árið 1997 voru 395 komur kvenna skráðar í Kvenna-
athvarfið, 118 til dvalar og 277 í viðtöl. Aldrei hafa
fleiri komur kvenna verið skráðar í Kvennaathvarfið
utan árið 1994 en þá vom komur einnig 395 talsins. Það
er athyglisvert að sú aukning sem hefur orðið á skráðum
komum kvenna í Athvarfið felst í aukningu á viðtölum
en á milli áranna 1996 og 1997 var um að ræða 9%
aukningu á viðtölum.
Árið 1997 komu 113 böm með mæðmm sínum í
Athvarfið og símtöl í neyðarsíma vom 2274.
Rausnarleg g|6f frá
S@Er,upfio®aist.aklúl>Í9i
Hiífklawíkidr
Þann 14.september s.l. Færði Soroptimistaklúbbur
Reykjavíkur Kvennaathvarfinu peningagjöf að upphæð kr.
300.000 til kaupa á leikföngum og leiktækjum handa bör-
nunum í Athvarfinu.
Samtök um kvennaathvarf færa Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur sínar bestu þakkir fyrir stuðninginn sem mun
vafalaust færa bömunum í Athvarfinu gleði og stuðla að vel-
líðan þeirra.