Tilvera - 15.11.1998, Blaðsíða 4
Auglýsum eftir tveimur
félagsmönnum í nefnd
Opið
hús
Opið Hús verður hjá Samtökum um kvennaathvarf þriðju-
daginn 10. nóvember frá kl. 17:30 til 19:00 í Lækjargötu 10
(gengið inn frá Skólabrú).
A Opna Húsinu verður sagt frá tveimur ráðstefnum sem full-
trúar frá Samtökum um kvennaathvarf sóttu nýverið. Annars
vegar verður sagt frá ráðstefnu sem Jafnréttisnefnd Evrópu-
ráðsins hélt í júní s.l., sem bar yfirskriftina „Aðgerðir gegn ver-
slun með fólk til kynlífsþrælkunar: Hlutverk frjálsra félagasam-
taka“. Hins vegar verður sagt ffá hinni árlegu ráðstefnu „Norrænar
konur gegn ofbeldi“, sem að þessu sinni var haldin í bænum
Ilulissat á Grænlandi í september s.l.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á OPNA HÚSIÐ en
allir eru að sjálfsögðu velkomnir.
Kæru félagar.
I samræmi við ákvörðun síðasta aðalfundar hefur verið
skipuð nefnd til þess að leyta lausna m.a. á því hvernig
bregðast skuli við þegar til Athvarfsins leyta konur með
alvarleg geðræn vandamál. Ennfremur hefur nefndinni verið
falið að endurskoða reglur varðandi vímuefnaneyslu og
hvemig skuli tekið á því þegar slík mál koma upp í Athvarfinu.
Stjórnin ákvað jafnframt að fela nefndinni að skoða hvort
ástæða sé til að setja reglur um lengd dvalartíma í Athvarfi.
I nefndina em þegar komnir þrír fulltrúar: María Sólbergs-
dóttir, stjórnarkona og vaktkonurnar Hrefna Harðardóttir og
Hjördís Ketilsdóttir.
Mjög mikilvægt er að félagsmenn komi inn í þessa umræðu
og auglýsa Samtök um kvennaathvarf því eftir tveimur félags-
mönnum í nefndina. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku vinsamlega
hafið samband við skrifstofuna fyrir 13. nóvember í síma:
5613720 fyrir hádegi.
Vinnuhópur um þjjónustu mé nýbúa
Að tilstuðlan borgarstjóra Reykjavíkur var settur saman þriggja
manna vinnuhópur sumarið 1995. Hópnum var ætlað að safna
saman tillögum til úrbóta á þjónustu borgarinnar við nýbúa. Út
frá vinnuhópnum var síðan stofnað teymi til að samhæfa vinnu-
brögð stofnana og annarra stuðningsaðila til að auðvelda aðgengi
nýbúa að þjónustu þeirra. í teyminu í dag eru fulltrúar úr Reykja-
vík frá Félagsmálastofnun, Heilsugæslu, Vinnumiðlun, Fræðslu-
miðstöð, Dagvist barna, Námsflokkunum, Miðstöð nýbúa og
Samtökum um kvennaathvarf.
Fyrsti fundur teymisins var 1. okt. 1996 og síðan hafa verið
haldnir 22 fundir. Allir fulltrúar teymisins hafa með ólíkum hætti
komið að málefnum nýbúa og þurft að kljást við þá þröskulda
sem á vegi verða þegar úrræði eru annars vegar. Fulltrúamir hafa
haft heilmikið gagn og ánægju af því að hittast og bera saman
bækur sínar. A fundina hafa einnig komið gestir, m.a. frá Smit-
sjúkdómadeild, Útlendingaeftirlitinu, Kirkjunni og Félags-
málastofnun. Þannig heimsóknir auðvelda teyminu að ná heildar-
sýn á málefnum nýbúa.
Staða nýbúakvenna sem koma til dvalar í Kvennaathvarfið er
að ýmsu leyti frábrugðin stöðu innlendra kvenna. M.a. hefur
komið fram að nýbúakonur:
• Dvelja almennt mun lengur í Athvarfinu.
• Þurfa oft mun meiri stuðning varðandi einföldustu atriði
daglegs lífs s.s. matarinnkaup, umönnun barna sinna, fara í
pósthús, banka og aðrar stofnanir.
• Hafa oft verið mjög einangraðar og vita ekki um réttar-
stöðu sína og eins eru þær oft hræddar og fullar af skömm þar
sem þær telja sig hafa bmgðist fjölskyldum sínum.
• Leggja oft töluverða áherslu á að geðjast starfskonum
og gera þeim til hæfis.
• Tekur langan tíma að vinna traust þeirra.
• Eiga oft engan að nema eiginmanninn/sambýlismanninn
og hafa þar af leiðandi engan stuðning þegar þær fara úr
Athvarfinu.
Þær konur sem eru einna verst settar hvað þetta varðar eru
konur frá Asíulöndum, sem er þá aðallega vegna menningarlegs
mismunar og oft tungumálaerfiðleika, þar sem margar þeirra tala
aðeins móðurmál sitt. Tilgangur dvalar í Athvarfinu er m.a. að
styðja nýbúakonur eftir bestu getu þannig að þær verði færari að
takast á við lífið að lokinni dvöl. Þar hefur stuðningur teymisins
komið að góðum notum og eins stuðningur þeirra aðila er að því
standa.
Hrefna Harðardóttir, starfskona og
Fulltrúi Kvennaathvarfsins í nýbúateyminu.
Markmið Samtaka um kvennaathvarf:
1. Að reka athvarf, annars vegar fyrir konur og böm þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbæri-
leg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna
og hins vegar fyrir konur sem verða fyrir nauðgun.
2. Að veita ráðgjöf og upplýsingar, efla fræðslu og umræðu um ofbeldi innan fjölskyldu, m.a. til að
auka skilning í þjóðfélaginu á eðli ofbeldis og afleiðingum þess og stuðla að því að þjóðfélagið,
lög þess og stofnanir vemdi og aðstoði þá er slíkt ofbeldi þola.
Samtök um kvennaathvarf, Lækjargötu 10, Pósthólf 1486, 121 Reykjavík, Sími: 561 3720, Myndsendir: 562 7202,
Kennitala 410782-0229,Gíró 4442-1, Netfang athvarf@islandia.is