Fjölrit RALA - 15.11.1981, Side 30
24
6. Ahrif vaxtarlags á þroska og kjötgæði.
Um skipulag verkefnisins er visað til írsskýrslu Rala
1978, bls. 22, (Fjölrit Rala nr. 48).
Verkefninu var haldið áfram samkvæmt áætlun og gert er
ráð fyrir að uppgjöri ljúki 1981.
Annað.
S árinu var lokið við gerð kynbótaeinkunnar hrúta fyrir
kjötgæði og fallþunga. Þessi kynbótaeinkunn er byggð á
erfðastuðlum, sem unnir eru úr skrokkmálum, safnað var úr
afkvæmarannsóknum árin 1958 til 1977- 1 kynbótaeinkunlnni er
byggt á eftirtöldum 7 eiginleikum. Flokkun falla, netjuþunga,
klofdýpt, dýpt brjóstkassa, mestu fituþykkt á siðu,
þverskurðarmáli bakvöðva og hlutfallinu leggummál/legglengd og
fallþunga. Með tilkomu þessarr kynbótaeinkunnar hefur
skrokkmálum, sem tekin eru í sláturhúsi á
afkvæmarannsóknarlömbum fækkað úr 14 i 5- Hrútum, sem
afkvæmaprófaðir voru 1979-80, var gefin kynbðtaeinkunn eftir
þessu kerfi og hún birt i þessari Arsskýrslu (sjá nlðurstöður
afkvæmarannsókna). Við gerð kynbótaeinkunnarinnar var höfð
náin samvinna við Þorvald Arnason, sem nú stundar framhaldsnám
i kynbðtum við Landbúnaðarháskðlann i Ultuna 1 Sviþjóð.
FOÐURRANNSÖKNIR.
Meltanleikarannsðknir.
Vegna endurnýjunr fjárins á Korpu var starfsemi við
meltanleikarannsóknir IN VIVO i lágmarki veturinn 1979-80.
öllum eldri sauðum sem voru orðnir 8 vetra var lógað, en
keyptir i þeirra stað lambhrútar frá Heiðarbæ 1 Þingvallasveit
haustið 1979- Eru nú 12 sauðir á Korpu og auk þeirra einn með
vambaropi. Einnig hafa verið ær með hálsopi siðastliðin tvö ár
vegna plöntuvalsrannsðkna I Esju.
Meltanleiki i glösum IN VITRO var mældur i 3564 sýnum.
Þessi tala sýnir heildarfjölda mælinga og meðtalin tvltekning
sýna, sem mjög oft er gert vegna tilraunasýna, svo og
staðalsýni "blindprufa" (einungis vambarvökvi) sem hðfð eru 1
hverri meltanleikaumferð, en þær urðu alls 45.
Meðfylgjandi tafla sýnir skiptingu sýna eftir verkefnum.