Fjölrit RALA - 10.05.1988, Blaðsíða 32
28
Haustrúnineur ásetnineslamba (RL 3971
Sigurgeir Þorgeirsson og Stefán Sch. Thorsteinsson
Þessi tilraun hófst haustið 1984 og stóð í 3 ár, eða til haustsins 1987. Tilgangut
hennar var að rannsaka áhrif haustrúnings ásetningsgimbra, með og án fiskimjölsgjafar, á
þrif, frjósemi og afurðir gemlinga.
Hér að neðan er sýnt skipulag tilraunarinnar ásamt fjölda lamba í hverjum flokki ftt*
árin.
6. tafla. Skipulag og fjöldi lamba i hverjum flokki.
Meðferð* F+ F- Alls
H. 124 125 249
V. 126 127 253
Alls 250 252 502
*) F+ = Fiskimjölsgjöf, F- = Án fiskimjölsgjafar, H = Haustrúin lömb, V = Vetrarrúín
(febrúar-) lömb.
Fóðrun lambanna var þannig háttað að allan veturinn var þeim gefið hey að vild.
Fiskimjölsflokkarnir fengu að jafnaði u.þ.b. 45 g af fiskimjöli á dag. Á útmánuðum var farið
að gefa gimbrunum maís og grasköggia í viðbót við heyið til að uppfylla orkuþarfir. Þessi
viðbótargjöf var eins í öllum flokkum og hófst í janúarlok fyrsta árið (100 g maís + 250 g
graskögglar) en um miðjan mars síðari tvö árin (100 g maís + 100 g graskögglar).
Flokkarnir voru fóðraðir sér til 1. maí en saman eftir þann tíma og fengu þá allir
gemlingar hey að vild (át u.þ.b. 1,3 kg) og 150 g SÍS-kjarnablöndu með 19% hrápróteini.
Eftir burð fengu gemlingarnir hey að vild (át 0,8-1,0 kg) og 500 g af sömu blöndu.
Heyið var gott öll árin, að meðaltali 0,6 FE/kg (0,57-0,68).
7. tafla. Étið fóður á tilraunaskeiðinu (nóv.-apr.). Meðaltal 3 ára.
Flokkur Taða. ka/daa FE alls
HF+ 1,07 132
HF- 1,06 126
VF+ 1,02 128
VF- 1,02 122
Öll árin fór haustrúningur lambanna fram sama daginn og þau voru tekin á hús, sem
jafnan var um mánaðamótin október - nóvember.
Ullin af haustrúnu lömbunum vó 1,56 kg til jafnaðar. Þau voru síðan rúin aftur á
sama tíma og vetrarrúnu lömbin, 24.-27. feb. 1986 og 3.-5. mars 1987. Árið 1985 voru
haustrúnu lömbin ekki rúin aftur fyrr en í júli, sem er alltof seint, og er því ari sleppt
við samanburð á ullarmagni milli flokka. Endurvöxtur, snoðið, nam 579 g til jafnaðar, eða
um 5,4 g á dag. í fiskimjölsflokknum nam hann 611 g og hjá þeim sem ekki fengu
fiskimjöl 546 g. Munurinn, 65 g, reyndist raunhæfur í 95% tilfella.