Fjölrit RALA - 10.04.1992, Blaðsíða 26
Möðruvellir 1991
18
Ulraun rtr. 528-91. Haustáburður á tún
Hér er verið að endurtaka tilraun sem gerð var á Korpu (528-80). Tilraunastaðirnir eru
tveir í Möðruvallalandi þ.e. í Neðstumýrinni þar sem er frekar rakt og hætta á kali og í
Fjóstúninu sem er mjög þurrt og jarðvegur upphaflega malarkenndur þurrlendismói. í
Neðstumýrinni er ríkjandi vallarfoxgras (85%) og vallarsveifgras (5%). Aðrar tegundir eru
haugarfi, túnvingull, snarrót, blóðarfi, hlaðkolla, njóli og hjartarfi. í Fjóstúninu er
vallarfoxgrasið um 40%, 30% vallarsveifgras, 10% varpasveifgras og 5% hjartarfi. Aðrar
tegundir eru snarrót, blóðarfi, haugarfi, túnvingull, njóli, háliðagras og túnfífill. Tilraunin var
lögð út eftir 1. slátt.
Uppskera 2. sláttar (þe. hkg/ha)
Liðir Neðstamýri Fjóstúnið
A. 60N að vori + 60N eftir 1. slátt 42,3 35,0
B. 60N að vori + 60N eftir 2. slátt 25,5 28,2
C. 60N að vori + 60N síðla hausts 25,9 23,5
D. 120N að vori 25,5 24,4
E. 60N að vori 24,0 29,0
Meðaltal 28,7 28,0
Staðalfrávik 2,44 4,98
Frítölur 12 12
Áburðartímar; A. 27.6. 27.6.
B. 30.7. 30.7.
C. 17.9. 17.9.
1. sláttur 20.6. 18.6.
2. sláttur 30.7. 30.7.
Á Fjóstúnið voru borin 14 tonn af mykju síðastliðið haust og 39 kg N í Móða 1 (26-6,1)
og 49 kg N í Kjarna (33 + 2% Ca) í lok maí. Á Neðstumýrina var borið: 117 kg N í
Græði 9 (24-3,9-6,6 + 2S + 1,5% Ca) í júníbyrjun.