Fjölrit RALA - 10.04.1992, Blaðsíða 30
Möðruvellir 1991
22
D. KALRANNSÓKNIR
Aðferðir við svellþolsprófanir.
Rannsakaðar voru ýmsar aðferðir til mælinga á svellþoli, svo sem rafvökvaleki fruma. Enn
fremur vora eftirtaldir þættir við prófun á svellþoli á rannsóknastofu rannsakaðir:
1. Ræktun plantna í steinullarmottum.
2. Staðsetning bikara í frystikistu.
3. Notkun ískurls til að flýta fyrir svellun.
4. Áhrif lokunar bikara á hitastig í svelli.
5. Ahrif þiðnunartíma og flóðskemmda eftir svellun.
6. Aðferðir við mat á skemmdum eftir svellun.
Rannsóknaraðferðum á kalstofunni á Möðravöllum hefur verið breytt í samræmi við
niðurstöður þessara rannsókna.
Grasnytjar og svellþol
í Noregi var unnið að samanburði á svellþoli grasa af mismunandi aldri. Notað var fjölært
rýgresi (Raigt4) og vallarfoxgras (Engmo), sem hafði vaxið úti á Vágpnesi í Norður-Noregi.
Tilraunin tókst bærilega.
Svellþol, dagar LD^
Vallarfoxgras Rýgresi
1. Tveggja ára, vorsáð 28.5. 42,0 9,8
2. Eins árs, vorsáð 29.5. 46,0 10,0
3. Eins árs, haustsáð 12.8. 51,0 10,2