Fjölrit RALA - 20.11.1992, Blaðsíða 55
-51 -
c) Fylgni gróðurfars við beitar- og jarðvegsþœtti.
í niðurstöðum hnitunarinnar var vikið að tenglsum gróðurfars við umhverfisþætti, þ.e.
jarðvegsskilyrði og beitarálag (12. mynd), án þess að útreikningar væru lagðir til
grundvallar. Til þess að kanna þessi tengsl nánar var kórfylgnigreining notuð en í henni
er á tölfræðilegan hátt leitað að beinu sambandi milli tveggja gagnasafna (Gittins 1985),
sem í þessu tilviki er gróður annars vegar og umhverfi (beit og jarðvegsskilyrði) hins
vegar.
Niðurstöður kórfylgnigreiningarinnar sýna marktækt samband milli gróðurfars og
umhverfisþátta (10. tafla). Kórbreyta 1 sýnir mjög sterka fylgni (0,95) og mun hærri en
kórbreyta 2 (0,60) en báðar eru þær marktækar. DECORANA-ásar 1 og 2, sem túlka
gróðurfarið, hafa mjög háa fylgni (0,98) við gróðurkórbreytur 1 og 2 (Gj og G^) talið í
sömu röð. Ás 1 tengist því kórbreytu 1 en ás 2 kórbreytu 2.
Umhverfiskórbreyta 1 (U^), sem hafði háa fylgni (0,95) við gróðurkórbreytu 1 (Gp
og þar með DECORANA-ás 1, sýndi sterkast samband við jarðvegsþykkt (-0.93), kolefni
(-0,87) og köfnunarefni (-0,85) í jarðvegi (10. tafla). Þetta staðfestir að gróður-
farsbreytileikinn í tilraunalandinu stóð í nánustum tengslum við jarðvegsskilyrði.
Beitarþungi og teðsla sýna allháa fylgni við U^ (-0,61 og -0,77) sem gefur til kynna að
beitin hafi talsvert mótað gróðurfarið. Hér ber að hafa í huga legu tilraunahólfanna í
landinu en þar fór saman vaxandi beitarálag og hagstæðari jarðvegsskilyrði, sem leiðir til
að fylgni á milli gróðurfars og beitarþátta verður óeðlilega há.
Umhverfiskórbreyta 2 (U^) sýndi ekki jafn sterka fylgni (0,60) við gróðurgögnin og
Uj. Breytan, sem tengdist DECORANA-ási 2, sýndi mjög veik tengsl við flesta
umhverfisþætti (10. tafla). Mest var fylgnin við ógróið yfirborð (0,47). Greiningin bendir
því til að ás 2 standi í litlu sambandi við þá umhverfisþætti sem ákvarðaðir voru í
tilraunalandinu. Eins og fram hefur komið var talið hugsanlegt að ásinn tengdist
snjóþunga.
í heildina útskýra umhverfisgögnin (U^ og U^) 63% (0,45+0,18) af
gróðurfarsbreytileikanum (10. tafla). Allir umhverfisþættimir, nema þýfishæð og kalí í
jarðvegi, sýndu marktæka fjölfylgni (R^) við gróðurfarið. Fjölfylgni jarðvegsþykktar,
köfnunarefnis og kolefnis í jarðvegi var mest við gróðurfarið og talsvert meiri en fylgni
beitarþátta (10. tafla).