Fjölrit RALA - 15.11.2000, Page 28
Kalrannsóknir 1999
20
umhverfi í agamæringu, hertar í 1-2 vikur og 6 ml af vatni hellt yfir þær. Vandamál var að
plöntunum hætti til að fljóta upp. Auðveldara reyndist að nota frumuræktun. Var þá um það
bil 0,2 g af frumum (áður hertar í 1 viku) komið fyrir í tilraunaglasi og bætt á þær 2 ml af
vatni og síðan fryst við -2°C. Vatnið verður ekki að is nema ískrystallamyndun sé komið af
stað. ískrystallamyndun var komið af stað í svellþolsmælingunum, en viðmið var í vatni við
sama hitastig (-2°C) án svellmyndunar. Reynt var með báðum aðferðum að líkja eftir
loftleysi með því að nota olíu eða metta vatnið með köfnunarefni, en hvomgt hafði jafn
afgerandi áhrif og ísinn. Líf frumna eítir meðhöndlun var mælt með TTC-litun og viðmið
vom plöntur í vatni sem ekki fraus í ís (-2°C):
Kal, %
Meðferð Plöntur Frumuræktun
Vatn + olía 0 0
Vatn mettað með N 7 0
ís 88 49
í framhaldinu var einungis notað svell til svellþolsprófunar. Vallarfoxgrasstofnamir þrír vom
bomir saman með báðum fyrrgreindum aðferðum, og röðuðu þeir sér í báðum tilvikum eins.
Kal, %
Stofn Plöntur Frumuræktun
Adda 24 6
Vega 47 20
Champ 81 45
Niðurstaðan er því sú að auðvelt sé að nota fyrrgreinda aðferð með framuræktun til mælinga á
svellþoli stofna.
Frumuræktun var einnig notuð til að mæla öndunarhraða við mismunandi hitastig í næringar-
lausn. Ljóst er að þótt öndun sé hægari undir frostmarki þá verða framumar fljótlega án
súrefnis.
í þriðja lið verkefnisins var frumuræktunaraðferðin notuð tii að kanna orsakir
svellkals. Þeim þætti er ekki að fullu lokið, en vísbendingar era um að svellkal kunni að vera
af völdum oxunarskemmda er plöntumar koma undan svellinu. Prófað var svellþol frumna
sem fengið höfðu andoxunarefni. Einnig voru tekin sýni úr framuræktun eftir mislanga
hörðnun og svellun til mælinga á breytingum sem verða á framunum við hörðnun og svellun.