Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Page 10

Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Page 10
Árleg uppskera af garðjarðarbeijum í heiminum öllum er um 2,5 milljónir tonna (Iversen, T.H. o.fl. 1996). í öðrum Evrópulöndum en íslandi er jarðarberjarækt töluverð búgrein. í febrúar og mars koma jarðarber frá Spáni á markað í flestum Evrópulöndum. Þegar komið er fram í mars fara jarðarber frá Hollandi og öðrum löndum Mið-Evrópu að vera ráðandi á mörkuðum í Evrópu. f Norður- Evrópu þykja berin frá Hollandi betri en ber ffá Spáni, sem trúlega er ekki síst vegna þess hvað flutningur frá Spáni til Norður-Evrópu tekur langan tíma (Geers F„ 1996). Þegar kemur lengra fram á vorið, koma ber frá Norðurlöndum á markað, en þau eru fyrst og fremst notuð innanlands í hveiju landi. Á síðari árum hefur færst í vöxt að rækta jarðarber í upphituðum og raflýstum gróðurhúsum. Þetta er að sjálfsögðu dýr framleiðsla, en t.d. veitingahús nota berin í eftirrétti og til skreytingar á mat og eru tilbúin að borga nokkuð hátt verð. Jarðarber eru ræktuð í mörgum heimilisgörðum á íslandi, með ýmsum aðferðum og örfáir hafa reynt að gera jarðarberjarækt að atvinnu. Það skiptir miklu máli fyrir alla ræktendur, að unnt sé að ná í heilbrigðar plöntur af afbrigðum, sem henta fyrir þá ræktunaraðferð, sem notuð er. Möguleikar jarðarberjaræktar, sem búgreinar á íslandi, byggist á að rækta ber fyrir markað í júlí og ágúst undir gróðurhh'fum, eða rækta jarðarber í upphituðu gróðurhúsi og ná helst tveimur uppskerum á ári. Ber ræktuð á íslandi yrðu að sjálfsögðu nokkuð dýr, en ættu að verða góð, m.a. vegna stutts tíma frá tínslu til sölu og það ætti að vera unnt að fara vel með þau í flutningum. Helsti frumkvöðull jarðarbeijaræktunar á íslandi hefur verið Ámi Magnús Hannesson, Varmalandi á Flúðum, sem hóf framleiðslu á jarðarberjum árið 1985. Hindbeijaplanta, Rubus idaeus, er hálfrunni, stönglamir lifa aðeins í tvö sumur, en rætumar lifa í mörg ár og mynda árlega nýja stöngla. Hindber hafa lítið verið ræktuð á íslandi. Óli Valur Hansson o.fl. (1978) skrifar: " Hérlendis eru hindber á stöku stað í görðum, aðallega í bæjum og kaupstöðum, en virðast í meira lagi vangæf og skila sjaldan beijum svo gagn sé í eða talandi um. Má vera, að þetta stafi m.a. af því, að runnamir njóti sjaldan reglubundinnar umhirðu og þroskast þá illa og kelur mjög. . . . Er þó dálítil blómgun við og við, en blóm virðast ekki frjóvgast. Líklega má að einhveiju leyti kenna því um, að blómin þurfa helst skordýrafrævun, þótt ekki sé hún með öllu nauðsyrleg." Þessi lýsing er trúlega rétt. Þó kann að vera að nýir stofnar af hindbeijum auki möguleika hindberjaræktunar í heimilisgörðum. Á Hvanneyri var árið 1977 reynt að rækta hindber af afbrigðinu Veten, en plöntumar dóu strax næsta vetur. Árið 1990 vom fengnar plöntnr af hindberja- stofninum Baldri frá Noregi, sem síðan hefur verið í athugun. Öllum þeim athugunum, sem getið er um í ritgerðinni hefui áður verið lýst í árlegum skýrslum frá Hvanneyri (Fjölrit Bændaskólans á Hvameyri, nr. 27, 29, 32, 34, 39, 46, 49, 52, 53, 54, 56, 60 og 64 ásamt Ritum Búvsindadeildarinnar nr. 2, 3, 5, 9 og 12.) Þess vegna em ekki allar uppiýsinga' um athuganimar tíundaðar í þessari skýrslu. Það hafa ekki verið gerðar berjatilraunir með samreitum á Hvanneyri. 5

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.