Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 8
Mér finnst réttlætið fótum troðið, að sveitarfélagið skuli ekki gefa tommu eftir. Kristmundur Árnason, eigandi AK Bygg ehf. Jól 2020 Ryksuga, Serie 2 BZGL 2X100 Lítil og nett en öflug. Vinnuradíus: 8 m. Hljóð: 80 dB. Fullt verð: 22.900 kr. Jólaverð: 17.900 kr. Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út. Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði. Espressó-kaffivél, EQ.300 TI 351209RW Hraðvirk upphitun. Kaffikvörn úr keramík. Einföld í notkun. Allar aðgerðir sýnilegar á skjá („coffeeDirect“). Þrýstingur: 15 bör. Fullt verð: 124.900 kr. Jólaverð: 97.900 kr. SVEITARSTJÓRNIR Kristmundur Árnason, eigandi AK Bygg ehf., sem keypti fasteignir sem hýst höfðu Hótel Skyggni í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi, segir það hafa valdið sér miklum erfiðleikum að land- eigandinn lokaði fyrir kalt vatn að byggingunum. Í bréfi til Skeiða- og Gnúpverja- hrepps rekur Kristmundur að AK Bygg hafi á árinu 2013 keypt af Byggðastofnun fasteignir sem séu á lóð úr landi Minni-Mástungu. Ábú- endur í Minni-Mástungu hafi byggt og rekið hótelið en Byggðastofnun tekið það yfir þegar ekki hafi reynst vera rekstrargrundvöllur fyrir starf- seminni lengur. „Eftir að nýir aðilar tóku yfir hótelið hefur gengið á ýmsu í sam- skiptum við ábúendur í Minni- Mástungu. Meðal annars var lokað fyrir aðkomu að hótelinu í gegnum land Minni-Mástungu og reynt að hækka lóðarleigu upp úr öllu valdi. Bæði þessi mál enduðu fyrir Hæsta- rétti og féllu dómar í þeim báðum nýjum eiganda í hag,“ lýsir Krist- mundur aðdraganda þess sem enn dregur dilk á eftir sér. „Það mál sem hefur samt valdið hvað mestum erfiðleikum snýr að skorti á köldu vatni fyrir starf- semina en þegar nýir eigendur tóku við lokuðu ábúendur í Minni-Más- tungu fyrir kalt vatn sem hótelið hafði haft afnot af. Þessi gjörningur hefur komið veg fyrir að eðlileg starfsemi geti hafist og því valdið eigendum miklu fjárhagslegu tjóni enda hafa ekki fundist aðrar leiðir til að tryggja kalt vatn til starfsem- innar,“ segir Kristmundur. Þá segir Kristmundur að lengi hafi verið vonast til að vatnsveitu- framkvæmdir á svæðinu á vegum Skeiða- og Gnúpverjahrepps myndu sjá starfsemi hans fyrir köldu vatni. „Enda töldum við eðlilegt að sveitarfélagið kæmi að lausn þessa máls þar sem það gaf út byggingar- leyfi fyrir starfsemi á þessum stað og lóðin er skilgreind undir verslun og þjónustu í aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps,“ skrifar hann. Bent er á það í bréfi Kristmundar að fasteignagjöldin af húsakostin- um séu um það bil 1,1 milljón króna á ári þótt ekki hafi verið hægt að hefja starfsemi á hótelinu þar sem kalda vatnið vanti. „Nú hillir loks undir lausn á þessu máli en AK Bygg hefur hafið fram- kvæmdir við vatnsveitu á lóðinni sem er ætlað að sjá starfseminni fyrir köldu vatni. Nú er búið að bora 90 metra djúpa holu sem virðist ætla að skila góðum af köstum og góðu vatni,“ upplýsir Kristmundur hreppinn og kveðst um leið óska eftir aðkomu sveitarfélagsins svo klára megi framkvæmdir. „Við erum líka til í að skoða möguleika á samstarfi við sveitarfélagið um aðkomu að framkvæmdum og jafn- vel nýtingu á umframvatni úr bor- holunni sem gæti til dæmis nýst nærliggjandi bæjum,“ tekur hann fram. Vegna þessa segist Kristmundur óska eftir fjárhagslegum stuðningi frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi, til dæmis í formi lækkunar á fasteigna- gjöldum tímabundið. Sveitarstjórn- in hafnaði beiðninni. „Mér finnst réttlætið fótum troð- ið, að sveitarfélagið skuli ekki gefa tommu eftir,“ segir Kristmundur við Fréttablaðið. gar@frettabladid.is Lokaði fyrir vatnið að hóteli sem hann missti á landi sínu Eigandi jarðarinnar Minni-Mástungu sem áður rak hótel á landi sínu skrúfaði fyrir neysluvatn að hótel- inu vegna deilna við núverandi eiganda. Sá boraði þá sjálfur eftir vatni og er vonsvikinn yfir að sveitar- stjórnin neiti að taka þátt í kostnaði hans og lækka fasteignagjöldin tímabundið vegna stöðunnar. Bóndinn í Minni-Mástungu kom fyrir heyrúllum við gafl Hótels Skyggnis í óþökk nýja eigandans. MYND/AÐSEND R E Y K J AV Í K Ö r y rk jaba nd a l ag Íslands hefur farið þess á leit við Reykjavíkurborg að bætt verði úr merkingum við göngugötur í miðbænum þannig að skýrt sé að handhafar stæðiskorta fyrir hreyfi- hamlaða hafi rétt til að aka um umræddar götur. Bréf þess efnis var tekið fyrir í aðgengis- og samráðsnefnd í mál- efnum fatlaðs fólks í vikunni. Í sumar varð hluti Skólavörðu- stígs, Laugavegar og Vegamóta- stígs að varanlegum göngugötum í borginni. Sett var upp bannmerki sem tilgreindi að allur akstur væri bannaður um göturnar en einn- ig skilti um að undanþága væri fyrir aðila sem þyrftu að komast að baklóðum og vöruafgreiðslu á ákveðnum tímum dags. Hvergi væri minnst á undanþáguheimild handhafa stæðiskorta fyrir hreyfi- hamlaða sem þó væri sannarlega til staðar. Í bréfinu kemur fram að dæmi séu um að hreyfihamlaðir ein- staklingar sem hafa nýtt sér rétt sinn til að aka á göngugötum hafi orðið fyrir aðkasti frá gangandi vegfarendum. „Það verður að skrifast á þekk- ingarleysi sem einfalt væri að bæta úr með aukinni upplýsinga- gjöf af hendi Reykjavíkurborgar,“ segir í bréfinu sem Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkja- bandalagsins, ritar undir. Þá er að lokum bent á að á Reykjavíkurborg hvíli sú lagalega skylda á að tryggja fullnægjandi aðgengi fyrir fatlað fólk, meðal annars með upplýsingum um hver réttindi þess séu. – bþ Akandi öryrkjar verða fyrir aðkasti í miðborg Reykjavíkur Göngugötur hafa fengið aukið vægi. Þuríður Harpa Sigurðardóttir EFNAHAGSMÁL Ríkustu fimm pró- sent íslenskra framteljenda áttu rúm 40 prósent alls fjár sem talið var fram til skatts á Íslandi í fyrra. Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Af svarinu sem tekur til tekna Íslendinga frá árinu 1998, sam- kvæmt framlögðum skattfram- tölum, má sjá að efnamestu Íslend- ingarnir hafa aukið auðlegð sína umtalsvert á síðustu tveimur ára- tugum en í svarinu kemur fram að eigið fé þeirra sem mest eiga hefur aukist hlutfallslega í samanburði við eignir allra landsmanna á þeim tíma. Þar kemur fram að hlutfall eigin fjár fólks í þessum hópi af eigin fé allra landsmanna er hærra nú en það var fyrir 22 árum. Þau sem tilheyra ríkasta einu prósenti landsmanna áttu samtals 865 milljarða en það stappar nálægt heilum fjárlögum íslenska ríkisins. Um 242 fjölskyldur er að ræða. – aá Ríkasta fólkið á Íslandi verður enn ríkara Ríkustu fimm prósentin eiga 40 prósent alls fjár sem talið er fram. Þeir sem tilheyra ríkasta eina prósenti þeirra sem telja fram hér á landi áttu 865 milljarða. 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.