Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 18
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Jólin hjá þeim verða með ná- kvæmlega sama hætti þetta árið og árin á undan. Á þeim óvissu- tímum sem við göngum nú í gegnum er gott að minnast þess að dýpstu kreppur geta reynst drifkraftur framfara. Ráðamenn og sóttvarnayfirvöld hafa að undanförnu lagt ríka áherslu á það við landsmenn að jólin verði allt öðruvísi þetta árið en áður og svo margt sem tal-ist hefur sjálfsagt um stórhátíð sé ekki mögulegt þetta árið. Alls kyns ráðlegg- ingum er beint til fólks, eins og að umgangast ekki of marga og sækja ekki í fjölmenn boð. Fólk á sem sagt ekki að vera of mikið á ferðinni um jólin. Langbest er talið að það haldi sig heima í rólegheitum, þannig þjónar það samfélaginu og náunganum best. Þeir sem hafa vanið sig á lífsstíl sem er nákvæm- lega í þessum anda og stundað hann í áratugi, einnig um jól, sjá reyndar ekki fram á mikla breytingu. Jólin hjá þeim verða með nákvæmlega sama hætti þetta árið og árin á undan. Það verða jól í ró og næði. Smávægilegra breytinga verður þó vissulega vart í lífi þeirra sem lifa áberandi rólegu lífi. Það er sann- arlega fjarstæðukennt að fara í verslun með grímu og upplifa að maður lifir í zombielandi því allir eru sömuleiðis með grímu og ekki má greina svipbrigði. Það sést reyndar í augu fólks en augnaráðið er tóm- legt og um leið opinberast að það er hrein fjarstæða að augun séu spegill sálarinnar. Sterkasta hugsun manns í búðarferðinni er sú að maður verði að koma sér burt sem allra fyrst. Sennilega það sem sótt- varnalæknir vill einmitt að maður geri. Sumar breytingar á daglegu lífi eru þó jafnvel gleðilegar eins og til dæmis það að losna við hinn hvimleiða leynivinaleik, sem tíðkaður hefur verið á vinnustöðum um jól, mörgum starfsmönnum til töluverðs ama. Nú eru vinnustaðir svo fámennir og rólegir að þessi hefð er blessunarlega sett í salt, eins og ýmislegt annað. Þarna er lítið dæmi, bara örlítið, um það að alltaf má koma auga á eitthvað jákvætt á tímum þar sem höft og bönn eru við lýði. Svo kemur maður líka auðveldlega auga á ýmislegt skrýtið. Eins og til dæmis það að þrátt fyrir heims- faraldur eru alltaf einhverjir fótboltaleikir í gangi, og fá f lennistórt pláss í öllum fjölmiðlum, á sama tíma og leikhús geta nánast ekki starfað og tónlistar- menn hafa nær ekkert að gera. Varla er menningin svo ónauðsynleg að eðlilegt sé að slökkva á ýmsum þáttum hennar eins og ekkert sé. Í samfélögum sem byggja á stöðugum hraða og eyðslu getur vissulega verið lærdómsríkt að upplifa tíma þar sem skyndilega hægir á öllu. Nú þarf fólk að temja sér aðrar venjur og hugsa á aðeins annað hátt en það áður gerði. Nú er einmitt hentugt að endur- meta hluti og átta sig á því hvað skiptir raunverulega máli. Betra er að gera það fyrr en seinna, nú þegar bóluefni er á leiðinni. Það er nefnilega ansi hætt við því að um leið og bóluefni hafi verið sprautað í okkur þá glaðvakni græðgin og skeytingarleysið og við förum að eyða og sóa og eyðileggja umhverfið sem aldrei fyrr. Satt best að segja er manninum trúandi til að gera einmitt þetta eftir að hann er laus úr þeirri prísund sem COVID hefur reynst lang- flestum. Ró og næði Hafðu samband í síma 568 8000 eða pantaðu gjafakort á borgarleikhus.is Gefðu ömmu morð um jólin Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru veruleiki sem við verðum að horfast í augu við. Heims-byggðin þarf að takast á við vandann sameigin- lega og snúa vörn í sókn. Allir leita góðra lausna og í þeim felast mikil tækifæri. Aðkoma atvinnulífsins er hér lykilþáttur. Hitaveita sem skiptir sköpum í daglegu lífi næstum allra Íslendinga er ekki gamalt fyrirbæri. Hún varð til í Reykjavík á milli stríða og í olíukreppunni fyrir hálfri öld fylgdu önnur sveitarfélög í kjölfarið. Verð á inn- fluttri olíu margfaldaðist, framsýnt fólk spýtti í lófana og á undraskömmum tíma vall heitt vatn úr nærliggj- andi hverum og borholum í velflest hús. Kreppuúr- ræðið sparaði okkur stórfé, jók loftgæði og yljaði lands- mönnum. Nú klórar fólk sér í hausnum og spyr hvers vegna í ósköpunum við gerðum þetta ekki fyrr? Hitaveita Reykjavíkur var um tíma ein stærsta jarð- varmaveita í heimi. Umheimurinn tók eftir henni og okkar sérfræðingar áttu þátt í jarðhitaverkefnum víða um heim. Þeirra hlutur í uppbygging hitaveitu í Kína, sem dregur álíka mikið úr útblæstri koltvísýrings og allur árlegur útblástur frá Íslandi, er þekkt stærð. Í Austur-Afríku hafa íslenskir sérfræðingar verið atkvæðamiklir í jarðhitanýtingu. Keníumenn flytja nú út þekkingu á jarðhita, sem að stórum hluta er sótt til Íslands. Það er dæmi um góða þróunarsamvinnu. Sama má segja um verkefni í Mið-Ameríku. Í orkumálum á Íslandi er mikil gróska. Virkjun fall- vatna og nýting jarðhita eru fyrirferðarmiklar greinar í atvinnulífi okkar sem fjöldi íslenskra sérfræðinga hefur gert að ævistarfi sínu. Við erum þess vegna vel búin undir framtíð orkuskipta, kolefnishlutleysis, orku- sparnaðar og geymslu kolefnis svo aðeins fátt sé nefnt. Ég hef lagt áherslu á að nýta þekkingu atvinnulífsins í þróunarsamvinnu meðal annars í gegnum Heimsmark- miðasjóð atvinnulífsins og ráðgjafalista ráðuneytisins. Á þeim óvissutímum sem við göngum nú í gegnum er gott að minnast þess að dýpstu kreppur geta reynst drifkraftur framfara. Mikilvægasta framlag okkar til loftslagsmála, nýting jarðvarmans, er eitt gleggsta dæmið um það. Arðbært kreppuúrræði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra Bakstur Bökunarástríða landsmanna náði nýjum hæðum á árinu. Allt ger seldist upp í apríl og eru súrdeigsmæður að verða fleiri hér á landi en mannlegar mæður. Það er farið að sjást hverjum leiddist mest á árinu þegar litið er til hæfileika og metnaðar í jólabakstrinum. Hér einu sinni, á árunum fyrir COVID, taldist það góður árangur að ná að baka piparkökur og spesíur. Í dag telst það ásættanlegt að ná piparkökuhálfmánum með hvítsúkkul aðibráð og óbræðan­ legum mojitosorbet, lakkrís­ toppum í laginu eins og Eiffel­ turninn með sex tegundum af lakkrís og truffluhjúpuðum súr­ deigssörum með mandarínufyll­ ingu sem skornar eru út eins og laufabrauð. Hefur margt breyst á þeim ellefu mánuðum sem eru liðnir frá því allir voru á ketó. Bréfið Hæ, Þórólfur. Ég heiti Bjössi. Oft kenndur við World Class. Nennirðu plís að opna líkams­ ræktarstöðvar. Það eru allir að verða kreisí að komast ekki í ræktina og svo er líka svakadýrt að vera með allar þessar stöðvar en enginn kemur. Það er opið í alls konar útlöndum en ekki hér. Mér finnst það ósanngjarnt. Ég spurði Kidda og Jóa sem eru mjög flinkir í lögfræði og þeim finnst að þú eigir að opna – mér finnst það líka. Þinn Bjössi. Es. Hvað lestu úr skriftinni? 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.