Tilvera - 15.10.1990, Blaðsíða 4
FÉLGASGJÖLDIN
Því miður verður að minna á félagsgjöldin. Margir hafa verið duglegir að greiða en mikið
vantar þó á að allt sé komið. Á næstunni leggja innheimtukonur land undir fót og knýja dyra
hjá þeim sem enn eiga ógreidd gjöld. Þið sem hafið ekki hugsað ykkurað greiða félagsgjöldin,
vinsamlegast sparið okkur sporin og óþarfa kostnað með því að tilkynna það til skrifstofu
samtakanna.
Félagsgjöldin eru mikilvægur þáttur í rekstri Kvennaathvarfsins, fyrir utan daggjöld
dvalarkvennanna eru þau einu föstu tekjur þess.
Árlega sækja samtökin um fjárstuðning til ríkis og sveitarfélaga með fleiri en 1000 íbúa,
enn höfumvið ekki fengið það sem Kvennaathvarfið þarf samkvæmt rekstraráætlun. Það sem
á vantar hefur alltaf komið frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum sem hafa styrkt
Kvennaanthvarfið.
EF ÞIÐ ERUÐ AÐ FLYTJA , GLEYMIÐ ÞÁ EKKI AÐ TILKYNNA BREYTT HEIMILISFANG
TIL SAMTAKANNA, EÐA A.M.K. Á PÓSTHÚSIÐ YKKAR.
MiNNINGAKORT
Við minnum á minningakort Kvennaathvarfsins, en þau eru til sölu á skrifstofunni Vesturgötu
3, Hlaðvarpanum. Þau er hægt að panta í síma og greiða með gíróseðli.
Q
KVENNA
ATHVARF
Markmið samtakanna eru:
1. Aö reka athvarf, annars vegar fyrlr konur og börn þeírra, þegar dvöl í heimahúsi er þeim
óbærileg vegna andlegs eöa líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra
heimílismanna og hins vegar fyrir konur, sem verða fyrir nauögun.
2. Að koma á fót ráðgjöf fyrir konur sem beittar hafa verið nauðgun.
3. Að rjúfa þá þögn sem ríkir um ofbeldi innan fjölskyldu, með því að stuðla að fræðslu og um-
ræðu, meðal annars í því skyni að vinna að viðurkenningu samfélagsins á að því beri að
veita þeím vernd og aðstoð er slíkt ofbeldi þola.
Samtök um kvennaathvarf, Vesturgötu 3, Pósthólf 1486, 121 Reykjavík, Sími: 91-23720, Nnr. 7473-3638, Kennitala 410782-0229, Gíró 44442-1,