Milli mála - 2019, Blaðsíða 147
Milli mála 11/2019 147
CAJA RUDE
hann ríkur.
Hana! Nú æpti manneskjan aftur. Hvað skyldi ama að henni?
Þetta voru skelfileg óhljóð. Auðvitað var engin ástæða til að óttast.
Poul sagði að fátækt fólk emjaði út af engu. En veinin sem komu
innan úr kofanum voru svo raunveruleg. Konan gat heldur ekki vitað
að hún, Kamilla Andersen, eiginkona Pouls Andersens heildsala, rík
frú með 350 krónur í vasanum „til að kaupa undurfallegan lítinn
hring“ stæði fyrir utan. Þannig að þetta gat varla verið eintóm upp-
gerð.
Skerandi óp. Annað til og svo enn eitt barst frá kofanum sem olli
því að frú Kamilla æpti líka, meðan hún hljóp til baka niður götuna.
„Guð,“ hún rakst á mann sem bar poka á bakinu og var svo álútur
að hann sá ekki fram fyrir sig.
„Þarna – þarna, hún æpir.“
Kamilla Andersen benti á kofann. Maðurinn kastaði af sér pok-
anum og tók á rás upp að kofanum.
Frú Kamilla sá að hann beindi einhverju að hurðinni sem hrökk
upp – svo kallaði maðurinn:
„Komið hingað fljótt! Flýtið yður, fjandinn hafi það.“
Frú Kamilla hikaði aðeins, en hljóp svo í átt að kofanum. Hún
varð að fara alla leið inn til að sjá hvað olli því að maðurinn talaði af
svo mikilli örvæntingu.
Kamilla Andersen var dóttir skólastjóra. Menntaðs, íhaldssams
manns, sem var giftur menntaðri, íhaldssamri konu og saman áttu
þau menntað, íhaldssamt heimili sem hvíldi á traustum gildum.
Áður en frú Andersen giftist vissi hún sáralítið um leyndardóma
lífsins og núna, eftir 15 ára barnlaust hjónaband með Poul Andersen
– sem beindi ástríðunum að lausum samböndum eins og heiðurs-
menn gera þegar þeir virða eiginkonur sínar, var hún enn fávís um
hið raunverulega líf. Þarna stóð hún í kofadyrunum og horfðist í
augu við blákaldan veruleikann: Konu sem hafði alið barn.
„Getið þér ekki tekið við hér?“ Maðurinn otaði að henni lítilli,
organdi rauðri veru, skelfilega dýrslegri. Hún starði á hann, en svar-
aði ekki.
„Getið þér ekki hjálpað aðeins til – fjandinn hafi það? Þér eruð þó
kona.“ Það var gráthljóð í röddinni og það varð til þess að frú
Kamilla kom inn fyrir.