Milli mála - 2019, Blaðsíða 157
Milli mála 11/2019 157
AHM AD IBN FADL A N
tuttugu þúsund lætur hann gera tvo og þannig lætur hann gera
hring handa konu sinni fyrir hverja tíu þúsund dirhama <sem hann
eignast>. Sumar hafa marga hringi um hálsinn.
Það skart sem þeir halda mest upp á eru grænar perlur úr postu-
líni/leir sem þeir hafa á skipum sínum. Þeir prútta og kaupa perl-
urnar á einn dirham <hverja> og þræða þær í hálsmen handa konum
sínum.
Þeir eru skítugastir af öllum þeim sem Allah hefur skapað. Þeir
blygðast sín hvorki fyrir að hafa hægðir né þvaglát á almannafæri,
þrífa sig ekki eftir samfarir og þvo ekki hendur sínar eftir að hafa
matast. Þeir eru sannarlega eins og ráfandi asnar!
Þeir ferðast frá lendum sínum, leggja skipunum á ánni Itil, sem
er mikið fljót, og reisa stór timburhús á bökkum hennar. Þeir
safnast saman tíu eða tuttugu í einu húsi, <stundum> færri og
<stundum> fleiri. Hver og einn hefur bedda sem hann situr á og
með þeim eru fallegar ambáttir sem þeir hyggjast selja. Þeir hafa
mök við þær á meðan félagar þeirra horfa á og stundum gera þeir
þetta margir saman í einum hóp.
Það kemur fyrir að kaupmaður heimsækir þá til að kaupa ambátt
á meðan eigandinn hefur samfarir við hana og hættir ekki fyrr en
hann hefur svalað þörf sinni.
Á degi hverjum þvo þeir andlit sitt og höfuð upp úr grútskítugu
vatni. Á morgnana færir ambátt eiganda sínum skál fulla af vatni.
Hann þvær hendur sínar, andlit og hár og strýkur greiðu gegnum
hárið ofan í vatnið. Því næst snýtir hann sér og hrækir í skálina.
Hann óhreinkar þetta vatn á allan mögulegan máta. Þegar hann
hefur lokið sér af, ber ambáttin skálina til sessunautar hans, sem
gerir eins og félagi sinn. Svo flytur hún skálina til næsta manns, og
þannig koll af kolli til allra í húsinu. Allir snýta þeir sér og hrækja
í skálina, og þvo andlit sitt og hár.
Þeir ganga á land um leið og þeir hafa lokið við að festa báta sína.
Hver og einn hefur meðferðis brauð, kjöt, lauk, mjólk og brenni-
vín,5 sem þeir leggja hjá viðarsúlu sem þeir hafa reist. Á henni er
<útskorið> andlit sem líkist mannsandliti og umhverfis súluna eru
litlar myndir og líkneski úr tré sem hefur verið stungið í jörðina.
5 Arabíska orðið hér er nabidh. Það getur merkt ýmiskonar vín, hugsanlega er hér um að ræða mjöð.