Milli mála - 2019, Blaðsíða 168
168 Milli mála 11/2019
Erla Erlendsdóttir
Háskóla Íslands
Um Carmen Quintana Cocolina
Carmen Quintana Cocolina fæddist í Santander á norðurströnd Spánar árið 1986. Hún stundaði nám í fjölmiðlafræði við
Complutense-háskólann í Madríd og lauk MA-Erasmus Mundus
prófi í sömu grein frá Árósaháskóla, háskólanum Pontificia
Universidad Católica í Santiago de Chile og háskólanum í Amsterdam
árið 2012. Frá árinu 2015 hefur hún kennt skapandi skrif hjá
Ritsmiðju Madrídar og hefur að auki verið í nánu samstarfi við
Evrópusamtökin um skapandi skrif (EACWP). Um þessar mundir er
hún dálkahöfundur hjá dagblaðinu El Diario í Cantabria á Norður-
Spáni.
Carmen Quintana tilheyrir hópi unghöfunda á Spáni sem komu
fram á fyrstu áratugum 21. aldar. Carmen hefur sent frá sér ljóð, smá-
sögur og eina skáldsögu. Hún hefur verið tilnefnd til verðlauna fyrir
ljóð sín en þau hafa birst í ýmsum ljóðasöfnum á síðustu árum.3 Fyrir
smásagnasafnið Lugares (Staðir)4 hlaut hún Premio José Hierro de
Relato-verðlaunin árið 2016. Í safninu eru fjórar stuttar sögur sem
hér birtast í íslenskri þýðingu: „Herbergið“, „Strætisvagninn“,
„Skrifstofan“ og „Ísbúðin“. Í sögunum dregur höfundur upp mynd af
hversdagslegum veruleika persónanna: lítillar stúlku, farþega í stræt-
isvagni, skrifstofustúlku og ráðstefnugesti. Lýsingar eru látlausar og
í anda raunsæis en ekki er allt sem sýnist.
3 Carmen Quintana Cocolina, „Quiéreme Bien si a Quererme Vienes“, Tiempos Pasados, Madrid:
Editorial ArtGerust, 2016; „Amor“, Homenaje a Gustavo Adolfo Bécquer, Madrid: Editorial
ArtGerust, 2015; „A una Vid Riojana“, 150 poemas homenaje a Antonio Machado, Madrid: Editorial
ArtGerust, 2014; „Poema 21“, 150 poesías homenaje a Pablo Neruda, Madrid: Editorial ArtGerust,
2014.
4 Carmen Quintana Cocolina, Lugares, Santander: El Desvelo, 2016.