Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 05.06.2015, Blaðsíða 21

Sjómannadagsblaðið - 05.06.2015, Blaðsíða 21
40 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 5. júní 2015 415. júní 2015 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Í tilefni af 60 ára afmæli Happ- drættis DAS á síðasta ári var boðið upp á þrjá íbúðarvinninga og greinilegt var að viðskipta- vinir happdrættisins kunnu vel að meta von um glæsiíbúð. Í ár tvöfaldar happdrættið íbúðafjöld- an og verður með sex nýjar íbúðir meðal vinninga, hver þeirra er að verðmæti 30 milljónir króna. Allir þeir sem eiga tvöfaldan miða í happ- drættinu geta unnið íbúð. Falli vinningurinn á einfaldan miða fær miðaeigandinn 15 milljónir króna í beinhörðum peningum. Þeir sem vinna íbúðir geta valið hvort þeir taki við húseigninni eða greiðslu upp á 30 milljónir króna. Dregið er vikulega í Happ- drætti DAS og kostar einfaldur miði 1500 krónur á mánuði en tvöfaldur miði kostar 3000 krónur. Fleiri og verðmætari vinningar Auk íbúðavinningana verða sex aðalvinningar hjá happdrættinu í ár upp á 6 milljónir hver og 40 aðalvinningar upp á 4 milljónir hver. Lægsti vinningur hækkar úr 10.000 krónum í 20.000 kórnur. Alls fjölgar vinningum um 10% milli ára og eru í ár 51.516 krónur. Heildarverðmæti vinninga er rúmulega 1,2 milljarður og er það 15% hækkun frá síðasta ári. Næsta íbúð verður dregin út 30. júlí n.k. Fyrsti útdráttur happdrættisársins fór fram þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn. Fyrsta íbúðin af sex var dregin út 28. maí s.l. en næsta íbúð verður dregin út 30. Júlí næst- komandi.. Allir vinningar í Happdrætti DAS eru skattfrjálsir og því kemur vinningsupphæði öll til greiðslu við afhendingu. Frá því að fiskurinn kemur í netið og þar til hann byrjar að snarka á pönnu meistara kokks í París þarf hann að ferðast langa leið. Fersk og viðkvæm vara eins og íslenskt sjávar fang kallar á nærgætna meðhöndlun og fag mennsku. Við hjá Samskipum bjóðum sjávar útvegs­ fyrirtækjum virðis aukandi lausnir og marg þætta þjónustu sem tryggir að varan komist til skila á hag kvæman og öruggan hátt. Við bjóðum þér meðbyr. Samskip fyrir sjávarútveginn E N N E M M / S ÍA / N M 6 7 5 2 9 www.samskip.is Saman náum við árangri Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á Sjómannadaginn KAFFIVAGNINN ehf Sigurður Ágúst Sigurðsson, forstjóri Happdrættis DAS. Nýtt happdrættisár í Happdrætti DAS hófst í maí: Sex íbúðavinningar, hver að verðmæti 30 milljónir króna Íbúðir og heilu einbýlishúsin hafa verið á vinningaskrá happdrættis DAS gegnum tíðina. Fyrsti aðalvinn- ingurinn sem dregin var út var hins vegar ný lúxusbifreið, Chervolet Bel Air, árgerð 1954. Verðmæti bílsins var kr. 100.000 krónur sem á þeim tíma var nánast þriðjungur að verðmæti raðhúsíbúðar. Það sést best á því að ári síðar var fyrsta DAS-húsið dregið út, raðhúsíbúð í Ásgarði í Reykjavík, þá að verðmæti 350.000 krónur.

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.