Skessuhorn - 26.02.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRúAR 2020 7
Skagafiskur
ný fiskverslun!
Opnum þriðjudaginn
3. mars kl. 11:00.
Hlökkum til að sjá ykkur
Skagafiskur ehf.
Kirkjubraut 40 Akranesi
Aðalfundur Rauða
krossins á Vesturlandi
verður haldinn miðvikudaginn
4. mars kl. 20:00 í húsnæði Símenntunar
á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8,
Borgarnesi.
Dagskrá sem hér segir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.1.
Skýrsla/greinargerð um starf deildarinnar.2.
Skoðaður ársreikningur lagður fram 3.
til afgreiðslu.
Framkvæmda- og fjárhagsáætlun lögð fram.4.
Kosning deildarstjórnar5.
Kosning skoðunarmanna og varamanna 6.
þeirra.
Nína Helgadóttir flytur erindið Móttaka 7.
flóttafólks – verkskipting, áskoranir,
ávinningur!
Önnur mál8.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
Frá því var greint á mánudags-
kvöld að spænsk heilbrigðisyfir-
völd hafa staðfest að ítalskur karl-
maður hefur greinst með Covid-19
veiruna á Tenerife. Maðurinn, sem
er ítalskur læknir, hafði dvalið í að
minnsta kosti eina viku á hótel-
inu H10 Costa Adeja Palace. Um
þúsund manns sem eru á hótelinu
hafa verið settir í sóttkví og þeirra
á meðal eru nokkrir Íslendingar,
enda er eyjan vinsæll dvalarstaður
Íslendinga.
Haft er eftir Þórólfi Guðnasyni
sóttvarnalækni á fréttavef Ríkisút-
varpsins í gær að þróun Covid-19
útköll sjúkraflutningamanna vegna
utanspítalaþjónustu hjá Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands voru 48 tals-
ins dagana 17. til 24. mars síðast-
liðna. Sjúkraflutningamenn frá
Akranesi sinntu 18 útköllum, tíu
voru farin frá Borgarnesi, fimm frá
Stykkishólmi og Grundarfirði og
þrjú frá Hvammstanga. Engin út-
köll voru frá Búðardal og Hólma-
vík í vikunni sem leið. Helstu verk-
efni sjúkraflutningamanna HVE í
liðinni viku fara hér á eftir.
Síðastiðið miðvikudagskvöld
voru sjúkraflutningamenn á Akra-
nesi kallaðir að hörðum fjögurra
bíla árekstri á Vesturlandsvegi,
skammt frá Skorholti í Melasveit, í
slæmri færð og skyggni. Alls voru
13 manns í bílunum, þar af fjög-
ur börn. Níu voru fluttir á HVE
á Akranesi til aðhlynningar. Þrír
sjúkrabílar voru sendir á staðinn
frá Akranesi og einn frá Borgarnesi
sem flutti fjóra óslasaða í Borgar-
nes.
Árekstur varð á Smiðjuvöllum á
Akranesi í vikunni, þar sem öku-
maður annarrar bifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild HVE. Þá voru
sjúkraflutningamenn kallaðir að
íþróttaslysi í Akraneshöll í vikunni,
þar sem knattspyrnuiðkandi hafði
slasast á fæti.
Sjúkraflutningamenn í Borgar-
nesi aðstoðuðu par sem fór í Land-
brotalaug á Snæfellsnesi í vikunni.
Parið villtist á leiðinni til baka og
fann ekki bílinn sinn og ekki laug-
ina aftur. Fólkið var kalt og blautt
og kenndi sér eymsla á fótum,
eins og sagt er frá í annarri frétt í
Skessuhorni vikunnar. Einnig voru
sjúkraflutningamenn kallaðir til
vegna bílveltu í Reykholtsdal, en
fólkið reyndist óslasað.
Fangi stakk annan fanga í lærið
með eggvopni á Kvíabryggju síðast-
liðinn fimmtudag. Að sögn lögreglu
var árásin alvarleg, eins og sagt er
frá í annarri frétt í blaðinu. Sjúkra-
flutningamenn frá Grundarfirði
voru kallaðir til og komu þolanda
árásarinnar undir læknishendur.
Sjúkraflutningamenn í Ólafsvík
voru kallaðir til eftir að einstak-
lingur féll úr stiga á heimili sínu.
Reyndist viðkomandi hafa hlotið
áverka á fæti.
Harður árekstur tveggja fólksbif-
reiða varð á þjóðvegi 1 við Stóru-
Giljá í Austur-Húnavatnssýslu
mánudaginn 17. febrúar. Fjórir
voru í öðrum bílnum og tveir í hin-
um. Sjúkraflutningamenn á starfs-
stöð HVE á Hvammstanga fluttu
allt fólkið á Blönduós til aðhlynn-
ingar og síðan voru þrír fluttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á Land-
spítalann í Reykjavík. kgk
Atvinnu,- markaðs- og menning-
armálanefnd Borgarbyggðar stóð í
gærmorgun fyrir fyrirtækjaþingi sem
haldið var í Hjálmakletti í Borgar-
nesi. Yfirskrift þess var: „Samtal við
atvinnulífið,“ en markmið þess var
að stuðla að opinni umræðu um at-
vinnumál og atvinnuuppbyggingu í
sveitarfélaginu og greina sóknarfæri.
Það var markaðsfyrirtækið Manhatt-
an marketing sem stýrði fundinum,
en fyrirtækið vinnur ásamt markaðs-
nefndinni að mótun stefnu sveitar-
félagsins í markaðsmálum.
„Það er gaman að sjá hversu
margir atvinnurekendur frá fjöl-
breyttri flóru fyrirtækja sáu sér fært
að mæta og leggja sitt lóð á vogar-
skálina,“ segir Lilja Björg Ágústs-
dóttir sveitarstjóri í samtali við
Skessuhorn. „Með samtali af þessu
tagi teljum við að nýta megi sem
best samlegð á milli fyrirtækja og
sveitarfélagsins þannig að saman
getum við stuðlað að áframhald-
andi farsælli uppbyggingu í Borg-
arbyggð,“ segir Lilja.
mm/ Ljósm. lbá
Umferðarslys og stunguárás
Fjölbreytt verkefni sjúkraflutningamanna í vikunni
Frá vettvangi bílslyss við Stóru-Giljá í
Austur Húnavatnssýslu á mánudag í
liðinni viku. Ljósm. HVE.
Hótel H10 Costa Adeja Palace á
Tenerife.
Covid19 veiran greindist á Tenerife
veirunnar sé síbreytileg en nú sé
um heimsfaraldur að ræða. Þór-
ólfur segir að líkur séu á að veiran
muni berast víðar um Evrópu sem
og hingað til lands.
mm
Tóku samtal atvinnulífs
og sveitarfélags