Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2020, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 11.03.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2020 21 SK ES SU H O R N 2 02 0 Samþykkt deiliskipulags fyrir Skógarhverfi 4. áfanga á Akranesi. Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 25. febrúar 2020 deiliskipulag fyrir Skógarhverfi 4. áfanga. Tillagan var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að útfærsla gatnamóta Ketils- flatar og Þjóðbrautar verði óháð þessu deiliskipulagi. Lagfær- ingar eiga ekki við efnisatriði deiliskipulagsins eða hagsmuni annarra en Akraneskaupstaðar. Lagfæringar felast í eftirfarandi: Skipulagssvæðið er minnkað verður 2.12 ha í stað 2.25 ha. Lóð nr. 1 er minnkuð um 38 fermetra á vesturhorni. Nýtingarhlutfall er hækkað í 0.54 til að halda sama byggingamagni. Tölur í greinargerð eru uppfærðar til samræmis við breytt flatarmál skipulagssvæðis og lóðar. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt deiliskipulags fyrir Skógarhverfi áfangi 3B Akraneskaupstaður Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 25. febrúar 2020 deiliskipulag fyrir Skógarhverfi áfanga 3B. Tillagan var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að byggingarreitur skólabygg- ingar er minnkaður, byggingarreitur fyrir einnar hæðar bygg- ingu er felldur út. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipu- lagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs Hvernig hefur þjónusta bæjarins reynst þér? Segðu okkur sögu/lýsingu af reynslu þinni af þjónustu Akraneskaupstaðar, hvað er til fyrirmyndar og hvað má betur fara? Akraneskaupstaður hefur ráðist í verkefni, í samstarfi við Capacent, sem miðar að því að bæta þjónustu og skilvirkni í rekstri og starfsemi sveitarfélagsins. Þín skoðun, reynsla og upplifun skiptir okkur máli! Sjá nánar á www.akranes.is/abendingagatt SK ES SU H O R N 2 02 0 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Áran, íslensku árangursverðlaunin í markaðssetningu, var afhent í lið- inni viku. Verðlaunin hlaut Arion banki fyrir herferðina Arion appið – þægilegri bankaþjónusta. Árang- ursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita þau. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir Arion appsins eru kynntir og þær fjölmörgu aðgerðir sem hægt er að framkvæma í því viðskiptavinum til þæginda. Sem dæmi má nefna, greiðsludreifingu kredikorta, tryggingar frá Verði, núlán, fjár- málin mín þar sem viðskiptavinir hafa fulla yfirsýn yfir tekjur og út- gjaldaliði, stofnun sparnaðarreikn- inga og opnun appsins fyrir yfirlit yfir reikninga frá Íslandsbanka og Landsbanka. mm Það var nóg að gera hjá BB og son- um á síðasta fimmtudag við bíla- björgun. Við Köldukvísl á Vatna- leið varð umferðaróhapp um morg- uninn þar sem bíll festist í skafli auk þess að vera ekið utan í vegr- ið. Seinna um daginn skullu sam- an tveir bílar sem voru að koma úr gagnstæðri átt. Var áreksturinn svo harður að báðir bílarnir voru óökuhæfir og þurfti tvo kranabíla til að fjarlægja þá. Þegar búið var að fjarlægja þá, og snjómokstursbíll var að fara að hreinsa veginn, vildi ekki betur til en svo að einn öku- maður tók framúr og ók beint inn í skaflinn og festi bíl sinn þar. Þeg- ar búið var að losa hann og lagt af stað heim á leið kom útkall vegna rútu sem hafði fokið út af í Staðar- sveitinni. Var þá sú ákvörðun tek- in að fara með báða kranabíla BB Nú á tímum veiru og alls kyns vol- æðis ber matvælaöryggi oftar á góma. Dæmi eru um að fólk sé farið að birgja sig upp af mat; niðursoðn- um, frystum auk þurrvöru. Þessir þrír félagar í Borgarnesi höfðu þó annan háttinn á. Þeir drifu sig út í góða veðrið um liðna helgi og tóku til við að svíða lappir. Þar sem at- hæfið rataði á fésbók uppskáru þeir bæði lof fyrir framtakssemina en einnig háð. Margir eru aldir upp við að borða sviðalappir, súrar eða nýsoðnar, meðan aðrir líta á þetta sem gagnslitna aðgerð út frá mann- eldissjónarmiðum. Bentu jafnvel á að fljótlegra væri að biðja um mat- araðstoð hjá kirkjunni. Á þessu væri jú lítill sem enginn matur. Hvort sem menn eru með eða á móti handverki af þessu tagi er ekkert nema sjálfsagt að menn njóti sam- vista og geri eitthvað skemmtilegt saman. Sviðalappasvíðingar geta tvímælalaust flokkast undir það. Á myndinni eru Fúsi, Sigurður Frið- geir og Vífill. mm/ Ljósm gae Sviðalappasvíðingar BB og synir komu vegfarendum til aðstoðar og sona þangað til að koma rútunni upp á veg að nýju. Gekk það nokk- uð greiðlega fyrir utan óhapp sem varð til þess að rútan varð óökuhæf svo skilja varð hana eftir. Kom þá önnur rúta og sótti farþegana. Eins og sést á myndinni sem Sigurjón Hilmarsson tók var veðrið ekki upp á sitt besta; rok og hálka. þa Arion banki hlaut árangursverðlaun

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.