Skessuhorn


Skessuhorn - 07.04.2020, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 07.04.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 202012 Eftir að kórónaveiran nam hér land hefur verið í mörg horn að líta hjá embættis- og ráðamönnum. Und- ir ráðuneyti félags- og barnamála eru málaflokkar sem taka stökk- breytingum í umfangi þegar á bját- ar, svo sem félagsmál, húsnæðis- mál og ekki síst vinnumarkaðs- málin. Ásmundur Einar Daðason er félags- og barnamálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við Ásmund Einar í síma undir lok vik- unnar. Hann segir að eftir að Co- vid-19 veiran barst til landsins hafi öllum verkefnum á málasviði ráðu- neytis hans, sem ekki snúa beint að viðbrögðum vegna veirunnar, verið ýtt til hliðar. Nú sé auk þess þannig komið að sáralítil starfsemi fer fram í ráðuneytinu sjálfu, heldur vinn- ur starfsfólk þess heima en heldur reglulega síma- og fjarfundi. Rík- isstjórnarfundir eru hins vegar enn haldnir með óbreyttu sniði þannig að ráðherrar koma saman. Rætt er við Ásmund Einar um helstu áskor- anir í ráðuneyti hans á tímum Co- vid-19. Vinnumarkaðsmál, barna- vernd, félagsþjónusta og sitthvað fleira sem snýr að velferð lands- manna ber á góma. Fjórða iðnbyltingin á ógnarhraða „Við vinnum mest heima hjá okkur og höfum tileinkað okkur þá tækni sem í boði er, guði sé lof fyrir hana. Ég skipulegg mig því þannig að ég vinn mest frá heimili mínu í Borg- arnesi, en fer suður þegar ríkis- stjórnin kemur saman eða til að fara í viðtöl í fjölmiðlum. Það má því segja að það sé að eiga sér stað já- kvætt en bratt skref í fjarfundum og tæknilausnum sem vafalítið á eftir að gjörbreyta til framtíðar öllu fyr- irkomulagi funda og ráðstefna hér á landi. Við erum má segja þving- uð inn í þetta umhverfi, sem síðan kemur í ljós að er að reynast prýði- lega,“ segir Ásmundur og tekur þannig undir orð blaðamanns um að hin svokallað fjórða iðnbylting sé að eiga sér stað á ógnarhraða. Gott að öskra úr sér lungun! Ásmundur segir að í Borgarnesi, eins og víðast hvar annars staðar, séu fáir á ferli og þar sé merkjanleg mikil breyting á öllu mannlífi. „Hér eru fáir á ferli, margir í sóttkví, enda stakk veiran sér hér niður í samfé- laginu. En þessi hæga hreyfing á mannlífinu hefur ýmsar hliðarverk- anir. Maður sér það meira að segja á Vísa kortinu að eyðslan er ekk- ert önnur en brýnustu innkaup til heimilisins og eldsneyti á bílinn.“ Ásmundur Einar hefur sjálfur ver- ið í stjórn körfuboltans í Borgarnesi og segist persónulega sakna þess hvað mest að nú liggur karfan niðri vegna samkomubannsins. „Nú get- ur maður ekki mætt á körfubolta- völlinn og fengið útrás í hvatningu á sínu fólki. Það hefur verið fastur liður að getað öskrað úr sér lungun, en hreinsað um leið hugann fyrir önnur og meira krefjandi verkefni.“ En við færum talið nú að helstu verkefnum sem félags- og barna- málaráðherra tekst á við þessa dag- ana, á tímum Covid-19. Hlutabætur strax í boði Fyrst að atvinnumálum. Ásmund- ur Einar segir að stjórnvöld hafi ákveðið að bregðast hratt við þegar sýnt þótti að ferðaþjónustan myndi gjalda afhroð. „Við vorum á viss- an hátt búin undir verulegt bakslag á vinnumarkaði. Það má segja að fall WOW fyrir ári hafi gefið tón- inn hvað það snerti. Þá snarjókst atvinnuleysið en um leið varð til reynsla um hvernig bregðast á við í slíkum aðstæðum. Nú eftir ára- mótin voru allir farnir að vona að vinnumarkaðurinn myndi rétta úr kútnum með vorinu, atvinnustig- ið var tekið að rísa, þegar Covid-19 svo skellur á af öllu afli. Mesta bak- slagið varð þegar Bandaríkin lok- uðu og reyndar í kjölfarið smám saman mörg önnur lönd. Stjórnvöld hér heima höfðu fyrr í vetur ákveð- ið að setja aðgerðaplan í gang um komandi páska til að bæta atvinnu- ástandið og vorum því að vissu leyti búin að vinna ákveðna heimavinnu þegar áfallið svo reið yfir. Með sam- stilltu átaki tókst því að koma með hraði í gegn frumvarpi um hluta- bætur sem einkum á að geta komið ferðaþjónustufyrirtækjum til góða, en einnig fjölmörgum öðrum fyrir- tækjum sem verða fyrir skyndilegu tekjufalli. Við höfðum einfaldlega áhyggjur af að ef ekki yrði brugð- ist skjótt við myndi ferðaþjónustan hér á landi nánast þurrkast út. Það tæki hana misseri eða jafnvel mörg ár að koma sér í gang að nýju. Það var því nauðsynlegt að stjórnvöld gripu strax inní með kröftugum hætti og gátu með aðgerðum stutt atvinnugreinina og öll þau fyrirtæki sem henni tengjast. Þetta ástand hefur nefnilega allsstaðar áhrif. Ég nefni verslun, veitingar, gistiþjón- ustu, bílaleigur, flutninga, störf sem tengjast fluginu og svo framvegis. Nú sjáum við að tölur um ferða- mennsku í apríl og maí verða nán- ast núll og kannski verður einhver hreyfing komin á ferðalög í júní. Þannig lít ég á ástandið sem tíma- bundið og úr fari að rætast þegar líður á árið. Við viljum umfram allt ekki missa fólk úr störfum þannig að greinin geti risið hratt að nýju. Þannig erum við með hlutabótum að brúa bilið,“ segir ráðherrann. Fimmtungur mun þiggja bætur „Mér sýnist hafa verið tekið vel í þetta úrræði um hlutabætur, en auðvitað erum við einnig að sjá uppsagnir fólks í fyrirtækjum. Nú eru komnar 25-30 þúsund umsókn- ir um hlutabætur en með þessu inn- gripi er ég sannfærður um að dreg- ið hafi verið úr varanlegu atvinnu- leysi sem miklu lengri tíma hefði tekið að vinna niður, ef ekki hefði komið til þetta úrræði.“ Hann bæt- ir því við að áætlað sé að á bilinu 50 til 60 milljarðar króna verði greidd- ir úr ríkissjóði og að upp undir 20% þeirra sem eru á vinnumarkaði fái Öllu ýtt til hliðar til að sinna verkefnum sem snerta heimsfaraldurinn „Þegar stoðkerfið lamast þarf að bregðast við“ Prófílmynd af Facebooksíðu Ásmundar Einars. „Við erum öll almannavarnir.“ Sáralítil starfsemi er innan veggja félagsmálaráðuneytisins heldur vinnur starfsfólk heima og hefur samskipti um tölvur og síma. Ráðherra er þar ekki undantekning, en ennþá kemur þó ríkisstjórnin saman á fundum. Hér er svipmynd af heimaskrifstofu ráðherrans.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.