Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 15 Lífið í Covid 19 stundum sé bara málið að horfa í kringum sig og nýta það sem maður hefur áður en maður þeytist um landið þvert og endi- langt til að sjá sólina, sem er bara hér handan við hornið. Við lærum kannski bara þakklæti,“ segir Katrín. Birna Rún hefur ekkert verið í skólanum síðan samkomub- ann var sett á og segir Katrín það hafa gengið mjög vel hjá henni að læra í fjarnámi. „Hún er að standa sig rosalega vel en maður hefur áhyggjur af félagslega hlutanum. Hún er ekki mikil símatýpa og vill mikið frekar vera að gera eitthvað en hún fær að hitta tvær til þrjár vinkonur og það bjargar miklu. Svo eru krakkarnir duglegir að nota þessa miðla alla til að tala saman, sem er alveg nauðsynlegt. Jákvæði punkturinn við þetta er samt að þegar þetta allt verður gengið yfir hafa krakk- arnir fengið reynslu í fjarnámi og ég er viss um að það sé rosa- lega góður undirbúningur fyrir þau út í lífið, fyrir áframhald- andi nám. Það er vissulega hellings lærdómur í því að vera í fjarnámi en þau eru algjörir snillingar í þessu,“ segir Katrín Laufey Helga Árnadóttir í Snæfellsbæ Reynir að hugsa sem minnst um það sem ekki er hægt að gera „Við höfum sloppið mjög vel,“ svarar Laufey spurð hvort kór- ónufaraldurinn hafi haft mikil áhrif á líf hennar. Laufey starf- ar á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar og segir að þar sé búið að takmarka allar heimsóknir þeirra sem ekki þurfa að koma og að gætt sé vel að öllum smitvörnum. Laufey var einnig að taka við sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Snæfellsbæ og segir þetta frekar undarlegan tíma til að taka við því starfi. „Það er vissulega engin starfsemi í íþróttahúsinu, sundlauginni og öllu því. Það er sérstakt að koma inn í þetta starf á þessum tíma en ég hlakka til þegar þetta verður yfirstaðið,“ segir hún jákvæð. Laufey segir ástandið hafa mest áhrif á börnin hennar og að sjálf taki hún þessu ástandi bara með ró. „Skólastarfið er skert hjá börnunum mínum og það eru engar æfingar eða neitt slíkt eftir skóla. Ég sé alveg hvað þetta getur verið erfitt fyrir þau og vissulega er þetta ekkert auðvelt fyrir mig heldur, ég get ekki farið í Sólarsport og æft, hitti ekki foreldra mína sem ég hitti alla jafna á hverjum degi. pabbi er með undirliggjandi sjúkdóm svo maður er ekki að taka neina áhættu þar og svo er mamma að vinna á dvalarheimilinu og þarf því sömuleiðis að passa sig vel.“ Laufey segist bara reyna að hlýða þeim fyrirmælum sem hafa verið gefin og ekki hugsa of mikið um allt það sem hún og fjölskyldan getur ekki gert. „Þetta hefur engin afgerandi áhrif en ég viðurkenni alveg að þetta verður erfiðara sem á líður. Við hefðum átt að vera að ferma í maí en það hefur verið blásið af og svo vorum við búin að kaupa fermingar- gjöfina sem var ferð til London á fótboltaleik 1. maí, sem aug- ljóslega verður ekkert af. Þetta er alveg fúlt en á meðan þetta eru einu áhrifin sem þessi faraldur hefur á okkur getur maður ekki kvartað,“ segir Laufey og bætir við að henni þykir mikil- vægt að hugsa jákvætt í þessu ástandi. „Ellefu ára dóttir mín sagði við mig um daginn í einni fjöruferð að henni þætti þetta ástand leiðinlegt en að hún væri samt ánægð hvað fjölskyldan eyðir miklum tíma saman. Það er alveg rétt og svona á maður að hugsa þetta. Ég held líka að þessi faraldur hægi aðeins á fólki og að við áttum okkur á að við þurfum kannski ekki alltaf að vera að gera svona mikið, alltaf með dagskrá og brjálað að gera. Varðandi vinnuna mína sé ég líka fyrir mér að eftir þetta verði meira um fjarfundi,“ segir Laufey. „Ég geri mér samt grein fyrir því að hér í Snæfellsbæ er bara eitt greint smit svo við erum heppin hér. Kannski væri hljóðið annað ef við vær- um að glíma við hópsmit hér eða eitthvað slíkt. En á meðan þetta er svona reyni ég að halda í jákvæðnina,“ segir Laufey að endingu. Ólafur Fannar Guðbjörnsson í Snæfellsbæ Breytti stofunni í leikvöll Hjá Ólafi hefur dag- legt líf lítið breyst í kórónufaraldrinum. „Ég mæti enn í vinn- una en ég er að vinna í Smiðjunni, vinnustað fyrir fólk með skerta starfsgetu, og þar er í raun eina breytingin sú að engin utanaðkom- andi fær að koma inn en alla jafna erum við með opið,“ segir Ólaf- ur. Sjálfur er hann með þrjú börn, eitt í leik- skóla, annað í grunn- skóla og það þriðja átta mánaða. „Þessi á leik- skólanum fer bara ann- an hvern dag og strákurinn minn er kominn heim úr skólan- um fyrir hádegi svo það er töluverð breyting fyrir þau núna. En við gerum bara það besta úr þessu. Frúnni datt í hug og breytti stofunni, tók allt út og keypti rennibraut þangað inn og setti upp tjald og leikmottu og gerði bara leikvöll inni svo þau hafa það alveg fínt,“ segir Ólafur. Aðspurður segist hann vona að eitthvað jákvætt komi út úr þessu þegar upp verður staðið. „Ég ef lítið pælt í því hvaða áhrif þetta muni hafa en ég vona að það verði líka jákvæð áhrif. Ég sé til dæmis fyrir mér að þetta fái fólk til að hugsa betur um heilsuna, að mæta til dæmis ekki í vinnu þegar það er veikt, sem ég hef sjálfur oft gerst sekur um,“ segir hann. Erla Gísladóttir í Stykkishólmi Reynir að halda í bjartsýnina Erla er í sjálfskipaðri sóttkví þar sem hún vinnur á hjúkrunar- heimilinu í Stykkis- hólmi. „Ég þarf að passa mig vel því ég vil ekki bera smit í vinn- una mína. Ég geri því lítið annað en að fara í vinnu, út að ganga og heim,“ segir hún og bætir við að álag- ið í vinnunni hafi líka aukist í þessum far- aldri. „Ég vinn meira en venjulega og svo er alltaf yfirvofandi aukið álag ef svo má segja. Maður er búinn undir það að álagið gæti aukist allt í einu, en það eru allir hér að passa sig eins og hægt er. Ég sakna vissulega barnanna minna og barnabarna en ég er dugleg að heyra í þeim í síma og maður verður bara að reyna að gera það besta úr þessu,“ seg- ir Erla. Hún og fjölskyldan ætlaði öll að hittast um páskana en ekkert varð úr því. „Svo ætlaði ég í fermingarveislur og svoleiðis en það bíður bara.“ Erla segist ekki sjálf óttast að veikjast en að hún sé hrædd við hvað gæti gerst ef heim- ilisfólkið á hjúkrunarheimilinu fær veiruna. „Ég reyni bara að halda í bjartsýnina og jákvæðnina, það er það eina sem maður getur gert. Svo fer vorið að koma og þá getur maður meira verið úti og það heldur mér jákvæðri,“ segir hún. Að- spurð segist Erla viss um að hægt og rólega komi eitthvað já- kvætt úr þessu öllu. „Það var orðin ansi mikill hraði í samfé- laginu, eiginlega bara geggjun eins og fyrir hrunið og manni var eiginlega farið að blöskra. Ég held að þetta fái okkur til að hægja aðeins á aftur. Ég vona bara að þegar upp er staðið hafi þetta jákvæð áhrif á líf sem flestra og að fólk átti sig á að það er ekki allt fengið með hraða og látum,“ segir Erla. Helga Kristín Bjarnadóttir á Akranesi „Þetta gæti orðið til þess að fjöl- skyldur verji meiri tíma saman“ „Þetta hefur í raun ekki haft mikil áhrif á mig og mína fjöl- skyldu,“ svarar Helga spurð um áhrif kórónuveirunnar á hennar daglega líf. „Ég er sjálf ekki að vinna og tók því bara litla barn- ið mitt úr leikskólanum og er með hann heima,“ segir Helga en hún er með tvö börn, einn þriggja ára og annan sjö ára. „Auð vitað get- ur þetta samt alveg tekið á og ég finn það líka á drengj- unum að þetta er erfitt fyr- ir þá. En við erum bara dugleg að fara út í göngutúra og að gera eitthvað sam- an hér heima.“ Eldri sonur Helgu er hjá henni og pabba sín- um til skiptis í viku og viku og segir hún þær vikur sem hann sé hjá henni reyni hún að halda reglu á heimalærdómi en ann- ars taki þau bara einn dag í einu. „Þessi yngri er mjög þægi- legur og það þarf í raun ekkert svo mikla dagskrá fyrir hann, bara fara með hann út á hverjum degi og þá er þetta ekkert mál,“ segir Helga jákvæð. „Auðvitað er maður alveg stress- aður líka, að fá þessa veiru eða einhver nákominn manni. En við pössum okkur eins og hægt er, förum eins lítið í búð og við getum, hlýðum Víði og gerum eins og okkur er sagt. Þeg- ar upp er staðið held ég að þetta geti orðið til þess að fjöl- skyldur eyði meiri tíma saman og rækti betur tengslin,“ segir Helga að lokum. Hilmar Sigvaldason á Akranesi Kenndi foreldrum sínum á fjarfundabúnað Hilmar er vitavörður í Akranesvita og hefur vinnustað hans verið lokað á meðan samkomubanni stendur. „Ég reyni að vinna heima svona það sem ég get en annars reyni ég að láta þetta ástand hafa sem minnst áhrif á mig. Vissulega er þetta erfitt samt, svona andlega, að geta bara heimsótt fólk úr tveggja metra fjarlægð. Þetta er sérstaklega erfitt með for- eldra mína sem ég er vanur að heimsækja alla daga en ég kíki bara á pallinn til þeirra núna. Maður gerir bara það sem mað- ur getur,“ segir Hilmar og bætir við að hann hafi náð að kenna foreldrum sínum á fjarfundabúnað svo þau geti verið í betra sambandi við fólkið sitt. „Ég er ótrúlega stoltur af því að hafa náð að kenna þeim á þetta, fólki á níræðisaldri,“ segir Hilm- ar og hlær. Þegar kórónufaraldurinn hefur gengið yfir von- ar Hilmar að græðgi í samfélaginu, og heiminum öllum, hafi minnkað og fólk áttað sig á því sem raunverulega skipti máli. „Ég vona líka að við hugsum meira um að versla innlenda framleiðslu og lífrænt,“ segir Hilmar. „Við þurfum að styrkja stöðu bænda á Íslandi. Það þykir voða flott að flytja inn útlent kjöt og svona, en til hvers? Við þurfum að hætta þessu rugli og gæta að innlendri framleiðslu, við erum líka með mikið hreinni framleiðslu hér á Íslandi en víðast erlendis. Hér er minnst gefið af sýklalyfjum, hér er hreinasta orkan og hrein- asta vatnið og það gefur okkur besta matinn, við þurfum bara að átta okkur á því. Hingað koma ferðamenn til að sjá og upp- lifa þessa hluti sem okkur sjálfum þykir svo sjálfsagðir og bara ekkert varið í. Ég vona líka að við förum að ferðast meira um landið okkar frekar en að þvælast alltaf til útlanda. Það þyk- ir voða flott að hafa komið hingað og þangað um heiminn en hafa svo kannski ekki farið út í Grímsey eða bara varla út fyrir heimabæinn,“ segir Hilmar og bætir við að þegar kórónufar- aldurinn hafi liðið hjá voni hann að fólk hugsi betur um jörð- ina og alla þá hluti sem raunverulega skipti máli og hætti að keppast við einhver lífsgæði sem skipti ekki máli. „Vonandi gerum við okkur betur grein fyrir því hvað við erum öll mik- ilvæg hvert öðru. Við erum öll mikilvæg í lífskeðjunni sama hver menntun okkar er.“

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.