Bændablaðið - 17.12.2020, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202016
Síðasta fiskveiðiár verður seint
talið mikið aflaár í íslenskum
sjávarútvegi. Veiðin losaði rétt
um milljón tonn. Uppsjávarafli
hefur dregist mikið saman vegna
lítillar loðnuveiði. Aflahæsta
skipið í flotanum er Börkur NK.
Nýlega birti Fiskistofa yfirlit um
veiðar á fiskveiðiárinu 2019/2020.
Heildaraflinn var rúmlega 1.011
þúsund tonn og minnkaði frá
fyrra ári um 7,3%. Síðustu fimm
fiskveiðiár hefur aflinn verið frá
rúmlega milljón tonnum á ári upp
í tæpar 1,3 milljónir tonna.
Mestur ársafli rúmar
tvær milljónir tonna
Fiskveiðiárið byrjar 1. septem
ber og lýkur 31. ágúst árið eftir.
Fiskistofa miðar sína samantekt um
afla við fiskveiðiár en upplýsingar
á vef Hagstofunnar, sem einnig er
vitnað til hér, taka einkum mið af
almanaksárinu. Það skiptir þó ekki
öllu máli hvort miðað er við fisk
veiðiár eða almanaksár þegar litið
er á aflatölur í sögulegu samhengi.
Frá almanaksárinu 1975 hefur
heildarafli íslenskra skipa verið á
bilinu 1,5 til tvær milljónir tonna
flest árin samkvæmt upplýsingum á
vef Hagstofunnar. Á árabilinu 1996
til 2003 fór aflinn sex sinnum yfir
tvær milljónir tonna á ári. Mestur
varð aflinn 2.225 þúsund tonn árið
1997. Af þessu má sjá að milljón
tonna afli er ekki mikill í saman
burði við það sem áður var.
Þess má geta að almanaksárið
2018 var Ísland í 19. sæti yfir fisk
veiðiþjóðir heims en afli okkar þá
var tæpar 1,3 milljónir tonna.
Í yfirliti Fiskistofu um fiskveiði
árið 2019/2020 er aflanum skipt í
þrjá flokka: botnfisk, uppsjávarfisk
og skel og krabba. Verður fjallað
um hvern flokk hér á eftir.
Minni botnfiskur
en aukning í þorski
Botnfiskaflinn á síðasta fiskveiði
ári nam 483 þúsund tonnum og
dróst saman um 30 þúsund tonn
milli ára, sem sjá má í meðfylgj
andi töflu.
Þorskur er sem fyrr lang mikil
vægasta botnfisk tegundin. Alls
veiddust 278.503 tonn af þorski, að
Barentshafsþorski meðtöldum, sem
eru um 57% af heildarbotnfiskafla.
Þorskaflinn jókst um 3 þúsund
tonn milli fiskveiðiára en ýsuafl
inn minnkaði um 11 þúsund tonn.
Mikill samdráttur varð einnig í
veiðum á ufsa, gullkarfa og stein
bít.
Flatfiskar eru taldir með botn
fiskum í þessari samantekt.
Svipaður afli er milli ára í flatfisk
tegundum eins og grálúðu og skar
kola en annar flatfiskafli hefur
dregist saman.
Minnsti afli uppsjávarfisks
í áratugi
Síðustu ár og áratugi hafa orðið
miklar sveiflur í afla uppsjávar
fiska sem sjá má í meðfylgjandi
skýringar mynd sem byggð er á
gögnum frá Fiskistofu. Um er að
ræða fimm fisktegundir: norskís
lenska síld, íslenska síld, loðnu,
kolmunna og makríl. Aflinn
hefur sveiflast í flestum þessum
tegundum, þó mest í loðnu. Ólíkt
botnfiskum miðast kvóti flestra
uppsjávartegunda við alman
akasárið.
Uppsjávaraflinn síðasta fisk
veiði ár var tæp 520 þúsund tonn
og dróst saman um 48 þúsund tonn
milli ára. Aflinn jókst aðeins í einni
tegund, norskíslensku síldinni.
Frá fiskveiðiárinu 1992/1993
hefur uppsjávaraflinn aldrei verið
jafnlítill og á síðasta ári. Fram til
2004/2005 var aflinn yfir millj
ón tonn á ári að einu fiskveiðiári
undanskyldu. Mestur varð hann
árið 2001/2002 samtals rúmar
1,6 milljónir tonna. Síðustu árin
hefur sigið á ógæfuhliðina en til
koma makríls hefur vegið að hluta
til upp á móti samdrætti í öðrum
tegundum.
Mikið í húfi
Heildarafli íslenskra skipa ræðst
mikið af loðnuveiðinni eins og
áður er vikið að. Vegna hlýnunar
sjávar hefur dreifing loðnu breyst,
bæði ungloðnu og kynþroska
loðnu á fæðuslóð. Hún hefur
ekki fundist í sama mæli og áður,
hvorki í mælingum á ungloðnu,
fullorðinni loðnu á fæðuslóð né
loðnu í hefðbundinni hrygningar
göngu.
Lengst af eða fram til 2005
var loðnuaflinn flest árin frá
500 þúsund tonnum og upp í
eina milljón tonna á ári. Þrisvar
sinnum hefur aflinn verið meiri
en milljón tonn, fór mest í rúmar
1,3 milljónir tonna almanaksárið
1996.
Frá árinu 2005 hefur aflinn hins
vegar aðeins einu sinni farið yfir
500 þúsund tonn en það var árið
2012. Flest árin frá 2006 hefur afl
inn verið undir 200 þúsund tonn
um. Síðustu tvö árin hefur verið
loðnubrestur.
Allt kapp hefur nú verið lagt á
að mæla loðnustofninn í þeirri von
að nógu mikið finnist til að unnt
verði að gefa út kvóta svo uppsjáv
arskipin geti haldið til veiða. Mikið
er í húfi því þokkaleg loðnuvertíð
getur skilað allt að 30 milljörðum
króna í útflutningstekjur í þjóðar
búið.
Humar og skelfiskur,
fátt um fína drætti
Veiðar á rækju og humri voru lengi
vel snar þáttur í afla og aflaverð
mæti íslenskra skipa. Nú er fátt um
fína drætti í þessum flokki.
Humarstofninn hefur hrunið.
Veiðar á humri eru nú aðeins leyfð
ar til að ná í sýnishorn af tegund
inni til að fylgjast með stærðar
samsetningu og dreifingu.
Rækjustofnar, bæði innfjarð
ar og í úthafinu, hafa skroppið
verulega saman. Á síðasta fisk
veiðiári var rækjuafli aðeins um
2.800 tonn. Mestur varð rækjuafli
íslenskra skipa, jafnt innan lög
sögu sem utan, samanlagt tæp 90
þúsund tonn árið 1996.
Aflahæstu skip
Fjöldi skipa af öllum stærðum
og gerðum stendur á bak við
veiðarnar ár hvert. Aflinn skipt
ist misjafnlega niður á þau eins
og við er að búast og ræðst það
af kvóta þeirra, afkastagetu og
áhöfn. Til fróðleiks verða hér
nefnd aflahæstu skip á fiskveiði
árinu í þremur tegundum skipa
og báta, þ.e. í flokki skuttogara,
uppsjávarskipa og smábáta.
Aflahæsta uppsjávarskipið
á fiskveiðiárinu er Börkur NK,
sem Síldarvinnslan í Neskaupstað
gerir út, með samtals 44.505 tonn.
Börkur er jafnframt aflahæsta
skipið í flotanum. Rétt á eftir Berki
kemur uppsjávarskipið Venus NK,
sem Brim gerir út, með 43.966
tonn. Aflahæstu uppsjávarskipin
veiddu að sjálfsögðu mun meira
hér á árum áður þegar veiðiheim
ildir voru rýmri en nú er.
Aflahæsti skuttogarinn síðast
liðið fiskveiðiár er frystitogar
inn Sólberg ÓF sem Rammi í
Fjallabyggð gerir út. Skipið veiddi
samtals 13.127 tonn, 9.835 tonn í
íslenskri landhelgi og 3.292 tonn
í Barentshafi. Enginn íslenskur
togari hefur komið með jafnmikinn
botnfiskafla að landi á einu ári og
Sólbergið samkvæmt upplýsingum
frá umsjónarmanni fréttasíðunnar
aflafrettir.is.
Aflahæsti smábáturinn á
fiskveið i árinu er Sandfell SU sem
Loðnu vinnslan á Fáskrúðs firði
gerir út. Hann er um 30 tonn að
stærð og veiðir í króka aflamarks
kerfinu. Afli hans er 2.371 tonn
og aflaverðmætið 615 milljónir
króna.
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Nefið á Grýlu er stórt og
hlykkjótt og úr vitum hennar
kemur helblá gufa og þar að
auki er hún mannæta eins og
önnur tröll og óþekk börn eru
eftirlætismatur hennar en hún
er lítið gefin fyrir fisk, súpur,
salat og grauta. Mestur tími
Grýlu fer í að afla matar handa
sér og fjölskyldu sinni.
Kerlingarskarið hefur búið
með þremur tröllkörlum í gegn
um tíðina og heitir núverandi
bóndi hennar Leppalúði. Hinir
tveir hétu Boli og Gustur og átti
hún tæplega áttatíu börn með
þeim. Þekktust þeirra eru jóla
sveinarnir. Leppalúði átti einn
son, Skrögg, áður en hann hóf
sambúð með Grýlu og tók hún
Skrögg í fóstur.
Grýla er ævagömul kerling og
nefnd meðal tröllkvenna í Snorra
Eddu en hún er ekki bendluð
við jólin fyrr en í kvæði frá 17.
öld. Kerlingunni er lýst sem
fullkominni andstæðu kvenlegrar
fegurðar og Leppalúði þykir ekki
heldur mikið fyrir augað.
Grýla er með úlfgrátt hár og
svartar brúnir, með tennur eins og
ofnbrunnið grjót, klær og hófa,
kjaftstór, með vígtennur og horn.
Hún er með augu í hnakkanum
og í þeim logar eldur, eyrun ná
langt út á axlir, nefið er stórt og
hlykkjótt og úr vitum hennar
kemur helblá gufa. Sögur um
Grýlu eru fremur fáar en því
meira er fjallað um hana í kvæð
um og þulum.
Kerlingin á sér hliðstæðu í
Færeyjum, á Shetlandseyjum
og víðar. Í Færeyjum er Grýlu
lýst sem gamalli og ljótri kerl
ingu sem líkist gamalli rollu sem
gengur upprétt á tveimur fótum.
Á Shetlandseyjum þekkist tröll
kerling sem kallast Skekla og
er hún á ýmsan hátt lík Grýlu í
háttum. Skekla kemur ríðandi til
byggða á svörtum hesti með hvíta
stjörnu í enni, hesturinn er með
fimmtán tögl og á hverju tagli
hanga fimmtán börn.
Í gömlum kvæðum er Grýlu
lýst sem beiningakerlingu sem
fer á milli bæja og biður foreldr
ana að gefa sér óþekku börnin en
hörfar ef henni er rétt eitthvert
matarkyns eða er rekin burt með
látum. Kerlingin hefur lengi
verið notuð sem barnafæla og
flestir hafa einhvern tíma verið
hræddir með Grýlu gömlu.
Í seinni tíma frásögnum hefur
Grýla tekið upp fasta búsetu og
býr í helli, fjarri mannabyggðum.
Þegar hér er komið sögu fer allur
tími hennar í að sjóða mat í stór
um potti, stjana við Leppalúða
og gefa krakkaófétunum að éta.
Grýla er hætt að fylgjast með
tíðarandanum og verður sífellt
forneskjulegri, hún er einmana
leg gömul kerling sem hefur
gleymst í öllum látunum í kring
um jólin.
Hugmyndin um Grýlu hefur
breyst mikið í tímans rás þótt
meginhlutverk hennar hafi alla
tíð verið að temja börn. Árni
Björnsson segir, með nokkrum
fyrirvara, í bók sinni, Saga
daganna, að Grýla endurspegli
grimmd yfirvalda gagnvart
alþýðunni og að hún hafi farið
að mildast eftir að einveldi var
afnumið. Því hefur einnig verið
haldið fram að Grýla og hyski
hennar séu tákngervingar náttúru
aflanna, skammdegismyrkursins
eða flökkulýðs sem fór um
landið.
/VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Grýla étur börn
milljón tonn
1.800.000
1.600.000
1.400.000
1.200.000
1.000.000
800.000
600.000
400.000
200.000
0
92
/9
3
95
/9
6
98
/9
9
01
/0
2
04
/0
5
07
/0
8
10
/1
1
13
/1
4
16
/1
7
19
/2
0
Uppsjávarafli íslenskra skipa frá 1992/93 (afli í tonnum)
Loðna
Síld
Makríll
Kolmunni
Afli íslenskra skipa fiskveiðiárin 2015/2016 til 2019/2020
Afli upp úr sjó (tonn)
Fisktegund 2015/2016 2016/2017 2017/2018 2018/2019 2019/2020
Þorskur 257.929 242.735 274.064 269.296 272.283
Barentshafsþorskur 6.165 6.509 4.926 6.582 6.220
Ýsa 40.491 35.462 43.514 59.438 48.408
Ufsi 49.554 45.298 59.034 70.553 53.352
Gullkarfi 54.779 48.265 51.789 44.533 41.136
Djúpkarfi 9.611 8.559 10.552 8.672 10.642
Steinbítur 8.952 7.538 9.527 9.332 7.150
Úthafskarfi 2.830 2.002 1.138 236
Grálúða 13.402 12.146 14.867 12.651 12.366
Skarkoli 7.614 6.376 8.211 7.096 7.179
Annar flatfiskur 3.927 3.338 3.528 3.191 2.806
Annar botnfiskur 32.154 22.664 23.906 21.888 21.931
Samtals botnfiskur 487.408 440.892 505.056 513.468 483.473
Síld 69.843 61.161 36.005 40.968 32.536
Norsk-íslensk síld 37.851 53.798 81.115 88.963 109.420
Loðna 101.089 196.832 186.333
Kolmunni 189.345 207.907 297.302 270.870 225.644
Makríll 148.268 150.308 152.799 166.360 151.994
Annar uppsjávarfiskur 639 262 21 213 657
Samtals uppsjávarfiskur 547.035 670.268 753.575 567.374 520.251
Humar / Leturhumar 1.536 1.186 820 300 195
Rækja 6.950 4.431 4.479 3.212 2.780
Annar skel- og krabbaafli 4.312 3.941 6.998 6.148 4.077
Samtals skel og krabbar 12.798 9.558 12.297 9.660 7.052
Heimild: Fiskistofa