Bændablaðið - 17.12.2020, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202028
Mæðgurnar Andrea Maria
Sosa Salinas og Silvia Dinora
Salinas Martinez eru búsett-
ar í Borgarnesi en koma frá
El Salvador í Mið-Ameríku.
Nýverið hófu þær framleiðslu á
handgerðum tómatasultum úr
tómötum og blanda saman við þá
alls kyns kryddum. Vinsældirnar
létu ekki á sér standa og nú
framleiða þær mæðgur fjórar
tegundir af tómatasultum án
aukaefna undir vörumerkinu
Olivia´s Gourmet og hafa ekki
undan að framleiða.
„Við erum afar þakklátar fyrir
viðtökurnar og stefnum á að koma
sultunum inn í verslanir Krónunnar
bráðlega í gegnum Samtök smá
framleiðenda matvæla. Núna erum
við komnar með fjórar tegundir
sem við vinnum með, sumt úr
grænum tómötum sem þroskast
ekki og væri annars illa nýtt en
jólasultuna gerum við úr rauðum
tómötum og blöndum við hana
appelsínu, kanil, púðursykri,
engifer, negul og vanillu. Hinar
eru með appelsínubragði, myntu
og chili,“ segir Andrea sem er
konditori að mennt.
Framleiða í 240 krukkur í einu
Bjargey Magnúsdóttir, tengda
móðir Andreu, er samstarfs
aðili þeirra mæðgna en þær
leigja aðstöðu hjá Matarsmiðju
Vesturlands fyrir framleiðsluna.
Signý Óskarsdóttir hefur verið
þeim innan handar varðandi við
skiptahlið verkefnisins og vinkona
Andreu, Monica Gómez, sem er
grafískur hönnuður, sá um hönnun
umbúða.
„Við höfum verið að framleiða
einu sinni í mánuði en tvisvar núna
í desember fyrir jólin. Í hvert sinn
framleiðum við úr um 50 kílóum
af tómötum sem gefa í kringum
240 krukkur af fullunninni vöru.
Þetta hefur gerst mjög hratt frá
því að við byrjuðum og spurst
út svo við náum að selja allt sem
við framleiðum,“ segir Andrea og
bætir við:
„Þetta byrjaði allt síðasta sumar
þegar ég ræddi við vini mína um
að mig langaði að gera eitthvað
úr grænum tómötum og kynna
Íslendinga fyrir latínamerískri
matargerð. Ég var með salsa fyrst
í huga en eftir að vinur minn
ræddi við garðyrkjubændur hér
í nágrenninu og fékk hjá þeim
græna tómata sem annars eru illa
nýttir þróaðist þetta út í að gera
marmelaði í fyrstu tilraun og síðan
salsa enda fengum við svo mikið
magn af tómötum. Það varð mjög
vinsælt, svo eftir nokkra tilrauna
starfsemi urðu til þessar sultur.“
Úrvals með ostum,
hráskinku og silungi
Andrea kom hingað til lands fyrir
fjórum árum og hefur líkað vel.
Hún kynntist manni sínum, Eyþóri
Orra Þórðarsyni frá Borgarnesi,
og eiga þau dótturina Oliviu sem
vörumerkið er kennt við.
„Við höfum selt sulturnar í
gegnum samfélagsmiðla og keyr
um þær til fólks hér í Borgarnesi.
Þegar við náum upp í nógu
stóra pöntun keyrum við líka til
Reykjavíkur. Við eigum einnig
vini í Sviss og Svíþjóð sem hafa
sýnt sultunum áhuga og vilja prófa
að koma þeim á markað þar. Varan
er 100% náttúruleg og við leggjum
mikið upp úr því. Viðtökurnar hafa
verið framar vonum og höfum við
fengið mjög jákvæða endurgjöf á
bragð og gæði sultanna. Mörgum
finnst gott að borða þetta með
alls kyns ostum og hráskinku en
einnig með silungi sem dæmi,“
segir Andrea og bætir við:
„Þetta er lítið fjölskyldufyr
irtæki og mjög skemmtilegt fyrir
okkur mæðgurnar að geta verið í
þessu saman. Tengdamamma mín,
Bjargey, kom líka inn í þetta og
hún var sú fyrsta til að styðja okkur
með hugmyndina og erum við mjög
þakklátar fyrir það. Síðan verðum
við að sjá hvernig þetta þróast, við
erum með endalausar hugmyndir í
kollinum að nýjum bragðtegundum
í tómatasultunni en einnig að gera
eitthvað annað, eins og til dæmis
íslenska salsasósu með suðuram
erískri ástríðu.“
LÍF&STARF
íslenskar tómatasultur
mið-amerískum
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Silvia, Bjargey, Olivia og Andrea kampakátar með Olivia´s Gourmet-sulturnar sem framleiddar eru í Borgarnesi og
fást nú í fjórum bragðtegundum. Myndir / ehg
Andrea Maria Sosa Salinas, einn af frumkvöðlunum á bak við tómatasulturnar
Olivia´s Gourmet, er hér í óðaönn að bæta út í jólasultu fyrirtækisins.
Móðir Andreu, Silvia Dinora Salinas Martinez, afhýðir og hreinsar tómatana
fyrir vinnsluna.