Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 28

Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202028 Mæðgurnar Andrea Maria Sosa Salinas og Silvia Dinora Salinas Martinez eru búsett- ar í Borgarnesi en koma frá El Salvador í Mið-Ameríku. Nýverið hófu þær framleiðslu á handgerðum tómatasultum úr tómötum og blanda saman við þá alls kyns kryddum. Vinsældirnar létu ekki á sér standa og nú framleiða þær mæðgur fjórar tegundir af tómatasultum án aukaefna undir vörumerkinu Olivia´s Gourmet og hafa ekki undan að framleiða. „Við erum afar þakklátar fyrir viðtökurnar og stefnum á að koma sultunum inn í verslanir Krónunnar bráðlega í gegnum Samtök smá­ framleiðenda matvæla. Núna erum við komnar með fjórar tegundir sem við vinnum með, sumt úr grænum tómötum sem þroskast ekki og væri annars illa nýtt en jólasultuna gerum við úr rauðum tómötum og blöndum við hana appelsínu, kanil, púðursykri, engifer, negul og vanillu. Hinar eru með appelsínubragði, myntu og chili,“ segir Andrea sem er konditori að mennt. Framleiða í 240 krukkur í einu Bjargey Magnúsdóttir, tengda­ móðir Andreu, er samstarfs­ aðili þeirra mæðgna en þær leigja aðstöðu hjá Matarsmiðju Vesturlands fyrir framleiðsluna. Signý Óskarsdóttir hefur verið þeim innan handar varðandi við­ skiptahlið verkefnisins og vinkona Andreu, Monica Gómez, sem er grafískur hönnuður, sá um hönnun umbúða. „Við höfum verið að framleiða einu sinni í mánuði en tvisvar núna í desember fyrir jólin. Í hvert sinn framleiðum við úr um 50 kílóum af tómötum sem gefa í kringum 240 krukkur af fullunninni vöru. Þetta hefur gerst mjög hratt frá því að við byrjuðum og spurst út svo við náum að selja allt sem við framleiðum,“ segir Andrea og bætir við: „Þetta byrjaði allt síðasta sumar þegar ég ræddi við vini mína um að mig langaði að gera eitthvað úr grænum tómötum og kynna Íslendinga fyrir latín­amerískri matargerð. Ég var með salsa fyrst í huga en eftir að vinur minn ræddi við garðyrkjubændur hér í nágrenninu og fékk hjá þeim græna tómata sem annars eru illa nýttir þróaðist þetta út í að gera marmelaði í fyrstu tilraun og síðan salsa enda fengum við svo mikið magn af tómötum. Það varð mjög vinsælt, svo eftir nokkra tilrauna­ starfsemi urðu til þessar sultur.“ Úrvals með ostum, hráskinku og silungi Andrea kom hingað til lands fyrir fjórum árum og hefur líkað vel. Hún kynntist manni sínum, Eyþóri Orra Þórðarsyni frá Borgarnesi, og eiga þau dótturina Oliviu sem vörumerkið er kennt við. „Við höfum selt sulturnar í gegnum samfélagsmiðla og keyr­ um þær til fólks hér í Borgarnesi. Þegar við náum upp í nógu stóra pöntun keyrum við líka til Reykjavíkur. Við eigum einnig vini í Sviss og Svíþjóð sem hafa sýnt sultunum áhuga og vilja prófa að koma þeim á markað þar. Varan er 100% náttúruleg og við leggjum mikið upp úr því. Viðtökurnar hafa verið framar vonum og höfum við fengið mjög jákvæða endurgjöf á bragð og gæði sultanna. Mörgum finnst gott að borða þetta með alls kyns ostum og hráskinku en einnig með silungi sem dæmi,“ segir Andrea og bætir við: „Þetta er lítið fjölskyldufyr­ irtæki og mjög skemmtilegt fyrir okkur mæðgurnar að geta verið í þessu saman. Tengdamamma mín, Bjargey, kom líka inn í þetta og hún var sú fyrsta til að styðja okkur með hugmyndina og erum við mjög þakklátar fyrir það. Síðan verðum við að sjá hvernig þetta þróast, við erum með endalausar hugmyndir í kollinum að nýjum bragðtegundum í tómatasultunni en einnig að gera eitthvað annað, eins og til dæmis íslenska salsasósu með suður­am­ erískri ástríðu.“ LÍF&STARF íslenskar tómatasultur mið-amerískum Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is Silvia, Bjargey, Olivia og Andrea kampakátar með Olivia´s Gourmet-sulturnar sem framleiddar eru í Borgarnesi og fást nú í fjórum bragðtegundum. Myndir / ehg Andrea Maria Sosa Salinas, einn af frumkvöðlunum á bak við tómatasulturnar Olivia´s Gourmet, er hér í óðaönn að bæta út í jólasultu fyrirtækisins. Móðir Andreu, Silvia Dinora Salinas Martinez, afhýðir og hreinsar tómatana fyrir vinnsluna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.