Bændablaðið - 17.12.2020, Page 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202046
PLAST&NÁTTÚRA
„Núll árangur“ er sagður vera í
viðleitni fyrirtækjanna í að draga
úr plastmengun. Coca-Cola er
sagt mest plastmengandi fyrirtæki
í heimi samkvæmt ársskýrslu
Break Free From Plastic sem eru
alþjóðleg samtök sem berjast gegn
plastmengun.
Samkvæmt skýrslunni fannst
mest af plastumbúðum undan Coca-
Cola á víðavangi eins og í fjörum,
við árbakka og víðar í könnun sem
náði til 55 landa og á síðasta ári voru
plastumbúðir unda Kók algengasta
plastruslið í 37 löndum af 51 sem
könnunin náði til.
Samkvæmt talningu fundust við
síðustu talningu 13.834 plastflöskur
undan Coca-Cola en 5.155 flöskur
undan drykkjum frá PepsiCO og
8.633 frá Neslé. Vert er að velta
fyrir sér í þessu sambandi að
vinsældir drykkjanna í löndunum
sem talningin nær til getur haft
áhrif á niðurstöðuna og svo hitt að
hugsanlega eru þeir sem drekka
Coca-Cola meiri umhverfissóðar
en aðrir þótt slíkt sé umdeilanlegt.
Um 15 þúsund sjálfboðaliðar
tóku þátt í talningunni og alls fundust
346.494 plastumbúðir og af þeim
voru 63% merktar framleiðanda.
Fyrr á þessu ári var talsverð
umræða um stefnu Coca-Cola,
PepsiCo, Nestlé og Unilever í
umhverfismálum þegar greint
var frá því að árleg mengun af
völdum drykkjaríláta fyrirtækjanna
væri um hálf milljón tonn í sex
þróunarlöndum. Magnið er sagt nóg
til að þekja 83 knattspyrnuvelli á
hverjum degi. /VH
UTAN ÚR HEIMI
Coca-cola, Pepsi og Nestlé:
Mest plastmengandi fyrirtækin
í heiminum þriðja árið í röð
– Samkvæmt skýrslu alþjóðlegu samtakannna Break Free From Plastic
Árleg plastmengun af völdum drykkjaríláta í sex þróunarlöndum er um hálf
milljón tonna.
Siglfirðingarnir Ragnar Ragnarsson og Lísa Dombrowe ásamt fleirum:
Hreinsuðu upp gríðarlegt magn af plasti úr Héðinsfirði
-„Óbeðin hafa þau tekið að sér viðfangsefni sem flestir hafa talið nær óvinnandi“
Siglfirðingarnir Ragnar Ragnars-
son og Lísa Dombrowe hafa á
liðnu hausti og fram á vetur staðið
í ströngu og lagt á sig óheyrilega
mikið verk við að hreinsa hvers
kyns plastrusl í Héðinsfirði. Um
er að ræða plastúrgang af margs
konar tagi, frá uppþvottabrúsum
til heilu og hálfu veiðarfæranna,
fiskikassa og kör, kaðla, bíldekk
og trollkúlur svo fátt eitt sé nefnt.
Plastið hefur borist utan af hafi
undanfarna áratugi og virðist að
mestu leyti vera tengt sjávarútvegi.
Þrjár ferðir með 40 rúmmetra
sorpgáma
„Þau Ragnar og Lísa unnu við þetta
í margar vikur, virka daga sem
helgar, og söfnuðu plastinu saman
á stað þar sem hægt var flytja það á
báti eftir Héðinsfjarðarvatni. Þetta
mikla plastmagn hafa þau þurft að
bera og draga allt að eins og hálfs
kílómetra leið, eða að meðaltali nær
hálfan kílómetra hverja einingu (10-
50 kg),“ segir í frásögn á heimasíðu
Fjallabyggðar.
Hreinsunin hefur verið unnin
í samráði við landeigendur. Þá er
þess getið að þau hafi notið liðsinnis
vina sinna, Guðnýjar Róbertsdóttur
og Örlygs Kristinssonar, og ekki síst
Gests Matthíassonar, sem flutti bát
sinn nokkrum sinnum frá Dalvík
til að ferja allt söfnunarplastið
eftir vatninu, alls 17 ferðir. Þá tók
við vörubíll sem sveitarfélagið
Fjallabyggð sendi á vettvang, alls 3
ferðir með á að giska 40 rúmmetra í
sorpgáma á Siglufirði.
Fullhreinsað næsta sumar
Raggi og Lísa eru mikið útivistarfólk
og láta varla nokkurn dag líða hjá
án þess að fara til fjalla eða í lengri
gönguferðir, t.d. um Héðinsfjörð.
Á slíkum ferðum á undanförnum
árum og misserum hafa þau jafnan
safnað plastrusli í poka og tekið
með sér til förgunar á „réttum stað“.
Þannig hefur hin mikla hreinsun
Héðinsfjarðar í haust og vetur átt
sér alllangan aðdraganda.
Stefnt er að því að fullhreinsa
fjörukambana og umhverfi þeirra
næsta sumar og þyrfti þá liðsauka
í allt smáplastið sem liggur úti um
allar trissur.
Með hendur sínar
og þrautseigju að vopni
Verk þeirra Ragga og Lísu má meta
sem mikið elju- og afreksverk, segir
á vefsíðu Fjallabyggðar.
„Óbeðin hafa þau tekið að
sér viðfangsefni sem flestir hafa
talið nær óvinnandi – með hendur
sínar og þrautseigju að vopni.
Samfélagið í Fjallabyggð og raunar
allir landsmenn standa í mikilli
þakkarskuld við þetta góða og
fórnfúsa fólk,“ segir enn fremur og
að framtak þeirra og aðstoðarfólksins
í þágu samfélags og náttúrunnar
verði seint fullþakkað. /MÞÞ
Með hendur sínar og þrautseigju að vopni var plastið dregið um langan veg. Það var enginn skortur á plastruslinu í Héðinsfirði.
Myndir / Fjallabyggð / Ragnar Ragnarsson Lísa Dombrowe og Guðný Róbertsdóttir
Gestur Matthíasson við stýrið á bát sínum. Hann kom með bát sinn frá Dalvík,
alls 17 ferðir, til að flytja plastúrganginn.
Netadræsur niður undir fjörukambi.Bátur Gests með fullfermi.
Plastruslinu mokað á bíl sem flutti það í förgun.
Plast í hafinu gæti að óbreyttu
þrefaldast fyrir 2040
Reiknað er með að plastrusl sem
endar í hafinu á hverju ári muni
nær þrefaldast fram til 2040
verði ekki ráðist í umfangsmiklar
aðgerðir til að stemma stigu við
plastmenguninni. Þannig yrðu um
29 milljónir tonna sem enduðu í
hafinu á hverju ári samkvæmt
grein sem Laura Parker ritaði í
National Geographic á síðasliðnu
sumri.
Þetta er niðurstaða tveggja ára
rannsóknarverkefnis sem lýsir þeim
misbresti sem átt hefur sér stað í
herferðinni til að hemja plastmengun
um allan heim. Það er þrátt fyrir
metnaðarfulla áætlun um að draga
úr því mikla flæði af plasti sem hent
er í hafið.
Enginn veit fyrir víst hversu
mikið plast hefur safnast í sjónum.
Besta ágiskunin var gerð árið
2015, þar sem áætlað var að um
150 milljónir tonna af plasti væru
fljótandi um heimshöfin. Miðað við
að hlutirnir haldist óbreyttir áætlar
rannsóknin að uppsöfnun verði 600
milljónir tonna fram til ársins 2040.
Rannsóknarverkefnið var
unnið af Pew Charitable Trusts og
SYSTEMIQ, Ltd., London. Í raun
kallar það á heildstæða endurskoðun
á plastiðnaði í heiminum þar sem
meira er hugað að endrunýtingu
og sjálfbærri hringrás á plasti í
hagkerfinu. Sérfræðingar Pew segja
að árlegt flæði plastúrgangs í hafið
gæti minnkað um 80 prósent á næstu
tveimur áratugum með því að nýta
þá tækni sem fyrir hendi er í dag.
Kostnaður við uppstokkun á
ferlinu og minni notkun á einnota
plasti nemur um 600 milljörðum
dollara. Það er samt 70 milljörðum
dala ódýrara en að halda áfram
næstu tvo áratugi eins og ekkert
hafi í skorist. „Kerfisvæn vandamál
krefjast einfaldlega breytinga á
kerfinu,“ segir í skýrslu Pew. /HKr.
Enginn veit fyrir víst hversu mikið
plast, hefur safnast í sjónum.