Bændablaðið - 17.12.2020, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 47
EKTA
JÓLABÓK!
JENNY COLGAN
HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka
NÝIR STYRKIR TIL KOLEFNISBINDINGAR:
UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR:
www.skogur.is/vorvidur
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Vorvidur-auglýsing_des2020_bbl151x113.pdf 1 1.12.2020 13:56:37
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Coca-Cola á Íslandi grípur til aðgerða:
Allar plastflöskur verða úr
100% endurunnu plasti
Allar plastflöskur sem Coca-Cola
á Íslandi framleiðir verða úr 100%
endurunnu plasti (rPET) frá og
með fyrsta ársfjórðungi, 2021.
„Við erum einn stærsti matvæla
framleiðandi landsins en því fylgir
skylda og ábyrgð. Með því að skipta
yfir í rPET fer notkun á nýju plasti
niður um 530 tonn (86%) á hverju
ári og minnkar kolefnafótspor
framleiðslunnar vegna plastflaskna
um sem nemur ígildi 400 tonna af
koltvísýringi (CO2),“ segir Einar
Snorri Magnússon, forstjóri Coca
Cola European Partners á Íslandi.
Breytingin á við um allar
plastflöskur í öllum vörumerkjum
sem fyrirtækið framleiðir á Íslandi.
„Það var markmið okkar að ná rPET
úr 25% upp í 50% fyrir árið 2025
en við höfum flýtt því markmiði
samhliða þátttöku í Net Zero 2040
áætluninni hjá CocaCola
European Partners (CCEP),
sem verður einnig kynnt í dag.
Þessi skipti yfir í 100% endurunnið
plast er stórt skref fram á við í átt
að hringrásarhagkerfinu. rPET,
sem er hluti af hringrásarhagkerfi,
getur haft minna kolefnisfótspor en
nokkrar aðrar umbúðategundir fyrir
drykki.“
Sjálfbærni í forgangi
„Við höfum unnið ötullega að því að
gera umbúðir okkar umhverfisvænni
á undanförnum árum. Meðal aðgerða
hefur verið að létta plastflöskur, sem
sparaði plastnotkun um 6–14%, nota
léttari tappa, sem sparaði um 6 tonn
af plasti á ári, og skipta út pappír
fyrir plast í ytri umbúðum. Þá fer allt
plast sem fellur til við framleiðslu
eða rekstur okkar til Pure North í
Hveragerði sem endurvinnur plastið
með umhverfisvænum orkugjöfum
þar sem jarðvarmi er í aðalhlutverki,“
útskýrir Einar Snorri.
Net Zero 2040 áætlun CCEP
er metnaðarfull, með skýrum
markmiðum og dagsetningum. Þar
má nefna að draga á úr heildarlosun
gróðurhúsalofttegunda þvert á alla
aðfangakeðjuna um 30% fyrir árið
2030, þ.m.t. losun skv. umfangi 1, 2,
og 3 (bein og óbein losun), en miðað
er við grunnár 2019. Þá er stefnt á
að fyrirtækið verði kolefnishlutlaust
fyrir árið 2040, í samræmi við
Parísarsamkomulagið um að ná að
halda hlýnun jarðar undir 1,5 ˚C.
Þess má einnig geta að CocaCola á
Íslandi er í samstarfi við sérfræðinga
hjá Klöppum sem aðstoða fyrirtækið
við gerð nákvæms kolefnisbókhalds.
Alþjóðleg skuldbinding um að
endurvinna plast
Endurvinnslan ehf. sér um að senda
allar plastumbúðir sem safnast til
endurvinnslu erlendis. Hollenska
fyrirtækið Morssinkhof kaupir
plastið og selur það endurunnið til
umbúðabirgja okkar þar sem það
verður að flöskum úr endurunnu
plasti.
Skiptin yfir í endurunnið plast
eru hluti af sjálfbærnistefnu CCEP
og The CocaCola Company í
VesturEvrópu, Áfram veginn
(e. This is Forward) þar sem
fyrirtækin heita því að tryggja
að a.m.k. 50% af plastflöskunum
verði úr rPET. Átakið hefur nú
verið stóreflt og nýtt markmið
er að engar plastflöskur verði
framleiddar úr nýju plasti innan
áratugs.
„Við verðum eitt af fyrstu
löndunum til að ná þessu
markmiði ásamt Noregi, Svíþjóð
og Hollandi, en til þess að þetta sé
mögulegt þurfa lönd að uppfylla
ákveðnar grunnforsendur, til að
mynda að endurvinnsluhlutfall
sé hátt og endurvinnslan sjálf sé
skilvirk,“ útskýrir Einar Snorri
og bætir við að plast geti verið
sjálfbær umbúðakostur ef því
er safnað og það endurunnið í
hringrásarhagkerfi. /HKr.
• Notkun á nýju plasti mun
minnka um 530 tonn á ári
á Íslandi.
• Kolefnisfótspor Coca-Cola á
Íslandi vegna plastflaskna
minnkar um 44%.
Allar plastflöskur sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir verða úr 100%
endurunnu plasti (rPET) frá og með fyrsta ársfjórðungi, 2021.
Bænda
14. janúar