Bændablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 55
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Junkkari sturtuvagnar
Til afgreiðslu af lager
Fáanlegur aukabúnaður: Upphækkanir á skjólborð.
10 tonna sturtuvagn á kr. 1.480.000,- án vsk. ( kr. 1.835.200,- m/vsk.)
13 tonna sturtuvagn á kr. 1.680.000,- án vsk. ( kr. 2.083.200,- m/vsk.)
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Hrísmýri 7 / 800 Selfoss
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.isÓseyri 2 • 600 Akureyri •
Tökum fagnandi á móti 2021 og
hvetjum til samstöðu
Gleðilegt nýtt ár
LÍF& STARF
Breyting kynnt á aðalskipulagi Norðurþings:
Skipuleggja iðnaðarsvæði
með 35 vindmyllum
Fyrirhugað er að breyta landnotk
un á Hólaheiði á Melrakka sléttu
sunnan norð austur vegar, Hófa
skarðs leiðar, þar sem gert verður
ráð fyrir vindorkuveri. Í megin
dráttum felur breytingin í sér að
land búnaðarlandi verður breytt
í iðnaðarsvæði til orkunýtingar
en landbúnaður verður einnig
heimill.
Sveitarstjórn Norðurþings sam-
þykkti á fundi nýverið að kynna
skipulags- og matslýsingu vegna
breytinga á aðalskipulagi sveitarfé-
lagsins vegna uppbyggingar vind-
orkuvers.
Markmið með breytingu á aðal-
skipulagi Norðurþings 2010-2030 er
að auka framboð endur nýjanlegrar
raforku á Íslandi með því að skil-
greina nýtt iðnaðarsvæði til orku-
nýtingar þar sem gert verður ráð
fyrir nýtingu á vindorku ásamt því
að landbúnaður á svæðinu verður
áfram heimilaður. Svæðið er skil-
greint sem landbúnaðarsvæði í gild-
andi aðalskipulagi. Þar eru engin tún
eða ræktað land en svæðið að ein-
hverju leyti nýtt til sauðfjárbeitar.
Gert er ráð fyrir að sú nýting geti
verið að mestu óbreytt samhliða
uppbyggingu og rekstri vindorku-
vers á svæðinu.
Gert ráð fyrir 35
vindmyllum á svæðinu
Á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði er
gert ráð fyrir u.þ.b. 35 vindmyllum
ásamt tengivirki, rafmagnsköplum,
vegum og öðrum mannvirkjum sem
tilheyra vindorkuveri. Aðkoma að
svæðinu verður af þjóðvegi 85,
Hófaskarðsleið. Gert er ráð fyrir
að uppbygging geti farið fram í 2
áföngum þar sem fyrsti áfangi gerir
ráð fyrir uppbyggingu á um 10-15
vindmyllum og seinni áfangi gerir
ráð fyrir um 20-25 vindmyllum.
Svæðið sem á þessu stigi kemur
til greina og er til skoðunar er um
30 km2 að stærð en gera má ráð fyrir
að land sem fari undir mannvirki,
þar á meðal vindmyllur, vegi og
tengivirki, geti orðið samanlagt um 6
km2. Endanleg stærð iðnaðarsvæðis
og staðsetning mannvirkja innan
iðnaðarsvæðis mun byggja á
niðurstöðum vindmælinga ásamt
niðurstöðum rannsókna sem ráðist
verður í við mat á umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar og snúa m.a.
að landslagi, fuglalífi og öðru
náttúrufari á svæðinu.
Mikil þróun er í hönnun vind-
mylla sem meðal annars hefur áhrif
á nýtni þeirra og umfang, sú þróun
hefur mikil áhrif á hæð vindmylla
og fjölda þeirra þar sem orkufram-
leiðsla og nýtni eykst með hæð og
umfangi spaða. Á þessu stigi hefur
ekki verið ákveðið hvaða gerð
vindmylla verða reistar á svæðinu
en áætla má að hæð masturs verði
um 120 metrar og að þvermál spaða
verði um 162 m.
Nægt og flatlent
landrými til staðar
Skipulagssvæðið er sunnarlega
á Melrakkasléttu, á Hólaheiði
sunnan Hófaskarðsleiðar nr. 85.
Örnefnið Hnotasteinn er að finna á
Hólaheiði og dregur verkefnið nafn
sitt af því. Athugunarsvæði fyrir-
hugaðs vindorkuvers er um 100-
180 m.y.s. og nær yfir landsvæði
á jörðum Katastaða, Presthóla og
Efri-Hóla. Landið er talið henta
vel fyrir nýtingu á vindorku þar
sem staðsetningin uppfyllir allar
helstu kröfur sem gerðar eru til
slíkra svæða. Nægt landrými er til
staðar, svæðið er tiltölulega flatlent
og þar er lítill kjarr- eða trjágróður
eða annað sem getur haft neikvæð
áhrif á vindstyrk.
Svæðið er fremur flatlent með
grónu mólendi, hraunlendi, ógrónum
melum og nokkrum minni vötnum. Í
um 850 m fjarlægð frá jaðri athug-
unarsvæðis er gangna mannaskáli
sem er aðallega nýttur við smölun
á haustin. Næsta íbúabyggð er í um
3 km fjarlægð frá jöðrum svæðisins
og næsta þorp er Kópasker í um 6,5
km fjarlægð frá svæðinu. /MÞÞ
Iðnaðarsvæðið á Hólaheiði sem gert er ráð fyrir að hægt verði að nýta undir
vindmyllur.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300