Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 66
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202066
Kórónuveirufaraldur, stórviðri
og riðuveiki hafa sett svip sinn á
árið sem er að líða. Lömbin hafa
þó aldrei verið betri og vænleiki
lamba sá mesti frá upphafi
skýrsluhalds. Það ætti því að
verða sauðfjárbændum auðvelt að
muna árið 2020 þegar fram líða
stundir. Í þessum pistli verður
farið yfir helstu niðurstöður úr
lambaskoðunum haustsins og
ræktunarstarfið hugleitt.
Í haust voru skoðaðir 11.795
lambhrútar og að meðtöldum
gimbrum voru alls stiguð 61.874
lömb samkvæmt dómaskráningum
í Fjárvís.is þann 8. desember. Þetta
eru aðeins færri lömb en í fyrra
en þá voru skoðuð alls 63.632
lömb. Þetta er því samdráttur
á milli ára um 2,8%, en aðeins
gæti þó átt eftir að bætast við af
óskráðum dómum. Takmarkanir
vegna heimsfaraldursins hafa þarna
einhver áhrif á þátttöku bænda en
helsta skýringin er sú staðreynd
að fé hefur fækkað. Innlögðum
dilkum í haust fækkar á milli ára um
21.345 lömb eða 4,2%. Þátttakan í
lambaskoðunum í haust var þó meiri
en haustin 2017 og 2018 en þá var
talsverður samdráttur í kjölfar hruns
á afurðaverði.
Vænleiki lamba sló öll met
Vænleiki lamba í haust var með
fádæmum góður. Hrútahópurinn sem
kom til skoðunar er sá þyngsti hingað
til en meðal lífþungi hrútanna var
48,5 kg. Fallþungi lamba samkvæmt
niðurstöðum afurðastöðvanna var
jafnframt sá mesti sem verið hefur,
eða 16,91 kg. Þar með féll metið frá
árinu 2016 þegar fallþungi lamba
var 16,70 kg. Á síðustu árum hefur
fallþungi verið að aukast. Skýrist
það að hluta til af því að menn eru
að ná árangri í ræktun á sínu fé og
síðan af bættu atlæti. Uppsveiflan í
ár er væntanlega aðallega afleiðing
af hagstæðu árferði þó fleira geti
spilað inn í s.s. fækkun sauðfjár. Þó
veturinn hafi verið erfiður, þá borga
snjóaveturnir gjarnan fyrir sig með
góðum vænleika að hausti að því
gefnu að gott lag sé á fénu þegar því
er sleppt að vori.
Lömbin voru ekki bara þung, þau
voru einnig vel holdfyllt. Samkvæmt
niðurstöðum mælinga var mikið af
mjög þéttvöxnum lambhrútum.
Samhliða því að vera þyngri en
áður voru þeir heldur lágfættari með
þykkari bakvöðva en fitan mælist
jafn mikil og árið áður. Flokkun í
sláturhúsi var einnig betri en áður
og var gerðareinkunn sláturlamba
9,26 sem er nokkuð stökk upp á við.
Fitueinkunnin hækkaði jafnframt
aðeins og var nú 6,51. Í töflu 1
er yfirlit yfir meðaltöl mælinga á
hrútlömbum og samanburður við
síðasta ár.
Þó bakvöðvinn mælist að jafnaði
þykkari en nokkru sinni áður þá er
það fremur vegna þess að hópurinn er
jafnari en verið hefur frekar en að met
séu slegin í vöðvaþykkt á einstökum
gripum. Bæði nú í haust og síðasta
haust var þykkasti bakvöðvinn 45
mm og ef horft er til bæði gimbra
og hrúta þá eru þetta um 115 lömb
sem eru að mælast með yfir 40 mm
bakvöðva. Besti bakvöðvinn þetta
árið mældist í lambhrút frá Litlu-
Reykjum í Suður-Þingeyjarsýslu.
Sá hefur hlotið nafnið Kerfill og
stendur efstur hrúta í sýslunni
samkvæmt stigun. Kerfill mældist
með 45 mm þykkan vöðva. Þessi
hrútur er sonarsonur Fáfnis 16-995
frá Mýrum 2 og dóttursonur Gríms
14-955 frá Ytri-Skógum. Þá voru
28 lömb, þar af fjórir lambhrútar,
sem hlutu 20 í einkunn fyrir læri.
Þyngsti lambhrúturinn í haust vó
73 kg. Sá hefur hlotið nafnið Grettir
og er frá Sölvabakka og raðast sem
fjórða hæststigaða lambið í Austur-
Húnavatnssýslu. Þessi hrútur
er sonarsonur Lása 13-985 frá
Leifsstöðum.
Af hæstu hrútum
Það lamb sem stigaðist hæst allra
lamba í haust er hrúturinn Þórshamar
frá Mýrum 2 í Hrútafirði en hann
hlaut 91,5 stig. Faðir hans er Mjölnir
16-828 frá Efri-Fitjum og móðurfaðir
hans er Víðir 15-303 frá Bergsstöðum
en Víðir er jafnframt faðir Viðars 17-
844 frá Bergsstöðum. Þórshamar
hlaut m.a. 10 í einkunn fyrri bak og
malir. Annar í röðinni og jafnframt
efsti lambhrúturinn í Gullbringu- og
Kjósarsýslu er frá Miðdal í Kjós og
hefur hlotið nafnið Þyrnir. Hann
hlaut 91 stig og þar af einkunnina
20 fyrir læri. Þyrnir tengist einnig
Mýrum en föðurfaðir hans er Fáfnir
16-995 frá Mýrum 2. Það voru síðan
16 lambhrútar sem hlutu 90,5 stig.
Sá sem raðast efstur af þeim og því
þriðji í röðinni yfir hæst stiguðu hrúta
landsins er hrútur frá Bergsstöðum
í Miðfirði sem nefnist Rex. Faðir
hans er Rammi 18-834 frá Hesti og
móðurfaðir er Unaðsbolti 14-144 frá
Urriðaá.
Í töflu 2 má sjá 5 efstu hrúta í
hverri sýslu. Hrútunum er raðað eftir
heildarstigum. Séu hrútar jafnir þá
er fyrst horft til samanlagðra stiga
fyrir frampart, bak, malir og læri.
Næst er horft til bakvöðvaþykktar,
þá fituþykktar og séu hrútar enn jafnir
sker lögun bakvöðvans um röðunina.
Sæðingastöðvahrútarnir eiga
heldur stærri hlutdeild í bekrunum á
topplistanum í ár en á síðasta ári. Nú
er 41% hrútanna tilkomnir í gegnum
sæðingar en þetta hlutfall var 31% á
síðasta ári. Atkvæðamestir eru þeir
Amor 17-831 frá Snartarstöðum og
Glæpon 17-809 frá Hesti en þeir eiga
fimm syni hvor á listanum. Þá kemur
Fálki 17-821 frá Bassastöðum með
fjóra syni og Rammi 18-834 frá Hesti
með þrjá.
Að lokum
Gerðin í fénu batnar jafnt og þétt.
Hana getum við haldið áfram að
bæta en vissulega þurfum við ávallt
að horfa á fleira en bara vel lagaðan
lærvöðva og þykkan bakvöðva.
Þannig þarf áfram að leggja áherslu á
að rækta heilbrigt, frjósamt og hraust
fé. Fé sem getur lifað í villtri náttúru
Íslands, náttúru sem sauðkindin er jú
partur af. Jafnframt er mikilvægt að
fylgjast vel með bragðgæðunum, en
á síðustu árum hefur verið unnið að
rannsóknum á því sviði sem hjálpa
okkur við að passa upp á þann þátt.
Síðan má ætla að við þurfum að
horfa enn frekar til þess að beita
kynbótum við að efla mótstöðu
gegn sjúkdómum. Þar er nærtækasta
dæmið riðan og eru bændur hvattir til
að nýta sér arfgerðagreiningar í því
sambandi. Ætla má, að ef við fetum
áfram veginn af varfærni að þá farnist
okkur áfram vel með þessa mögnuðu
íslensku sauðkind. Gleðileg jól
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyþór Einarsson
ráðunautur búfjárræktar-
og þjónustusviðs
ee@rml.is
Uppruni La
m
bs
nr
.
Nafn Faðir Þu
ng
i (
kg
)
Óm
vö
ðv
i
Óm
fit
a
Lö
gu
n
Fó
tle
gg
ur
Ha
us
Há
ls+
he
rð
ar
Br
in
ga
+ú
tlö
gu
r
Ba
k
M
al
ir
Læ
ri
Ul
l
Fæ
tu
r
Sa
m
ræ
m
i
St
ig
a
lls
Gullbringu- og Kjósarsýsla
1 Miðdalur 111 Þyrnir 19-044 Varmi 53 34 4,2 4,5 107 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 20,0 9,0 8,0 9,0 91,0
2 Kiðafell 24 19-005 Brákar 62 33 6,2 4,5 108 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 9,0 8,0 8,5 88,5
3 Kiðafell 407 19-002 Botnar 51 31 3,6 4,5 106 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,5 8,0 8,0 8,5 88,0
4 Kiðafell 17 13-982 Móri 57 31 7,4 4,0 108 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 8,0 8,0 9,0 88,0
5 Miðdalur 127 Þistill 18-002 Skálmar 56 34 3,3 4,0 109 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 88,0
Borgarfjarðarsýsla
1 Hrafnabjörg 21 Hamar 17-831 Amor 60 38 3,2 4,5 111 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 89,0
2 Múlakot 309 Rosti 17-842 Börkur 51 37 4,1 4,5 104 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 89,0
3 Oddsstaðir 1 32 Klasi 18-834 Rammi 46 34 3,2 4,5 109 8,0 9,5 9,0 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
4 Vestri Leirárgarðar 23 Andi 17-831 Amor 54 38 5,1 4,5 105 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 8,5 8,0 9,0 89,0
5 Beitistaðir 237 18-518 Straumur 57 39 3,1 5,0 110 8,0 8,5 9,0 10,0 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 89,0
Mýrasýsla
1 Gilsbakki 7 17-821 Fálki 58 37 4,0 4,5 110 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 89,5
2 Lækjarbugur 207 Gosi 14-988 Tvistur 52 30 1,5 4,5 104 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 88,5
3 Háhóll 69 Staur 18-045 Gráni 53 39 2,8 5,0 108 8,0 9,0 9,0 10,0 9,0 18,5 8,0 8,0 9,0 88,5
4 Brúarland 22 Blær 17-821 Fálki 46 32 2,6 4,0 104 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 9,0 8,0 8,5 88,5
5 Leirulækur 36 16-827 Mínus 69 37 7,4 4,0 108 8,0 8,5 9,0 9,5 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 88,5
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla
1 Máfahlíð 208 Óðinn 19-001 Vaskur 50 39 2,1 5,0 104 8,0 9,0 9,0 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
2 Haukatunga 2 Syðri 57 Plús 16-827 Mínus 56 37 3,1 5,0 108 8,0 8,5 9,0 10,0 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 89,5
3 Vallholt 24 139 Kristall 19-001 Vaskur 54 33 2,8 4,0 106 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,5 9,0 8,0 9,0 89,5
4 Gaul 85 18-507 Skolli 59 33 2,9 4,5 108 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 89,5
5 Gaul 81 Skellur 17-504 Gammur 60 38 3,7 4,5 109 8,0 9,0 9,5 10,0 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 89,0
Dalasýsla
1 Vatn 9297 Svarti Smári 19-082 Fannar 54 35 3,2 5,0 109 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
2 Hlíð 39 Bessi 17-831 Amor 53 37 2,4 5,0 110 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
3 Gillastaðir 214 Smyrill 17-821 Fálki 57 33 3,1 4,5 107 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,5 8,0 8,0 8,5 89,0
4 Háafell 1021 Klettur 16-826 Heimaklettur 54 37 2,4 4,5 104 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
5 Sauðafell 78 18-374 59 37 3,6 4,5 115 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 89,0
Barðastrandarsýslur
1 Kambur 295 19-290 Blær 45 37 2,0 5,0 103 8,0 9,0 9,0 10,0 10,0 18,5 9,0 8,0 9,0 90,5
2 Árbær 133 18-028 61 33 3,3 4,5 109 8,0 9,0 9,0 9,5 10,0 19,0 9,0 8,0 9,0 90,5
3 Árbær 85 Dindill 19-031 59 36 2,9 5,0 113 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
4 Kambur 97 17-280 Heydalur 51 35 3,1 5,0 97 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 9,0 8,0 8,5 89,5
5 Árbær 102 BláPúntur 18-026 Klettur 51 33 2,9 4,5 107 8,0 9,0 9,0 9,0 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 89,5
Ísafjarðarsýslur
1 Birkihlíð 347 15-202 Batman 55 35 4,5 4,5 109 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,5 8,0 8,0 8,5 87,5
2 Kirkjuból Valþjófsd.381 18-406 Þykkur 44 32 4,8 4,0 106 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 87,5
3 Kirkjuból 1049 19-130 50 33 5,4 4,0 107 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 18,0 9,0 8,0 8,5 87,5
4 Staður 285 Glókollur 19-671 Bjartur 46 31 4,2 4,0 106 8,0 9,0 9,0 8,5 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 87,5
5 Ketilseyri 272 Lalli 19-056 Völlur 57 34 2,8 5,0 109 8,0 8,5 9,0 9,5 9,0 19,0 7,5 8,0 8,5 87,0
Strandasýsla
1 Broddanes 1 185 16-081 Glæsir 53 42 2,5 5,0 106 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,5
2 Broddanes 1 67 Tvistur 18-052 Svanur 54 41 2,8 5,0 112 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,5
3 Laxárdalur 3 16 13-982 Móri 54 40 3,1 5,0 108 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,5
4 Laxárdalur 3 423 16-820 Viddi 58 37 3,8 5,0 110 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 90,5
5 Heydalsá 1 og 3 165 Glamor 17-831 Amor 55 39 4,0 5,0 110 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,5
Vestur-Húnavatnssýsla
1 Mýrar 2 483 Þórshamar 16-828 Mjölnir 47 41 2,0 5,0 111 8,0 9,0 9,5 10,0 10,0 19,5 8,0 8,0 9,5 91,5
2 Bergsstaðir 18 Rex 18-834 Rammi 50 41 5,3 5,0 106 8,0 9,5 10,0 10,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 90,5
3 Kolugil 17 17-529 63 41 5,1 5,0 110 7,5 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,5 90,5
4 Bergsstaðir 110 17-831 Amor 50 40 3,0 5,0 111 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 90,5
5 Syðri-Urriðaá 480 Bikar 15-018 Baukur 55 38 2,7 5,0 111 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 90,0
Austur-Húnavatnssýsla
1 Hof 248 Áfangi 15-159 Árangur 51 34 3,5 5,0 110 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,0
2 Hæll 69 Kasper 17-809 Glæpon 57 38 4,0 5,0 108 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 89,5
3 Sölvabakki 339 Gunnar 16-070 Fiddi 60 32 3,3 5,0 104 8,0 9,5 9,5 9,0 9,5 19,5 7,5 8,0 9,0 89,5
4 Sölvabakki 335 Grettir 18-083 Lykill 73 40 5,5 5,0 115 8,0 9,5 9,5 9,5 9,0 19,0 8,0 7,5 9,0 89,0
5 Kambakot 625A 15-391 Gullkálfur 55 33 5,3 5,0 109 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 19,0 8,5 8,0 9,0 89,0
Skagafjarðarsýsla
1 Ytri-Hofdalir 40 Brellir 17-832 Bruni 58 37 3,5 4,5 110 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,5 90,0
2 Höskuldsstaðir 77 Toppur 17-658 Girnir 55 36 3,2 4,5 110 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
3 Ytri-Hofdalir 38 Teitur 17-523 Teddi 55 36 3,2 4,5 112 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
4 Ríp 1 161 19-243 Forsetinn 47 39 2,7 5,0 110 8,0 9,0 9,0 10,0 9,5 18,5 9,0 8,0 8,5 89,5
5 Akrar 599 17-125 54 37 2,7 5,0 111 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
Eyjafjarðarsýsla
1 Gullbrekka 66 Varmi 18-104 Hvinur 54 40 2,7 5,0 108 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 8,5 89,5
2 Göngustaðir 334 14-801 Spakur 60 38 4,9 4,5 110 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 89,5
3 Möðruvellir 110 Bósi 18-775 Bangsi 54 37 2,7 4,5 110 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
4 Möðruvellir 154 Hallur 18-775 Bangsi 55 36 2,0 4,5 111 8,0 9,5 9,5 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 9,0 89,5
5 Kjarni 323B Örvar 17-156 Partur 49 37 3,0 5,0 110 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,0
Suður-Þingeyjarsýsla
1 Litlu-Reykir 191 Kerfill 19-068 Öxull 50 45 3,9 5,0 108 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,5
2 Ingjaldsstaðir 28 Roði 16-826 Heimaklettur 51 40 2,5 5,0 107 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,5
3 Ingjaldsstaðir 9 Ási 15-822 Búi 59 37 3,7 4,5 110 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 9,0 90,5
4 Litlu-Reykir 66 Barki 19-068 Öxull 50 40 3,3 5,0 97 8,0 9,5 9,5 10,0 9,5 19,5 8,0 8,0 8,0 90,0
5 Litlu-Reykir 175 Flótti 18-058 Klassi 50 39 3,0 5,0 105 8,0 10,0 9,0 10,0 9,5 19,0 7,5 8,0 9,0 90,0
Norður-Þingeyjarsýsla
1 Leifsstaðir 5 Rjómi 18-846 Snar 55 33 3,6 5,0 108 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 19,5 9,5 8,0 8,5 90,0
2 Snartarstaðir II 40 kjammi 18-834 Rammi 52 34 3,3 5,0 110 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 18,5 8,0 8,0 9,0 89,0
3 Bjarnastaðir 197 16-152 Bakki 55 31 3,0 5,0 108 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 89,0
4 Sveinungsvík 1 139 Gyros 19-209 Kebab 52 35 4,2 5,0 108 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,0
5 Sveinungsvík 1 610 Kurdo 19-209 Kebab 52 37 3,6 5,0 108 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 18,5 8,0 8,0 8,5 88,5
Norður-Múlasýsla
1 Melar 720A Plútó 14-973 Plútó 55 37 4,9 5,0 101 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 9,0 8,0 9,0 90,0
2 Melar 645A Bliki 16-819 Bliki 59 36 2,8 5,0 101 8,0 9,5 9,5 9,5 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 90,0
3 Melar 827A Bokki 16-819 Bliki 49 35 4,2 4,5 103 8,0 9,5 9,5 9,0 9,0 18,5 9,0 8,0 9,0 89,5
4 Melar 825A Viddi 16-820 Viddi 56 36 3,0 5,0 107 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 88,5
5 Melar 526A Sigur 16-110 Sigurbogi 55 35 3,9 5,0 104 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 18,0 9,0 8,0 9,0 88,5
Suður-Múlasýsla
1 Gilsárteigur 2 282A Fönix 18-835 Völlur 54 38 2,1 5,0 105 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 18,5 9,0 8,0 9,0 90,5
2 Þernunes 13 17-821 Fálki 53 39 1,9 5,0 105 7,5 9,0 9,0 10,0 9,5 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
3 Víkingsstaðir 163 19-794 Snæfinnur 58 40 5,5 5,0 105 8,0 9,5 9,0 9,5 9,0 19,0 9,0 8,0 9,0 90,0
4 Eiríksstaðir 774 Salomon 17-809 Glæpon 51 38 2,3 5,0 102 8,0 9,0 9,5 10,0 9,5 18,5 8,0 8,0 9,0 89,5
5 Lundur 136 Hólkur 15-823 Hólkur 66 36 3,5 5,0 109 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
Austur-Skaftafellssýsla
1 Nýpugarðar 553 17-809 Glæpon 56 36 4,5 5,0 107 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 88,0
2 Litla-Hof 126 Glæsir 17-809 Glæpon 50 30 2,9 4,0 106 8,0 9,0 9,5 9,0 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 88,0
3 Setberg 1 1582 18-506 Landi 56 33 5,3 4,0 113 8,0 9,0 9,0 9,0 9,0 18,5 9,0 8,0 8,5 88,0
4 Fornustekkar l 2074 Blómi 18-108 Skygnir 52 39 4,4 5,0 115 8,0 8,5 9,0 9,5 9,0 19,0 8,0 8,0 8,5 87,5
5 Setberg 1 6142 Ómur 14-504 Lómur 46 37 3,1 5,0 107 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,5 8,0 8,0 8,5 87,5
Vestur-Skaftafellssýsla
1 Mýrar 1366 17-814 Guðni 52 37 4,2 5,0 115 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 8,5 8,0 8,5 88,5
2 Kerlingardalur 1 266 16-709 Hreinn 63 39 2,2 5,0 113 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 18,0 9,0 8,0 8,5 88,0
3 Kerlingardalur 1 603 17-809 Glæpon 63 40 4,9 4,5 115 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 7,5 8,0 8,5 87,5
4 Úthlíð 251 18-509 Bambi 59 38 2,2 5,0 112 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 18,5 7,5 8,0 8,5 87,5
5 Herjólfsstaðir 1 2361 Már 16-830 Svavar 54 35 4,3 4,5 112 8,0 9,0 9,0 9,5 9,0 19,0 7,5 8,0 8,5 87,5
Rangárvallasýsla
1 Djúpidalur 49 Fótur 18-332 Boði 54 35 3,6 5,0 106 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 19,5 8,5 8,0 9,0 90,5
2 Teigur 1 574 Barón 19-397 Greifi 58 35 4,6 4,5 107 8,0 9,5 9,0 9,5 9,5 18,5 8,5 8,0 9,0 89,5
3 Djúpidalur 8 19-330 Bossi 50 33 2,8 4,5 108 8,0 9,5 9,0 9,0 9,0 19,5 8,5 8,0 9,0 89,5
4 Árbær 6 Gummi 17-007 Logi 51 31 4,3 4,0 106 8,0 9,0 9,5 9,0 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 89,5
5 Meiri-Tunga 2 96 17-502 Hrollur 48 35 2,5 5,0 106 8,0 9,0 9,0 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 8,5 89,0
Árnessýsla
1 Hófgerði 040A Fannar 19-074 Kóngur 56 33 3,6 4,5 108 8,0 9,0 9,5 9,5 9,5 20,0 8,0 8,0 9,0 90,5
2 Gýgjarhólskot 1 594 Laugahnappur 18-247 Hverfugl 58 37 3,1 4,5 108 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,5 8,0 8,0 8,5 90,0
3 Holt 166 19-510 Megas 53 40 4,9 5,0 106 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,0
4 Dísarstaðir 166 16-829 Stapi 63 40 5,2 4,5 108 8,0 9,5 9,5 9,5 9,5 19,0 8,0 8,0 9,0 90,0
5 Brúnastaðir 1 103 Kambur 16-829 Stapi 52 39 2,4 5,0 107 8,0 9,0 9,0 10,0 9,5 19,0 8,5 8,0 9,0 90,0
2. tafla – Hæst stiguðu lambahrútar ársins 2020 eftir sýslumÁr öfganna
– Af niðurstöðum lambadóma 2020
Fótleggur
(mm) (mm)
2020 11.795 48,5 31 3,2 108,5 17,8 84,9
2019 12.183 48,1 30,6 3,2 108,9 17,8 84,7
Stig alls
1. Tafla - Meðaltöl lambhrúta
Ár Fjöldi Þungi (kg) Bakvöðvi Fituþykkt Lærastig