Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 78
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202078
Bílaumboðin hafa seinni hluta
árs ekki verið að auglýsa frum
sýningar á nýjum bílum og ef
maður fylgist ekki með þá verða
fréttir af nýjum bílum bara
gamlar fréttir.
Fyrir nokkru kom í sýningarsal
Suzukibíla nýr Suzuki A-Cross
sem er hannaður í samstarfi með
Toyota. Þennan bíl fékk ég til
reynslu um síðustu helgi.
Ógnarkraftur og fín snerpa
Þegar ég fjalla um tengitvinnbíla
þá nefni ég alltaf í pistlum mínum
samanlagðan hestaflafjölda (ekki
allir sáttir við það, en svona eru
þessir bílar auglýstir og stundum
erfitt að fá uppgefin hestöfl hvort
í sínu lagi).
Suzuki A-Cross er kraftmikill
og er uppgefinn með 306 hestöfl,
sjálfskiptur með sex þrepa
skiptingu. Hann er ekki nema um
6 sek. að fara úr kyrrstöðu og upp
í 100 km hraða.
Uppgefin drægni á rafmagninu
einu er 75 km við bestu aðstæður,
en mér tókst ekki að fara nema um
50 km+ áður en bensínmótorinn
tók við.
Samt var ég sáttur því ég var
með miðstöðina á, sætishitarann
um tíma og hita á stýrinu og ekki í
neinum sérlegum sparakstri.
Alls ók ég bílnum tæpa 150
km og var því á bensínmótornum
megnið af akstrinum. Samkvæmt
aksturstölvunni var ég ekki að eyða
nema 8,2 lítrum á hundraðið þrátt
fyrir að hafa verið með bílinn á
sportstillingunni megnið af þeim
tíma og svolítið mikið og oft að
reyna á snerpuna í uppgefnum 306
hestafla bílnum.
Prufuaksturinn
Fyrst keyrði ég innanbæjar
og utanbæjar malbiksakstur á
rafhlöðunni einni. Eins og alltaf
byrjaði ég á að hljóðmæla bílinn á
90 km hraða með mælinn á lærinu og
útkoman var mjög góð, 67db. Margir
rafmagnsbílar hafa komið mun verr
út úr þessari mælingu.
Bíllinn er greinilega hannaður
fyrir malbiksakstur, hann svarar
vel í beygjum, bremsar vel og er
skemmtilegur í innanbæjarakstri. Á
möl kemur hann ekki eins vel út, þó
vissulega sé fjöðrunarkerfið gott þá
eru felgurnar of stórar og gúmmí í
dekkjum gefur nánast enga fjöðrun
(heggur of mikið á smáójöfnum og
holum). Steinahljóð er samt mjög
lítið undir bílnum. Greinilegt er að
bíllinn er vel einangraður í botninn
því ég fann og vissi vel þegar
smásteinar voru að spýtast undir
bílnum. Sennilega er rafhlaðan að
taka eitthvað af þessu smásteinahljóði
því hún er neðst undir bílnum á milli
fram- og afturhjóla.
Pláss gott og sæti þægileg
Það er mikið lagt upp úr öryggi
með ýmsum búnaði samanber
akreinalesari, blindhornsvari,
sjálfvirk neyðarhemlun, svig aksturs-
vari, umferðarskynjari, 7 öryggis-
loftpúðar, styrktarbitar í hurðum og
fleira.
Í bílnum er varadekk (ég kalla
svona dekk aumingja), en fæstir
rafmagnsbílar eru með varadekk
(man bara eftir tveim áður, Mini og
Jeep).
Speglar á hliðum eru mjög stórir
og sýna vel aftur fyrir bílinn. Allt
innrými virkar stórt og öll sæti
þægileg. Farangursrými er mjög
stórt (rétt innan við 500 lítrar með
sætin uppi og 1.168 lítrar með sætin
niðri).
Stærð hjólbarða er 235/55/19 sem
er fulllítið af gúmmí fyrir „ónýtt“
vegakerfi Íslands (hefði viljað sjá
og prófa 245/65/18 dekk og felgur
undir þessum bíl sérstaklega á
malarvegum).
Ágætis verð miðað við
hvað mikið er í bílinn lagt
Suzuki A-Cross kostar 8.589.000
(sambærilegur eða nánast sami
bíll með Toyota merkingum kostar
um 8.950.000). Ágætis verð fyrir
umhverfisvænan kraftmikinn bíl
sem virkilega gott er að keyra.
Hægt er að fá Suzuki A-Cross í
sex mismunandi litum og eitthvað
af bílum er hægt að fá afhenta strax.
Aðeins tvennt gat ég
fundið að bílnum, en það var
varadekksauminginn og lítil fjöðrun
úr dekkjunum sem eru of hörð og
fjöðrunarlítil á malarvegum.
Fyrir þá sem vilja fræðast
meira um bílinn er hægt að lesa
greinargóðar upplýsingar um
Suzuki A-Cross á vefsíðunni www.
suzuki.is .
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Plug-in Hybrid
Suzuki A-Cross GLX. Mynd / HLJ
Þarf ekki að hafa áhyggjur af
ljósabúnaði, kveikir ljós allan
hringinn. Mynd / HLJ
Suzuki og Toyota eru í samstarfi með smíði og hönnun á þessum bíl og næstum bara merking bílanna sem skilur
þá að. Mynd / HLJ
Mynd 10. Ekki margir rafmagnsbílar
sem ná svona lágri mælingu í db.
Sætin eru afar þægileg og rými gott. Mynd / Suzuki
Hér má sjá hvernig vélbúnaðurinn er samsettur. Mynd / Suzuki
Varadekkið er það sem ég kalla
aumingi, en í fæstum rafmagnsbílum
er varadekk. Mynd / HLJ
Suzuki Across fylgja bæði hleðslu
kapall fyrir hraðhleðslu og venjulega
220V kló. Mynd / HLJ
Hliðarspeglar óvenju stórir og góðir.
Mynd / HLJ
Undirliturinn í mælaborðinu breytist
eftir því hvort ekið er í sport eða
ecostillingu eins og hér er.
Lengd 4.635 mm
Hæð 1.690 mm
Breidd 1.8505 mm
Helstu mál og upplýsingar