Bændablaðið - 17.12.2020, Síða 86
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 202086
Næsta
Bændablað
kemur út
14. janúar
2021
Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ
Austurvegi 69, 800 Selfossi
Sími: 480 0000, www.aflvelar.is
SNJÓBLÁSARAR
Deluxe 24 DLE
Vélarstærð: 254cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 15,2 m
Afkastageta: Allt að 56,2t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539921323
Verð: 410.000 kr. m/vsk
Pro 28 DLE
Vélarstærð: 420cc
Vinnslubreidd: 71,1 cm
Vinnsluhæð: 59,7 cm
Blásturslengd: 18,3 m
Afkastageta: Allt að 71,6t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539926339
Verð: 595.000 kr. m/vsk
Classic 24E
Vélarstærð: 208cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 12,2 m
Afkastageta: Allt að 52,3t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539920328
Verð: 269.000 kr. m/vsk
62 verkefni fengu styrk úr Matvælasjóði
Fyrsta úthlutun úr Matvælasjóði
var kynnt í beinni útsendingu á vef
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins miðvikudaginn 16. des-
ember. Alls bárust 266 umsóknir
um styrki en 62 verkefni hljóta
styrk. Sjóðurinn hafði 500 millj-
ónir til úthlutunar að þessu sinni.
Styrkjaflokkarnir eru fjórir.
Flest verkefni eru styrkt í flokkn-
um Bára, sem styrkir verkefni á
hugmyndastigi, eða 36. Í flokknum
Afurð, sem styrkir verkefni sem
eru komin af hugmyndastigi, eru
átta verkefni styrkt. Í Keldu eru níu
verkefni styrkt, en þar eru verk-
efni sem miða að því að afla nýrrar
þekkingar. Loks hlutu níu verkefni
í flokknum Fjársjóði styrki, en þau
hafa það að markmiðið að styrkja
markaðsinnviði og stuðla að mark-
aðssókn afurða tengdum íslenskri
matvælaframleiðslu.
Flestar umsóknir á
hugmyndastigi
Alls bárust 126 umsóknir í Báru,
50 umsóknir í Afurð, 48 umsóknir
í Keldu og 37 umsóknir í Fjársjóð.
Sjóðurinn var stofnaður í apríl, en
hlutverk hans er að styrkja þróun og
nýsköpun við framleiðslu og vinnslu
matvæla úr landbúnaðar- og sjáv-
arafurðum. Hann verður til með
sameiningu Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins og AVS-rannsóknarsjóðs
í sjávarútvegi.
Áhersla er á nýsköpun, sjálf-
bærni, verðmætasköpun og
samkeppnishæfni íslenskrar mat-
vælaframleiðslu um land allt.
Hluti af öðrum aðgerðarpakka
vegna COVID-19
Unnið var að stofnun sjóðsins á síð-
asta ári en þeirri vinnu flýtt til að
bregðast við áhrifum COVID-19.
Var frumvarp um sjóðinn lagt fram
á Alþingi í apríl síðastliðnum sem
hluti af öðrum áfanga aðgerða til að
skapa efnahagslega viðspyrnu við
ástandinu.
Hlutverk Matvælasjóðs er að
styrkja þróun og nýsköpun við
framleiðslu og vinnslu matvæla úr
landbúnaðar- og sjávarafurðum.
Áhersla er á nýsköpun,
sjálfbærni, verðmætasköpun
og samkeppnishæfni íslenskrar
matvælaframleiðslu um land allt.
Sjóðnum er einnig heimilt að styðja
við vöruþróun og markaðssókn á
erlendum mörkuðum. Sjóðurinn
fylgir eftir heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Í þessum
tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og
rannsóknir einstaklinga og lögaðila.
Markmið sjóðsins er að ná til
verkefna á öllum stigum, allt frá
hugmyndum til markaðssetningar og
hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé
Matvælasjóðs samanstendur af fjár-
veitingu af fjárlögum hverju sinni
og öðrum tekjum eftir því sem
þeim er til að dreifa. Áætlað er að
Matvælasjóður muni hafa 628 millj-
ónir til umráða á árinu 2021 og er
stefnt á að opnað verði fyrir umsókn-
ir í mars og að önnur úthlutun sjóðs-
ins verði í maí 2021.
Haft er eftir Grétu Maríu
Grétarsdóttir, formanni stjórnar
Matvælasjóðs, í tilefni fyrstu
úthlutunar: „Við erum mjög ánægð
með viðtökurnar sem sjóðurinn fékk
og við getum verið bjartsýn hvað
framtíð matvælavinnslu á Íslandi
varðar þar sem einstök framtakssemi
og hugmyndaauðgi einkenndi
umsækjendur. Við fyrstu úthlutun
og yfirferð umsókna kom ýmislegt
í ljós sem við sjáum að hægt er að
bæta úr sem gert verður fyrir næstu
úthlutun. Við hvetjum alla sem
fengu ekki styrk að þessu sinni til
að vinna áfram í sínum hugmyndum
enda stutt í næstu úthlutun sem fer
fram í vor og stefnum við á að opna
fyrir umsóknir í mars. Samhliða
ætlum við að bjóða upp á rafrænt
námskeið fyrir umsækjendur sem
auglýst verður síðar. Einnig mun
styrkþegum standa til boða að
sækja rafræn námskeið sem munu
vonandi auka líkur á að verkefnin
náin tilsettum markmiðum.“ /smh
Í flokknum Báru eru 36 verkefni styrkt fyrir 97
milljónir króna:
FLAK ehf SJOSA - Fiski og þörungasósur
Freysteinn Nonni Mánason
Fullvinnsla laxafurða á Íslandi:
Hvar liggja tækifæri flökunar og hliðarafurða
Odda á Patreksfirði
Alejandra Gabriela Soto Hernandez No-dig Market Gardening
Responsible Foods ehf. Upcycling Food Waste
Hans Emil Atlason Sannprófanir á tauganetsaðferð
sem greinir fiskamyndir
Eydís Mary Jónsdóttir,
Karl Petersson, Hinrik Carl Ellertsson
Sjávarmál
Urta Islandica ehf Kerfilmjólk
GreenBytes GreenBytes
Icecal Kalkvinnsla úr kúfskel
Jamie Lai Boon Lee Kraftur úr Hafinu / Seaweed
and seafood Provisions
ALGÓ ehf SÆMETI
Telma Rut Bjargardóttir Bio-bones
Fiskvinnslan Hrefna ehf Laxgæti verður til
Sýslið verkstöð ehf Skógarkerfill - Illgresi eða
vannýtt matarauðlind
Steinn Arnar Kjartansson Leifur Arnar - Smáforrit gegn matarsóun
Emma Charlotta Aermaenen Könglar
Ólína Gunnlaugsdóttir
Jöklarinn: Orkustykki
og snakk úr fjallagrösum,
söli og harðfiski
Bragi Arnarson Upprunarakning á bálkakeðju
GMATT ehf
COD WINGS_ÞORSKVÆNGIR
- Verðmætaaukning á vannýttri afurð,
kviðugga á þorski
Finnrós ehf Marea
Nordic Kelp Afurðir úr Beltisþara
Atli Stefán Yngvason Vegangerðin
Eimverk ehf Íslenskt Malt Edik
Embla Dóra Björnsdóttir Fíflarót - allra meina bót
Hárækt ehf VAXA Reykjanesi
R&F ehf Hampur og jarðhiti
Björn A. Hauksson Kaffi Kóla
Jake Maruli Thompson Salmon on Seaweed
Víkurskel Tilraunaræktun á ostrum í landi
Helga Haraldsdóttir Kandís
Aska Spa ehf Icewine framleiðsla á Íslandi
Einar Örn Aðalsteinsson Kjötvinnslu breytt í atvinnueldhús
Brjálaða gimbrin Ærkjöt - betri nýting
Aldingróður ehf. Ræktun ætra blóma árið um kring
Syðra Holt ehf Sauðaostar og sauðaostagerð
Sæverk ehf Viðskiptaáætlun f. tilraunaveiðar og
markaðssetnigu á grjótkrabba
Í flokknum Kelda eru
níu verkefni styrkt fyrir
157 milljónir króna:
Punktur
ehf.
Kæling Lýstra Gróðurhúsa
Matís Greining á hringormum
í flökum
Matís Hákarlsverkun
Matís
Bætt gæði,
geymsluþol og
minni sóun í virðiskeðju
íslensks grænmetis
LBHÍ Mannakorn hafrar
Matís Streita Laxfiska
Matís
Verðmæt efni úr
hliðarstraumum
þörungavinnslu
RML
Fundið fé - þróun á
framleiðslukerfi í
sauðfjárrækt
Síldar-
vinnslan
Ný þráavarnarefni
og stöðuleiki makrílmjöls
Í flokknum Afurð eru
átta verkefni styrkt
fyrir 100 milljónir:
Marpet
ehf.
Heilsumolinn - framleiðsla á
heilsusnarli úr síld
fyrir gæludýr
ABC
lights ehf.
BIRTA - Gróðurhúsalausn
Sandhóll
bú ehf.
Þróun íslenskrar haframjólkur
Responsi-
ble foods Umbylting skyrs
Síldar-
vinnslan
Prótein úr
hliðastraumum makríls
Júlía Katrín
Björke Mývatns Spirulina
Norðlenska
Þróun framleiðsluvara
byggðum á íslenskum
jurtagrunni
BioBú
Heilandi máttur
lífrænnar mysu í krukku
Í flokknum Fjársjóður
eru níu verkefni styrkt
fyrir 127 milljónir:
Jurt ehf. Markaðssókn Nordic Wasabi á
Evrópumarkað
Niceland
seafood
ehf.
Markaðssetning á
frosnum fisk - Framtíð Íslensks
sjávarútvegs
Saltverk
ehf.
Markaðssókn á sjálfbæru
sjávarsalti frá SALTVERK í B
andaríkjunum
Pure
Natura
Markaðssókn á fæðubótar
efnum unnum úr hliðarafurð
um í sauðfjárrækt
SFS Markaðssókn þorsks á
Bretlandsmarkað
Feed the
viking ehf.
Þurrkaðar kjöt- og fisk
afurðir úr íslenskum hráefn
um á Bandaríkjamarkað
Bone &
Marrow
ehf.
Markaðsetning á heilsumat
vælum Bone and Marrow á
Íslandi
Verandi Verandi
Íslandsstofa
Kynning á söltuðum þorski
í Suður Evrópu – Kokkaskólar