Morgunblaðið - 28.08.2020, Page 26

Morgunblaðið - 28.08.2020, Page 26
NOREGUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Það hefur gengið mjög vel, bæði hjá mér persónulega og lið- inu. Ég gæti eiginlega ekki verið ánægðri,“ sagði Ingibjörg Sigurð- ardóttir, landsliðskona í knatt- spyrnu, í samtali við Morg- unblaðið. Ingibjörg hefur spilað gríðarlega vel með Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni á leiktíð- inni, en liðið er í toppsæti deild- arinnar með 23 stig eftir 10 leiki. Hefur Vålerenga ekki tapað síðan í fyrstu umferðinni og unnið sjö af síðustu níu. Ingibjörg hefur sjálf spilað alla leiki liðsins og skorað í þeim þrjú mörk og fjór- um sinnum verið valin í lið um- ferðarinnar af forráðamönnum deildarinnar. Hún segir góða gengið hafa komið sér örlítið á óvart. „Ég átti von á þessu hjá liðinu en svo veit maður aldrei með eig- in gengi. Ég var að koma inn í nýja deild og ég vissi ekki mikið um deildina, svo þetta hefur kom- ið aðeins á óvart þótt ég hafi miklar væntingar til sjálfs míns,“ sagði Ingibjörg sem kom til Vålerenga frá Djurgården í Sví- þjóð fyrir tímabilið. Hjá Djur- gården var hún í fallbaráttu stanslaust í tvö tímabil og eins og gefur að skilja er hún hrifnari af lífinu í toppbaráttunni. „Þetta er sambland af nokkrum hlutum sem skýrir mitt eigið gengi. Ég er í mun sterkara liði núna, þar sem ég var að berjast á botninum hjá Djurgården. Það er auðveld- ara að sýna hvað maður getur í sterkara liði og ég er í öðruvísi hlutverki núna. Það er erfitt að bera saman deildirnar en ég er fyrst og fremst í sterkara liði núna.“ Ekki grófari en aðrir Ingibjörg finnur fyrir áhuga í norskum fjölmiðlum og var hún m.a. í viðtali við Verdens Gang í Noregi á dögunum. „Það er mun meiri áhugi á kvennaboltanum í Noregi en í Svíþjóð. Það er mikið um blaðamenn og aðra sem sýna áhuga,“ sagði íslenska landsliðs- konan. Hafa nokkrir norskir fjöl- miðlar fjallað um að Ingibjörg sé gróf, en því er hún ekki sammála. „Ég veit ekki af hverju það er talað um það. Ég held að ég sé ekki grófari en aðrir leikmenn, en kannski halda þau að Íslendingar séu yfirhöfuð grófari en aðrir leik- menn. Kannski eru þetta fyrirfram ákveðnar hugmyndir hjá þeim. Mér finnst fyndið að þetta sé alltaf tekið fram í viðtölum. Ég er kannski grófari en einhverjar en á vellinum fer maður í einhvern gír. Sem varnarmaður vill maður vinna öll einvígi og það er ekki gaman að tapa einvígum og þá þarf maður að vera ákveðinn,“ sagði Ingibjörg ákveðin. Aðeins níu leikmenn deildarinnar hafa skorað meira en Ingibjörg á leiktíðinni, en hún skoraði mörkin sín þrjú á sex leikja kafla. Skoraði varnarmaðurinn því í öðrum hverj- um leik á tímabili. Hefur hún mest skorað þrjú mörk á heilu tímabili og líkurnar á að hún bæti persónu- legt met í markaskorun á þessari leiktíð eru því góðar. „Ég veit ekki hvað það er en þetta er að koma mér á óvart. Í einum leik fengum við 15-20 horn og við náðum ekki að setja mark. Eftir þann leik var ég fúl að ná ekki að nýta mér þau færi,“ sagði Ingibjörg, en hún er á meðal markahæstu leikmanna liðs- ins. Hún segist ekki endilega horfa á gullskóinn í deildinni, enda mið- vörður. „Ég veit ekki hvað ég mun skora mikið en fyrir tímabilið var ég að skoða tölurnar hjá Sergio Ramos hjá Real Madrid og hann skoraði 13 mörk á einu tímabili. Við sjáum hvort ég nái honum,“ sagði hún og hló. Góður taktur í liðinu Vålerenga tapaði á útivelli fyrir Sandviken í fyrstu umferð, 2:3, en síðan þá hefur liðið spilað gríð- arlega vel og komið sér fyrir í toppsætinu. Ingibjörg segir liðið hafa bætt sig mikið á skömmum tíma. „Fyrsti leikurinn var á móti mjög sterku liði á einum erfiðasta útivelli deildarinnar. Við vissum að það yrði erfiður leikur. Við áttum ekki góðan fyrri hálfleik á móti þeim og það hefur verið sagan okk- ar í sumar. Við höfum ekki alveg verið góðar í fyrri hálfleik, en sem betur fer er það að breytast. Við höfum þróast mikið sem lið síðan þá. Við náum mjög vel saman, bolt- inn gengur hratt og takturinn í lið- inu er góður. Það eru allir á sömu blaðsíðunni og á leiðinni í sömu átt. Þegar hugarfarið er þannig gengur oft mjög vel. Það var akkúrat líka þannig hjá Breiðabliki,“ sagði Ingi- björg, en hún er uppalinn hjá Grindavík og lék nokkra leiki með liðinu, þá fyrstu þegar hún var að- eins 14 ára, áður en hún fór til Breiðabliks og lék í sex ár áður en leiðin lá til Svíþjóðar. Varð hún Ís- landsmeistari með Breiðabliki árið 2015. Var Ingibjörg 19 ára þegar hún samdi við Djurgården og hún hvet- ur aðra leikmenn í svipuðum spor- um að taka af skarið og fara ungar í atvinnumennsku, nóg er af góðum ungum leikmönnum í íslensku deildinni sem myndu spjara sig í atvinnumannadeildum. „Það eru ótrúlega margar góðar stelpur í ís- lensku deildinni núna sem eiga al- veg möguleika á að spila bæði í Svíþjóð og Noregi. Ég get ekki mælt meira með þessu. Mín reynsla hefur verið mjög góð, bæði að spila í sterkari deild og að fara út fyrir þægindarammann. Ef mað- ur reynir á sjálfan sig verður mað- ur betri,“ sagði hún. Ingibjörg gerði tveggja ára samning við Vålerenga og einbeitir sér að því að spila vel með norska liðinu. Hún viðurkennir að á sama tíma stefni hún enn hærra. „Auð- vitað er maður með markmið og maður horfir á hvaða möguleikar eru í boði. Ég gerði tveggja ára samning við Vålerenga svo ég er meira að einbeita mér að þeirri þróun sem er hér. Það er mjög gott að vita hvar ég verð næstu tvö árin, en á sama tíma lítur maður í kringum sig á sterkari deildir,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir. Áhuginn meiri í Noregi en í Svíþjóð  Ingibjörg Sigurðardóttir og samherjar á toppnum í Noregi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsliðskona Ingibjörg leikur væntanlega með landsliðinu í september. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 2020 Lengjudeild kvenna ÍA – Haukar .............................................. 1:4 Afturelding – Grótta ................................ 3:1 Augnablik – Keflavík ............................... 3:3 Staðan: Tindastóll 9 7 1 1 23:5 22 Keflavík 10 6 3 1 29:11 21 Haukar 10 6 2 2 18:9 20 Grótta 10 5 3 2 13:10 18 Afturelding 10 4 3 3 14:13 15 Augnablik 9 3 3 3 14:19 12 ÍA 10 1 6 3 16:18 9 Víkingur R. 9 2 2 5 11:17 8 Fjölnir 9 1 1 7 4:20 4 Völsungur 8 0 0 8 4:24 0 2. deild kvenna Grindavík – ÍR.......................................... 2:1 Fram – Álftanes........................................ 4:2 Staðan: HK 9 8 0 1 34:2 24 Grindavík 9 6 1 2 21:8 19 Hamrarnir 9 4 2 3 14:13 14 Fjarð/Hött/Leikn. 8 4 1 3 17:17 13 Álftanes 7 4 0 3 12:20 12 ÍR 10 2 4 4 21:23 10 Hamar 7 2 1 4 11:20 7 Sindri 9 2 0 7 12:22 6 Fram 10 1 3 6 18:35 6 Evrópudeild UEFA 1. umferð, einn leikur: Olimpija Ljubljana – Víkingur R. ........... 2:1  Olimpija áfram í 2. umferð. Rosenborg – Breiðablik........................... 4:2  Rosenberg áfram í 2. umferð. FH – Dunajska Streda............................. 0:2  Dunajska Streda áfram í 2. umferð. Malmö – Cracovia.................................... 2:0  Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá Malmö á 76. mínútu.  Malmö áfram í 2. umferð. Bodø/Glimt – Kauno Zalgiris ................ 6:1  Alfos Sampsted lék allan leikinn með Bodø/Glimt.  Bodø/Glimt áfram í 2. umferð. Hammarby – Puskás Academy.............. 3:0  Aron Jóhannsson kom inn á hjá Hamm- arby á 54. mínútu.  Hammarby áfram í 2. umferð. Noregur B-deild: Lillestrøm – Strømmen........................... 1:0  Björn Bergmann Sigurðarson og Arnór Smárason voru ekki í leikmannahópi Lil- lestrøm. HamKam – Tromsø ................................. 0:2  Adam Örn Arnarson var ekki í leik- mannahópi Tromsø. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Pepsí Max-deild kvenna: Þórsvöllur: Þór/KA – Valur..................17:15 Lengjudeild kvenna: Extra-völlurinn: Fjölnir – Völsungur.......18 Sauðárkrókur: Tindastóll – Víkingur..19:15 Lengjudeild karla: Domusnova-völlur: Leiknir R. – Keflavík18 2. deild karla: Rafholtsvöllur: Njarðvík – Kórdrengir....18 Ásvellir: Haukar – Þróttur V. ..............19:15 Í KVÖLD! EVRÓPULEIKIR Kristján Jónsson kris@mbl.is Kórónuveiruárið 2020 reyndist ekki happadrjúgt í Evrópukeppnum hjá karlaliðunum íslensku í knattspyrnu. Þrjú þeirra, Víkingur R., FH og Breiðablik, féllu úr keppni í 1. um- ferð Evrópudeildarinnar í gærkvöldi. Áður hafði KR fallið úr keppni í 1. umferð Meistaradeildarinnar eftir 6:0 tap fyrir Glasgow Celtic. KR- ingar fá hins vegar keppnisrétt í 2. umferð Evrópudeildarinnar og eru því enn með verkefni í Evr- ópukeppni. Dregið verður í næstu viku og þá skýrist hverjir andstæð- ingar KR-inga verða. Lánið lék ekki við Víkinga í Lju- bljana í Slóveníu í gærkvöldi en þeir voru þó aðeins nokkrum mínútum frá því að komast áfram. Sölvi Geir Otte- sen, fyrirliði Víkings, fékk brottvísun strax á 5. mínútu þegar Víkingar heimsóttu Olimpija Ljubljana. Sölvi togaði í andstæðing rétt utan teigs sem var að sleppa einn inn fyrir vörnina. Á 27. mínútu komust Vík- ingar óvænt yfir. Erlingur Agn- arsson kom sér í skotfæri utan teigs og náði fínu skoti sem var varið. Bolt- inn hrökk út í teiginn til Óttars Magnúsar Karlssonar sem renndi boltanum í hornið af yfirvegun. Staðan var 1:0 þar til á lokamín- útunum þegar heimamönnum tókst að kreista fram jöfnunarmark gegn tíu Víkingum. Matic Fink tók bolt- ann á lofti hægra megin í teignum og í frekar þröngu færi en boltinn rataði neðst í fjærhornið. Vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast vegna kórónuveirunnar er aðeins einn leikur og er þá leikið til þrautar en ekki leikið heima og að heiman eins og tíðkast í þessum keppnum. Sigurmarkið kom á fyrstu mínútu síðari hálfleiks framleng- ingar en það skoraði Radivoj Bosic. Slóvakar stjórnuðu hraðanum FH var eina íslenska liðið sem fékk heimaleik og tók á móti Du- najská Streda frá Slóvakíu. Andrija Balic kom Dunajská Streda yfir á 23. mínútu eftir vel útfærða sókn. Eric Ramírez bætti við marki á 76. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Zsolt Kalmár sem Gunnar Nielsen varði út í teiginn og þar við sat. „FH-ingar voru lakari aðilinn frá fyrstu mínútu. Gestirnir frá Slóvakíu stjórnuðu hraðanum allan tímann og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir FH- inga til þess að keyra upp hraðann í seinni hálfleik gekk það illa. Hafnfirðingum tókst aldrei að opna varnarmúr Dunajská Streda að neinu ráði. Vissulega fengu þeir nokkur ágætistækifæri en þá voru iðulega teknar rangar ákvarðanir. Þegar allt kemur til alls voru Sló- vakarnir sterkari og sneggri en Hafnfirðingarnir og sigur þeirra var því aldrei í neinni hættu,“ skrifaði Bjarni Helgason í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Erfitt í Þrándheimi Blikar áttu erfiðan dag í Þránd- heimi og lentu 4:0 undir á fyrsta hálf- tímanum. Torgeir Børven skoraði strax á 4. mínútu. Tore Reginiussen og Even Hovland bættu við mörkum áður en Børven skoraði aftur á 29. mínútu. Blikar sýndu vilja til að gera betur og löguðu stöðuna í síðari hálf- leik með mörkum frá Viktori Karli Einarssyni á 61. mínútu og Thomasi Mikkelsen úr vítaspyrnu á 89. mín.. Öll þrjú féllu úr keppni  Víkingar voru næstir því að komast áfram  Lánið lék ekki við þá í Ljubljana  FH-ingar og Blikar áttu erfitt uppdráttar  KR-ingar enn með í keppninni Ársþing hand- knattleiks- félagsins Kristianstad var haldið í vik- unni en með lið- inu leika þeir Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson. Til- kynnt var um val á leikmanni ársins fyrir keppnistímabilið 2019- 2020 og hlotnaðist Teiti sá heiður. Teitur leikur sem skytta hægra megin í vörn og sókn hjá Kristians- tad og varð næstmarkahæstur hjá liðinu á tímabilinu en átti auk þess flestar stoðsendingar á samherja sína. Kristianstad komst á dögunum áfram í Evrópudeildinni keppn- istímabilið 2020-2021 án þess að spila eins og fram kom á mbl.is. Lið- ið átti að mæta norska liðinu Ar- endal í fyrstu umferð en ekkert varð úr því. Sóttvarnareglur í Noregi gera norsku liðunum erfitt fyrir og drógu þau sig úr keppni. kris@mbl.is Teiti sómi sýndur hjá Kristianstad Teitur Örn Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.