Lögmannablaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 10

Lögmannablaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 10
Á netinu einkaréttur, enda var mér kennt ungum í lagadeildinni að til skyldn- anna svari réttindi, skylda og réttur séu eins og samloka. Við þurfum að vera vel á verði gegn því að einkaréttur okkar verði skertur um- fram það sem er, við þurfum að reyna að auka þennan rétt og má segja að nokkuð hafi áunnist, sbr. t.d. 5. tl. 75. gr. gjaldþrotaskiptalaga nr. 21/1991 um skiptastjóra, sem að vísu er bundinn við lögfræðimennt- un en ekki lögmannsréttindi. Einnig má benda á 5. tl. 46. gr. 1. nr. 20/1991, um skipti á dánarbúum o.fl., sem spor í sömu átt. Við slíka hagsmunagæslu og sókn til aukins einkaréttar dugar ekkert betur en félagsskapur lögmanna og því fjöl- mennara sem félagið er, því fjár- hagslega öflugra er það og því máttugra baráttutæki fyrir fremd og framgangi lögmannastéttarinnar verður það. Niðurstaða: Skylduaðild að Lögmannafélagi íslands er sjálfsögð. Guömundur Ingvi Sigurðsson, brl. (böf- undur rekur lögmannsstofu í Reykja- vík). Allmargir lögmenn hafa þeg- ar tengst Alnetinu eða Internetinu og fleiri bætast stöðugt í hópinn. Þó yfir 50% allrar notkunar Alnetsins sé tölvupóstur- inn geta lögmenn jafnt sem aðrir fundið sitthvað af upplýsingum á netinu, sem gætu nýst þeim í starfi. Skal hér fátt eitt nefnt til. Fyrirtækið Úrlausn-Aðgengi ehf. vinnur nú að uppsetningu gagna- banka á netinu, Réttarríkinu, sem sérstaklega nýtist lögfræöingum. Slóðin er http://www.adgengi.is/- adgengi. Nú þegar getur þar að líta ýmsar mjög gagnlegar upplýsingar og má þar nefna lista yfir nýja laga- setningu frá áramótum, sem nýtist vel sem viðbót við Lagasafn AG. Þá hafa álit Umboðsmanns Alþingis verið sett í gagnagrunninn, einnig þau óbirtu frá þessu ári. Alþingi hefur heimasíðu með s 1 ó ð i n n i http://www.alt- hingi.is/. Er þar hægt að komast inn á gagna- grunn þingsins, þar sem allur texti úr ræðurn og þingskjölum frá og með 111. löggjafarþingi 1988-1989 hefur verið settur inn ásamt efnisorð- um frá 110. þingi. Upplýs- ingar eru færðar inn jafnóðum í gagnagrunninn og er þar m.a. hægt að skoða dagskrá ákveð- ins þingfundar og framkvæma textaleit í þing- skjölum og ræðum. Virðist þetta vera mjög öflugur grunnur og get- ur reynst ákaflega tímasparandi þegar leita þarf í lögskýringagögn- um, s.s. frumvörpum og umræð- um, i samanburði við hefðbundna leit í Alþingistíðindum, sem menn þekkja svo vel. Af íslenskum stjórnsýslustofnun- um með heimasíðu á netinu má nefna Menntamálaráðuneytið með slóðina http://www.ismennt.is/- opi/mrn/, en þar er m.a. að finna texta nýrra grunnskólalaga auk reglugerða settra með stoð í lögun- um. EUROPA er nafn á vefþjóni Evr- ópusambandsins og er heimasíðu- slóðin http://www.cec.lu/en/ind- ex.html. Þar má finna ýmsar upp- lýsingar um sambandið og stofnan- ir þess, auk þess sérstakan kafla um ESB-þjóðsögur og svör við þeim. Texti Maastrichtsáttmálans er á slóðinni http://www.echo.lu/eu- docs/en/maastricht/mt_top.html og Rómarsáttmálann í heild sinni má finna á slóðinni http://- www.tufts.edu/departments/- fletcher/multi/texts/BH343.txt. Texta norskra laga má finna með því að fara á heimasíðu Norges loWWWer, http://omni.uio.no/nl/- nl.html og er lögunum þar raðað í tímaröð. Heimasíðu Lovdata, sem selur norskan lagatexta og fleira á tölvutæku formi, er að finna á slóð- inni http://digdur.lovdata.no/. Loks má nefna að texta GATT- samningsins er bæði að finna á slóðinni http://ananse.irv.uit.no,- 80/44/trade/gatt/ og http://anan- se. irv .uit.no/trade_law/gatt/na v/- toc.html. Sif Konráðsdóttir, bdl. (böfundur rekur lögmannsstofu í Reykjavtk). H. Ólafsson & Bernhöft Sundaborg 9/36, 104 Reykjavík Meira en 65 ára reynsla í skrifstofubúnaði og skjalageymslu fyrir íslenskar skrifstofur. Skjalaskápar, skjalamöppur og allt tilheyrandi skjalageymslu frá Roneo Vickers. Skrifstofuhúsgögn, innréttingar og stólar með 3ja ára ábyrgð frá GDB International. Peningaskápar frá DAMs og öryggisskápar fyrir tölvur og tölvugögn frá Lampertz. Hafið samband við sölumenn okkar í síma 581 2499 eða fax: 568 0140. 10

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.