Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 19

Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 19
- Mynd á myndvarpa. Nemend- ur eiga að skrifa eða segja eins margar setningar og þau geta um það sem er að gerast á myndinni á ákveðnum tíma t.d. 3 mínútum. - Kennari sýnir einhverja mynd úr tímariti en aðeins í nokkrar sekúndur. Nemendur fá ákveðinn tíma t.d. 4 mínút- ur til að skrifa um það sem er á myndinni, búa til nokkurs konar sögu. Að 4 mínútum loknum les nemandinn sög- una fyrir næsta mann. Kenn- ari biður einhverja nemendur að lesa söguna sína. Kennari sýnir aðra mynd í stuttan tíma. Nemendur fá aftur 4 mínútur til að nota síðari myndina til að halda áfram með söguna sem þeir höfðu byrjað á. Aftur er lesið fyrir félaga. Endurtekið í þriðja skiptið með annarri mynd en í fjórða skiptið eiga nem- endur að ljúka við söguna þannig að endirinn tengist einhverjum hlut í stofunni. Að lokum er lesið fyrir næsta mann sem á að reyna að finna hvaða hlut sögumaður hafði í huga. - Nemendur vinna tveir og tveir saman. Kennari les texta en nemendur hlusta. Að lestrinum loknum eiga nem- endur að skrifa eins mörg orð og þeir muna úr textanum á ákveðnum tíma t.d. 4 mínút- um. Loks eiga nemendurnir að reyna að endurskrifa text- ann. - Nemendur skrifa stutta frá- sögn heima t.d. hvað þeir gerðu um síðustu helgi en inn í frásögnina eiga þeir að bæta við fimm atriðum sem geta ekki verið sönn. í næsta tíma les nemandinn frásögnina fyr- ir félaga sinn sem á að reyna að giska á hvaða fimm atriði eru ósönn. Penny Ur fjallaði einnig um skipulagningu einstakra kennslu- stunda. Hverri kennslustund má skipta í upphaf, miðju og endi. Byrjun kennslustundar: - að byrja á einhverju sem vek- ur áhuga nemandans svo hann langi að takast á við þau verkefni sem kennari leggur fyrir. MiÖja kennslustundar: - megináhersla á fjölbrejdni hvað varðar: efni, aðferðir, kennslutæki, viðfangsefni, vinnuhraða, virkni nemand- ans, þyngd verkefnis og hversu mikið frjálsræði nem- andi hefur við að leysa verk- efnin. Hvað ber að forðast við lok kennslustundar: - að ljúka of seint/of snemma - að byrja á einhverju nýju - að byrja á heimavinnu - að enda á neikvæðum nótum. Hvað ber að hafa í huga við lok kennslustundar: - að setja heimavinnu fyrir nokkru áður en kennslu- stund lýkur - að enda á einhverju allt öðru en verið er að fjalla um í kennslustundinni þannig að nemandinn fari úr kennslustofunni með því hugarfari að hann langi að koma aftur. I síðasta hefti Málfríðar var fjallað um námskrárgerð og mikilvægi hennar. Þó að þáttur Penny Ur og Andrew Wright á þessari ráðstefnu hafi ekki beint fjallað um námskrárgerð, þá má segja að sú áhersla sem lögð var á hlutverk námskrár sem hjálp- artækis fyrir kennarann við skipulagningu og undirbúning kennslunnar mætti vera leiðar- ljós okkar sem erum að vinna að markvissari námskrám fyrir tungumálakennslu í íslenskum skólum. Halla Thorlacius, Garðaskóla, Garðabæ. Með þökk fyrir viðskiptin Landsbankinn Suðurlandsbraut 18 19

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.