Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 20

Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 20
Aðalbjörg Björnsdóttir: Námskeið fyrir dönskukennara á Schæffergárden Námskeið var haldið á Schæf- fergárden í Gentofte í Danmörku dagana 26. júlí til 4. ágúst 1992. Félag dönskukennara gekkst fyrir námskeiðinu fyrir 20 framhalds- skólakennara og var 5 kennurum á grunnskólastigi boðin þátttaka. Málfríður Þórarinsdóttir úr stjórn félags dönskukennara og Ósa Knútsdóttir, fyrrverandi for- maður félagsins, tóku að sér fyrir hönd félags dönskukennara að sjá um allan undirbúning og stjórn námskeiðsins. Þetta mun vera í fimmta sinn, sem nám- skeið er haldið á Schæffergárd- en. Stóðu þær stöllur sig með sóma og vil ég þakka þeim kær- lega fyrir hönd okkar sem vorum þátttakendur á þessu námskeiði. Þátttakendur voru 25 frá 16 skólum, 22 konur og 3 karlar. Á Schæffergárden var aðbún- aður hinn besti, eins og þeir vita, sem áður hafa verið þar á nám- skeiðum. Allir fengu eins manns herbergi með baði. Fegurð um- hverfisins er rómuð meðal þeirra sem þar hafa dvalist. Göngu- og hjólastígar í nágrenninu voru óspart notaðir í hléum milli „stríða“. Sumir þurftu að passa upp á línurnar en aðrir vildu styrkja líkamann. Maturinn á Schæffergárden er ekki beinlínis hliðhollur línunum, eins og þeir vita sem hafa verið á námskeið- um þarna. En ekki má kvarta yfir veislumat alla daga vikunnar. Þetta námskeið var eins og fyrri námskeið býsna strembið, einkum þegar tekið er tillit til þess að hitabylgjur virðast alltaf vera viðloðandi þegar námskeið- in okkar eru haldin. Að minnsta kosti þjáðist undirrituð af þessum mikla hita, þó vön að búa í Danmörku, en ég held bara að veðurfarið hafi breyst síðan ég bjó þar fyrir tæpum 30 árum. Námskeiðið byggðist upp á fyrirlestrum, umræðum og ýmiss konar hópvinnu frá kl. 9 til 16 hvern dag. Auk þess var nokkur heimalestur á kvöldin. Klukku- tíma matarhlé var í hádeginu og tvö stutt kaffihlé. Boðið var upp á heimsókn í Karen Blixen safnið í Rungstedlund á Sjálandi og var það þegið með þökkum. Lagt var af stað á laugardagsmorgni kl. 9 og eftir að hafa skoðað þetta merka safn í nokkurn tíma og séð hið yndislega umhverfi við Rung- stedlund var okkur ekið niður á Ráðhústorg. Þar tvístraðist hóp- urinn, því allir vildu eyða síðustu peningunum í búðarrápi. Fyrsta laugardag hvers mánaðar eru búðir nefnilega opnar lengi í Kaupmannahöfn og þarna vorum við stödd laugardaginn 1. ágúst. Á námskeiðinu voru fjórir fyrirlesarar: Torben Brostrom, Flemming Olsen, Karen Lund og Helle Alro. Torben Brostrpm er bók- menntagagnrýnandi og fyrrver- andi prófessor við danska kenn- araháskólann. Hann var fyrsti fyrirlesarinn og var með yfirlit yfir danska smásagnagerð. Smá- sagan „fæddist" í byrjun 19. aldar í Danmörku og er talið að „Brudstykker af en Landsby- degns Dagbog“ eftir St. St. Blic- her 1824 sé ein af fyrstu dönsku smásögunum. Þessi fyrirlesari var bara einn dag með okkur. Hann benti á að það sem ein- kennir smásöguna er að atburð- urinn er miðpunkturinn. Síðan talaði hann einnig um „short story“ sem væri yngri tegund smásögunnar. Flemming Olsen var næsti fyr- irlesari og hann var hjá okkur í tvo daga. Hann er lektor í ensku við menntaskóla. Hann fjallaði um notkun sipásagna í kennslu erlendra tungumála. Kennslan fór fram á dönsku, en hann not- aði enskar smásögur. Lagði hann áherslu á að geta skilið, upplifað og metið smásöguna. Neman- dinn á að geta bent á hvar há- punktur sögunnar er, greint á milli sögumanns og höfundar og valið hvað hefur þýðingu fyrir skilning á textanum. Nemandinn á að geta gert sér grein fyrir þeirri mynd sem textinn sýnir og metið textann út frá því. Hann lagði áherslu á þrennt í samban- di við val á texta: Er textinn hæfi- lega þungur, hvernig er efnið og hefur það uppeldisfræðilegt gildi? Kennslan er svo á ábyrgð kennarans. Karen Lund var þriðji fyrirles- arinn. Hún er lektor við háskól- ann í Kaupmannahöfn og var hún með okkur í tvo daga. Hún fjallaði um kennslufræði erlendra tungumála, einkum með hliðsjón af hvernig megi þjálfa talfærni nemenda. Talaði hún um hinar ýmsu aðferðir í kennslu erlendra tungumála og mismun þeirra. Kom hún inn á eftirfarandi að- ferðir a) málfræði/þýðingar, b) beina aðferðin, c) bygging tungu- málsins (struktur metoden), og d) tjáskiptaaðferðin. Hún var mjög hlynnt hlutverkaleikjum í talæfingunum. Helle Alro var svo fjórði fyrir- lesarinn og var hún einnig með okkur í tvo daga. Hún er lektor í Álaborg. Hún sýndi notkun myndbanda við kennslu erlendra tungumála, einkum með hliðsjón af hvernig þjálfa megi talfærni nemenda. Sýndi hún okkur hinar ýmsu tegundir mynda, sem nota má í kennslunni svo sem glæpa- myndir, framhaldsmyndaflokka, fréttir og fleira, einnig hvernig mynd og hljóð getur stutt hvort annað. Talaði hún um „medie 20

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.