Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 25

Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 25
AÐ NÝJU MÁLI Sá sem er skapandi á auðveldara með að læra Maðurinn sjálfur má ekki gleymast í náminu. „Det egna jaget máste fá ett utrymme" Þetta voru meginatriði í fyrir- lestri Evu Cerú á námskeið sem Félag norsku- og sænskukennara hélt dagana 23.-24. október 1992 í Kennaraháskóla Islands. Eva Cerú er mjög vinsæll fyrir- lesari, bæði í heimalandi sínu Svíþjóð og annars staðar. Hún hefur mikla reynslu sem kennari og hefur hún aðallega kennt inn- flytjendum í Svíþjóð. Hún hefur gegnum árin skrifað fjölda kennslubóka og starfar nú m.a. við Kennsluútvarpið í Svíþjóð (UR). Um 20 kennarar tóku þátt í námsskeiðinu í KHÍ, bæði úr Reykjavík og utan að landi og ber öllum saman um að fyrirlestur Evu hafi verið mjög í anda yfir- skriftarinnar. Homo sapiens Allir eru ekki eins gerðir og passa ekki jafnvel inn í þessa „litlu kassa“. Sýndi hún marga kassa á glæru þar sem ýmsar manngerðir komu fram, t.d. voru sumar þeirra of stórar fyrir kass- ana sína, aðrar földu sig úti í horni. Sumir eru mjúkir og skap- andi og falla vel að umhverfinu o.s.frv. Með glærunum spilaði hún lágværa þægilega tónlist, þannig að andrúmsloftið fylltist samspili milli orða, tónlistar og myndlist- ar. Hugur viðstaddra opnaðist fyrir því hversu mismunandi og ólík við mannanna börn erum. I stað þess að við steypum alla í sama mót lagði Eva áherslu á hversu mikilvægt það er að hver og einn fái að njóta sín og skapa út frá sinni sjálfsímynd. Orð, mynd og tónlist Gegnum árin hefur Eva alla tíð notað orð, mynd og tónlist í málakennslu sinni, þrátt fyrir að hún hafi í fyrstu verið hikandi um hvort þetta væru réttar leiðir að markmiðunum. Hún hugsaði oft með sér: En hvað þetta var skemmtilegur tími! Hafa nemend- ur eiginlega lært nokkuð? Með tímanum hefur hún sann- færst um það betur og betur að „kreativitet“, það að skapa í nám- inu er mjög gott hjálpartæki til að nemendur læri. Svipaðar kenningar kvað hún koma fram m.a. í bókinni „Det musiske mennsket“ eftir Joan Roar Björ- kvold, prófessor í tónlist í Osló. „Kreativitet“ inni í námsskrá Eva hafði áhyggjur af því að sköpunarþátturinn yrði ef til vill skorinn of mikið niður í fyrir- hugaðri nýrri námskrá í Svíþjóð og að of mikil áhersla verði lögð á staðreyndarítroðslu í staðinn. Eins áleit hún að hætt væri við jániiserq __ drámma fala hóra tánkq íkriya * oppk.va minnas g dröfnati'sera 'W 1 utvecklas má|Q kánna 25

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.