Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 26

Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 26
að námskrár þrengdu oft of mik- ið af sjálfsímynd nemenda og væru ekki nógu sveigjanlegar. Hún benti á að mikilvægt væri að kennarar væru sér meðvitaðir um þetta atriði og að þeir ættu að reyna að hafa áhrif á nám- skrárgerð áður en hún er gefin út, því að erfiðara er að kvarta eftir á. Nokkrar hagnýtar œfingar úr fórum Evu Cerú. HLIÐIÐ Sýnd er glæra af hliði. Vinnuaðferð: a. Kennari les eftirfarandi sögu með innlifun til að leiða nemendur að grindinni. „Það er fallegur sumardagur og þú ert úti á hjólinu þínu. Það er hlýtt í veðri og ofurlítil gola leikur um hár þitt. Þú ert allt í einu komin inn á veg sem þú hefur ekki séð áður. Þú hjólar af augum án þess að hafa nokkurn ákveðinn áfangastað í huga. Þér líður vel og þú ákveður að setjast niður og fá þér nestisbita. Þú ert komin að stórri beygju á veginum og bak við hana endar vegurinn. Þú nemur staðar og ert allt í einu stödd fyrir framan gamaldags hlið.“ Nú sjá nemendur glæru af hliðinu. Kennari heldur áfram að segja frá: „Þú verður auðvitað forvitin! Þú ferð af hjólinu og stillir því upp við hliðið. Þú opnar það og í því er þú gengur inn um það, snarstopparðu.... En hvað er nú þetta??? b. Nemendur eiga nú að ráða í framhaldið með því að nota ímyndunaraflið Þeir teikna/mála eða skrifa. c. Festið upp á vegg myndir sem nemendur hafa teiknað/ málað um söguna. Þeir sem hafa skrifað lesa upp sína sögu. ELDHÚSIÐ Vinnuaðferð: Kennari bregður upp glæru af tómu eldhúsi á myndvarpa. Einn nemandi er beðinn að koma upp. Hinir nemendurnir fá nú ljósrit af sama eldhúsi, en nú er eldhúsið fullbúið með borði, stólum, áhöldum, mat og öðru því sem tilheyrir eldhúsi. Nemandinn við glæruna á nú að teikna inn borð, stóla og annað sem í eldhúsinu er og fær til þess glærupenna í ýmsum litum. Hver nemandi biður „glærumann“ að teikna ein- hvern einn hlut inn á glæruna og notar að sjálfsögðu við það hið erlenda tungumái. Aðalatriðið er að teiknað sé nákvæmlega eftir fyrirmælum. a) I sumum tilvikum getur verið heppilegt að kennari gefi upp orð á töflu á undan. b) I bekkjum þar sem nemendur hafa góða undirstöðu í málinu getur nægt að skrifa upp heiti á töfluna eftir að „glærumaður“ hefur teiknað hann inn á glæruna. 26

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.