Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 27
Haiku
Nemendur skrifa Haiku-ljóð
sem er byggt upp á eftirfarandi
hátt: alls 3 línur.
1. lína samanstendur af 5 at-
kvæðum.
2. lína samanstendur af 7 at-
kvæðum.
3. lína samanstendur af 5 at-
kvæðum.
Ljóðið þarf ekki að vera rímað,
en nemendur eiga að taka e-ð
ákveðið fyrir t.d. vinátta, ást, ná-
túru, landslag, skóla, tónlist, úti-
veru o.s.frv.
Kennari leitast við að skapa
ljóðrænt andrúmsloft í stofunni,
fá kyrrð og ró, opna skilningavit
nemenda. Til þess má nota lá-
græna tónlist og/eða myndir eða
annað sem kenarinn dettur í hug.
Dæmi um haiku:
Gá glad til skolan
bord‘ vara en ráttighet
Sá ár det inte!
Auglýsingar
Kennari kemur með mynda-
auglýsingar án texta.
Nemendum skipt í smáhópa 2-
4. Hver hópur fær eina auglýs-
ingu, glæru og glærupenna. Hóp-
urinn ræðir saman um hvað
verið er að auglýsa og kemur sér
saman um myndatexta sem skrif-
aður er á glæruna. Hvetja til að
finna stuttan texta sem hittir í
mark. Hver hópur kemur upp og
sýnir sína glæru á myndvarpa.
Eva benti réttilega á að oft getur
verið auðveldara fyrir nemendur
að standa fyrir máli sínu með
hjálp glæru. Menn horfa á það
sem „glærumaður“ er að sýna, en
ekki á hann sjálfan.
Björg Juhlin,
Sigrún H. Hallbek,
Menntaskólinn við Hamrahlíð.
KENNARAR TAKIÐ EFTIR
Við höfum flutt námsbókaþjónustu okkar að
Austurstrœti 18, 2. hœð (fyrir ofan verslunina).
Nýtt símanúmer er 13522, faxnúmer er 616109.
Þar verðum við með myndarlegt sýningarpláss
fýrir nýjar kennslubœkur.
Einnig viljum við vekja athygli ykkar á
glœsilegri sýningu á nýjum/nýlegum erlendum
kennslubókum og sögubókum í ensku, dönsku,
frönsku og þýsku.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 15. maí
n.k., og stendur í nokkrar vikur.
Verið velkomin
Eymimdsson hf
27