Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 29
(A copy of a letter of applica-
tion is given as a model).
Elísabet Gunnarsdóttir,
Rannveig Jónsdóttir
Fjölbrautaskólinn v/Ármúla.
Enska
Námsstig: ætlað fyrir nemend-
ur á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Markmið'. að nemendur kynn-
ist nýjum bekkjarfélögum og
æfist um leið í að leita upplýs-
inga með spurningum. Til að
sem bestur árangur náist, er
mælst með því að þessi æfing sé
notuð strax í upphafi fyrstu
annar (fyrstu kennslustund) þeg-
ar nemendur hittast í fyrsta sinn.
Kennslugögn: 14 pör af kort-
um, 3 glærur.
Aðferð: Kennslan fer svo til að
öllu leyti fram á ensku. Áður en
kennslustundin hefst, hefur
kennarinn útbúið 28-30 kort (á
stærð við spil) sem mynda 14-15
samstæður eða pör. Á annað
kortið er límd mynd sem klippt
er úr blaði eða teiknuð, en á hitt
kortið er skrifaður stuttur texti
sem lýsir mvndinni. Kennarinn
útskýrir verkefnið fyrir nemen-
dum í fáum orðum og dreifir
síðan kortum (á stærð við spil)
til nemendanna og ræðst það af
fjölda nemendanna hversu mörg
kortapör þarf að nota. Nemen-
durnir standa allir upp og ganga
um stofuna í leit að hinum hel-
ming samstæðunnar Þeir mega
ekki sýna kortin sín, heldur þarf
að finna mótaðilann með því að
spyrja. Þegar allir hafa fundið
„sinn mann“ setjast nemendurnir
tveir og tveir saman og hafa við-
tal hver við annan. Áður en við-
tölin hefjast, bregður kennarinn
upp glæru þar sem tilgreind eru
þau atriði sem spyrj5a á um i við-
talinu og skrifa nemendur þau
hjá sér. Næst er kynntur sá orða-
forði sem nauðsynlegur gæti
reynst og hann hafður á glæru á
myndvarpanum á meðan á við-
tölunum stendur. Það ræðst
síðan af tíma og getu nemenda
hvort þeir kynna félaga sinn fyrir
bekknum strax að loknu viðtalinu
eða fara heim og vinna viðtalið
betur með það fyrir augum að
flytja það fyrir bekkinn í næsta
tíma. Með um 20 nemendur í hóp
tekur þessi æfing rúma klukku-
stund ef allt er gert í einu.
Ásdís Ó. Vatnsdal,
Nell McMahon
Menntaskólinn í Kópavogi.
Franska
Talæfing sem er í senn les-
skilnings-, hlustunar- og ritunar-
æfing.
Efni: Tveir textar A og B (geta
verð misjafnlega langir og erfiðir
eftir því í hvaða áfanga þeir eru
notaðir).
Útfærsla:
1. Bekknum er skipt í tvennt,
helmingurinn af nemend-
29