Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 31
FRETTIR - FRETTIR - FRETTIR
Frá Félagi
dönskukennara
Aðalfundur félagsins var hald-
inn í febrúar síðastliðinn. Þar var
kosin ný stjórn sem er eftirfar-
andi: Formaður: Erna Jessen,
varaformaður: Kirsten Friðriks-
dóttir, gjaldkeri: Ellen Svavars-
dóttir, ritari: Hafdís Ágústsdót-
tir, meðstjórnendur: Hulda
Friðriksdóttir, Magnús Magnús-
son og Þórhildur Oddsdóttir.
Dagana 8.-11. júní verður hald-
ið námsskeið fyrir framhalds-
skólakennara í dönsku og
dönskukennara í efstu bekkjum
grunnskóla á Islandi og sænsku-
kennara í Finnlandi. Námskeiðið
verður haldið á Álandseyjum. Fy-
rirlesarar verða Irene Kristansen
frá Finnlandi, sem mun fjalla um
„effektive innláringsstategier i
frámmande sprák" og Lára Ste-
fánsdóttir mun kynna hvernig
nota má tölvufjarskipti í tungu-
málakennslu á Norðurlöndum.
Námskeiðið er styrkt af Norrænu
ráðherranefndinni. Enn eru laus
pláss. Allar nánari upplýsingar
veitir Michael Dal í síma 32969.
Dagana 25.-27. ágúst mun
Félag dönskukennara í samstarfi
við Endurmenntun Háskóla ís-
lands, gangast fyrir námskeiði
þar sem fjallað verður um mál-
fræðikennslu og ritun.
Frá Félagi
enskukennara
Það helsta í fréttum hjá FEKI
er að einn fræðslufundur var
haldinn á vorönn þar sem Gerda
Cook sagði frá samræmdum
enskuprófum í Hollandi. Aðal-
fundur félagsins verður haldinn
um miðjan maí og verður bóka-
sýning í tengslum við fundinn.
Dagana 8.-15. ágúst verður hald-
ið námskeið fyrir félagsmenn í
Bell School í Cambridge. Nám-
skeiðið er haldið í samvinnu við
endurmenntunarstofnanir KHÍ
og HI. Mikil aðsókn hefur verið
að námskeiðinu og því miður
komast færri að en vilja.
Halla Thorlacius
Frá Félagi
frönskukennara
Fyrirhugað er fjórða nám-
skeiðið í samvinnu við háskól-
ann í Montpellier. Efni nám-
skeiðsins er „la pédagogie de
l‘écrit“. Megin þema námskeiðs-
ins er kennsla í ritun og ritmál.
Auk þess verður fjallað um þjóð-
félags- og menningarsögu, „la ci-
vilisation". Leiðbeinendur verða
Pierre Dumont, directeur de
I.E.E. de Paul Valéry, og Michel
Verdelhan, maitre de conféren-
ce. Námskeiðið verður væntan-
lega haldið um miðjan júní. Rit-
gerðarsamkeppni á vegum
Alliance Frangaise ætluð fram-
haldsskólanemum í 28 Evrópu-
löndum verður haldin hér í vor.
Verðlaun eru vikudvöl í París.
Petrína Rós Karlsdóttir
Frá Félagi
þýzkukennara
Starfsemi félagsins hefur
verið með nokkuð hefðbundum
hætti í vetur. Þó ber að geta
þess að félagið stóð þann 12.
febrúar sl. fyrir þýskuþraut fyrir
framhaldsskólanemendur 16 til
18 ára. Var keppnin haldin sam-
tímis um allt land. Þátttaka var
mjög góð, alls tóku 154 nem-
endur þátt í keppninni. Það voru
tvær stúlkur önnur úr MR hin úr
Framhaldsskólanum í Austur-
Skaftafellssýslu sem urðu hlut-
skarpastar og fá þær mánaðar-
dvöl í Þýskalandi í verðlaun.
Innan félagsins er starfandi
hópur um námskrá í þýsku og
vinnur hópur þessi ötullega um
þessar mundir.
Fimm styrkir voru veittir til
þýskukennara til að fara á en-
durmenntunarnámskeið í
sumar, tveir af Goethe-stofnun
og Deutsche Auslandsgesellsc-
haft styrkti 3 þýskukennara til
að taka þátt í sumarnámskeiði í
Lúbeck.
í samvinnu við austurríska
menntamálaráðuneytið og end-
urmenntunarnefnd HÍ verður
haldið námskeið í Payerbach í
Austurríki dagana 29. maí til 7.
júní. Þátttakendur í námskeiðinu
eru 30.
Innan félagsins starfar tölvu-
hópur sem vinnur að gerð náms-
efnis sem nota má við þýsku-
kennslu í tölvum.
Dagana 2. til 7. ágúst verður
haldið alþjóðaþing þýskukenn-
ara (IDV) í Leipzig og eru þeir
þýskukennarar sem hyggjast
fara og eiga eftir að skrá sig
hvattir til að gera það fyrir mán-
aðarmót.
Oddný G. Sverrisdóttir, formaður
Frá STÍL:
STIL vill vekja athygli á tveim-
ur námskeiðum sem haldin
verða í sumar og haust. Hið fyrra
er Námskeið um námsmat og
prófagerð í íslensku, stærðfræði
og erlendum málum, haldið 16.-
18. ágúst í Kennaraháskóla ís-
lands. Námskeiðið er framhald
námskeiðs um námskrárgerð
sem haldið var í fyrra, og er
ætlað kennurum á grunn- og
framhaldsskólastigi. Síðara nám-
skeiðið nefnist Myndlist í tungu-
málakennslu, leiðbeinandi
Marie-Alice Séférian prófessor í
frönsku og fjallar um hvernig
nota má myndlist við kennslu er-
lendra tungumála.
Sænskukennarar
athugið
Stundakennara vantar í
sænsku við heimspekideild
HI. Kennslugreinar: Málfræði,
þýðingar og Saga og menning.
Umsóknum skal skilað á skrif-
stofu heimspekideildar í Árna-
garði við Suðurgötu. Upp-
lýsingar um kennsluna veitir
sænski sendikennarinn Ylva
Hellend, vs.: 15019, hs.: 29195.
Vinsamlegast skilið um-
sóknum fyrir 24. maí 1993.
Skor þýsku- og
Norðurlandamál
31