Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 32

Málfríður - 15.05.1993, Blaðsíða 32
NYJAR BÆKUR TIL TUNGUMÁLAKENNSLU Brugsdansk eftir Auöi Hauksdóttur og Elísabetu Valtýsdóttur er bæöi handbók og vinnubók í hagnýtri málnotk- un, sem ætluð ertil kennslu í framhaldsskólum. Efnið er sett fram á einkar aðgengilegan hátt og fjölmargar teikningar og skýringarmyndir auð- velda nemendum að skilja málfræðireglur og setjasig inn í margvíslegaraðstæðurmálnotkun- ar. Efninu er skipt í tíu kafla eftir orðflokkum. Þó er lögð áhersla á að orðin eru ekki einangruð fyrirbæri heldurfá merkingu í því samhengi sem þau eru notuð hverju sinni. Nýtt frönskuennsluefni: A propos Mál og menning mun á næstunni hefja útgáfu á nýju frönskukennsluefni sem heitir A propos. Efnið samanstendur af lesbók, vinnubók og hlust- unarefni. Fyrri hluti þessa efnis kemur út í sumar. Áætlað er að sá hluti henti tveimur fyrstu áföngum framhaldsskóla. Síðari hlutinn kemur út næsta sumar. Verkið er sænskt að uppruna en Jórunn Tómasdóttir annast íslensku útgáfuna. Málí^jlog menning

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.