Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Page 4
Kópavogsblaðið4 Föstudagur 20. maí 2016
OrlOfs-
nefnd
húsmæðra í Kópavogi
Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi
Upplýsingar og skráning hjá Guðrúnu
sími: 564 2373, 864 2373 og
Lilju sími: 868 9563
Nefndin
Ferðir 2016
Kynningafundur 25. maí í
Félagsmiðstöðinni í Gjábakka
Hamraborg kl. 17-18.
Dagsferð: 4. júní í Dalina.
Dagsferð: 3. sept. í Þórsmörk.
Haustlitaferð í Svartaskóg: 22. sept. – 29. sept.
Aðventuferð til Gdansk: 5.des. – 9. des.
„Sérhver kona, sem veitir eða hefur
veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir
það starf, á rétt á að sækja um orlof.“
Árni Vilhjálmsson, atvinnumaður með
norska úrvalsdeildarliðnu Lillestöm.
Árni ásamt foreldrum sínum Vilhjálmi Árna Ásgeirssyni og Katrínu S. Guðjóns-
dóttur og systur sinni Kristínu Ásu Vilhjálmsdóttur.
Árni ásamt sambýliskonu sinni Ástrósu Traustadóttur. En þess má geta að hún er
dóttir Trausta Ómarssonar, Blikans góðkunna.
Blikinn Árni Vilhjálmsson spil-ar nú sem atvinnumaður með norska úrvalsdeildarliðinu
Lilleström. Árni er fæddur árið 1994
og er nýorðinn 22 ára. Hann var lykil-
maður í Blikaliðinu áður en hann
hélt til Noregs. Hann skoraði meðal
annars 10 mörk í Pepsí-deildinni
árið 2014. Árni á að baki 29 leiki með
yngri landsliðum Íslands. Útsendari
Kópavogsblaðsins hitti Árna í Osló
fyrir skömmu og spurði hann spjör-
unum úr um atvinnumennskuna og
lífið í Noregi. Fyrsta spurningin sem
Blikinn knái svaraði var hvernig væri
að búa í Lilleström. „Það er fínt,“
sagði Árni. „Lilleström er lítill og
huggulegur bær í útjaðri Osló. Það
tekur aðeins um 10 mínútur að ferð-
ast með lest til miðborgar Osló. Íbúar
hér eru um 14 þúsund og knatt-
spyrnuliðið er stolt bæjarfélagsins.
Mikill áhugi er á knattspyrnu í bæn-
um og á leikdegi snýst bæjarbrag-
urinn allur um leikinn.“
Lilleström er fornfrægt lið í norsk-
ri knattspyrnu. Engin klúbbur hefur
verið jafn lengi í efstu deild og þar að
auki hefur liðið fimm sinnum orðið
norskur meistari (síðast 1987). Þar
að auki hefur félagið fimm sinnum
orðið bikarmeistari (síðast 2007).
Margir íslenskir leikmenn hafa
spilað með Lilleström þar á meðal
Stefán Gíslason, núverandi þjálfari
2. flokks Blika, Finnur Orri Margeirs-
atVinnumaðurinn
„Noregur góður stökkpallur,“
segir Blikinn Árni Vilhjálmsson
hjá Lilleström
son, Rúnar Kristinsson og Heiðar
Helguson.
Mjög góð æfingaaðstaða
Útsendari Kópavogsblaðsins getur
staðfest að Árni er þekktur í bænum
því þegar gengið var um miðbæinn
þá voru margir sem snéru sér við til
að spjalla við hann. Þegar sest var
niður á kaffihúsi þurftu flestir þjón-
arnir að ræða aðeins við Blikann
knáa um tilvonandi leiki. „Það hafa
flestir íbúar Lilleström sterkar skoð-
anir á gengi liðsins,“ sagði Árni
kankvís. „Þegar okkur gengur vel
vilja allir tala við okkur og við höfum
nóg að gera að gefa eiginhandar-
áritanir og gefa „high-five.“ En þegar
illa gengur þá horfir fólk nánast í
gegnum okkur og við fáum illt auga
frá ótrúlega mörgum. Ég verð að
viðurkenna að ég átti ekki von á
svona mikilli ástrííðu hjá Norðmönn-
um,“ bætir hann við hlæjandi.
Æfinga- og keppnisaðstaða klúbb-
sins er mjög góð. Leikvangurinn sem
tekur rúmlega 14 þúsund manns er í
hjarta bæjarins. Í kringum leikvang-
inn hafa verið byggðar íbúðir og á
jarðhæð eru verslanir. Samt sem
áður virðist vanta meiri heildarsvip
á vallarumhverfið. Knattspyrnuvöll-
urinn sjálfur er hins vegar fínn og
áhorfendur sitja nálægt vellinum
sjálfum. Meðalaðsókn á leiki er í
kringum 10 þúsund og selja þeir um
sex þúsund árskort. Æfingasvæðið
er skammt þar frá en þar er meðal
annars yfirbyggður gervigrasvöllur
svipaður Kórnum. „Við getum ekki
kvartað enda eru fá lið í Noregi með
jafn góða æfingaaðstöðu og við,“
segir Árni.
Blikinn spilaði töluvert á síðasta
keppnistímabili en á þessu ári hefur
Kópavogsbúinn þurft að sætta sig
við töluverða bekkjasetu. Hvernig
tilfinning er það? „Þetta er auðvitað
alveg hundfúlt því ég tel mig nógu
góðan til að vera í liðinu,“ segir Árni
ákveðinn enda vita þeir sem þekkja
piltinn að hann er mikill keppnis-
maður. „Þjálfararnir ráða þessu og ég
verð bara að leggja mig meira fram
bæði á æfingum og í leikjum til að
sýna að ég eigi heima í byrjunarlið-
inu. Markahæsti leikmaðurinn okkar
verður að öllum líkindum seldur í
sumar og það ætti að opna fleiri
möguleika fyrir mig að spila.“
Mörg norsk lið hafa lent í fjárhags-
vandræðum á undanförnum árum
og er Lilleström eitt þeirra. Verður
Árni var við þessa erfiðleika. „Nei, í
raun og veru ekki. Þetta er eitthvað
sem við lesum bara um í fjölmiðlum.
Við leikmennirnir fáum til dæmis
alltaf borgað á réttum tíma og það
er allt til alls hjá klúbbnum. Í tíð fyrri
stjórnar lenti klúbburinn í örðugleik-
um en núverandi stjórn hefur smám
saman verið að vinna sig út úr þeim
erfiðleikum. En því er ekki að leyna
að það er aðhald í öllu en það er allt
í lagi,“ segir Árni. Þegar hann er
spurður hvar hann sjái sig eftir 3-5
ár hugsar hann sig vel um. „Ég á eitt
og hálft ár eftir af samningi mínum
hér hjá Lilleström. Ég þarf því fyrst
og fremst að einbeita mér að því að
bæta mig sem leikmaður hér í Noregi
og tryggja mér fast sæti í liðinu. Þá
get ég farið að hugsa næstu skref. En
auðvitað á maður sér þann draum
að spila í stærri deild. Ég gæti alveg
hugsað mér að spila í Hollandi eða
jafnvel á Ítalíu ef allt gengur upp.
Maður verður að þora að hugsa stórt
og stefna hærra. Noregur hefur
sýnt sig sem góður stökkpallur fyrir
íslenska leikmenn en þetta stendur
og fellur fyrst og fremst með sjálfum
mér,“ segir Árni Vilhjálmsson Bliki
og núverandi leikmaður Lilleström
í Noregi.
Birt í samstarfi með blikar.is.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson