Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Blaðsíða 5
Kópavogsblaðið 5Föstudagur 20. maí 2016
Matsveina-og matartæknanám er fyrir þá sem starfa eða vilja starfa við matreiðslu og
stjórnun í eldhúsum leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaða og heilbrigðisstofnana.
Námið er einnig heppilegt fyrir þá sem starfa á fiski- og flutningaskipum og
í ferðaþjónustu. Innritun stendur yfir á menntagatt.is
Snillingarnir Nigel Short
og Hjörvar Steinn mætast
í MótX-einvíginu
Hjörvar Steinn Grétarsson er yngsti stórmeistari Íslands í skák.
Goðsögnin Nigel Short og Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti stórmeistari Íslands,
mætast í MótX-einvíginu í Salnum í
Kópavogi, helgina 21.-22. maí. Skák-
félagið Hrókurinn skipuleggur þenn-
an stórviðburð í íslensku skáklífi,
og má búast við mjög skemmtilegu
einvígi, en báðir meistararnir eru
þekktir fyrir frumlegan stíl og snill-
dartilþrif á skákborðinu. Aðgangur
að einvíginu er ókeypis og eru
Kópavogsbúar á öllum aldri hvattir
til að mæta og fylgjast með sögulegri
viðureign.
Tefldi við Kasparov um
heimsmeistaratitilinn
Nigel Short fæddist 1965 og var
undrabarn í skák. Fjórtan ára gamall
varð hann yngsti alþjóðameistari
Laugardagur 21. maí
Kl. 14: Setningarathöfn
og 1. skák.
Kl. 15: 2. skák.
Kl. 16: 3. skák.
Sunnudagur 22. maí
Kl. 14: 4. skák.
Kl. 15: 5. skák.
Kl. 16: 6. skák og verðlauna-
afhending.
Nánari upplýsingar veitir
Hrafn Jökulsson,
sími: 695 0205.
StórViðBurður í Skák í kópaVOgi
sögunnar. Stórmeistari varð hann 19
ára og var þá yngstur allra í heimin-
um sem báru þann eftirsótta titil.
Short hefur unnið tugi alþjóðlegra
skákmóta og verið í fremstu röð í
áratugi. Íslendingar minnast sigurs
hans á hinu gríðarlega sterka IBM-
skákmóti í Reykjavík 1987 þar sem
jöfrar á borð við Tal, Timman og
Korchnoi voru meðal keppenda, auk
bestu skákmanna Íslands. Short
vann sér rétt til að tefla um heims-
meistaratitilinn við sjálfan Garry
Kasparov árið 1993, en beið lægri
hlut.
Galdrastrákur úr Grafarvogi
Hjörvar Steinn Grétarsson fæddist
1993 - árið sem Short glímdi við
Kasparov um heimsmeistaratit-
ilinn - og vakti kornungur mikla at-
hygli fyrir hæfileika sína. Hann var
lykilmaður í sigursælum skáksveit-
um Rimaskóla, sem sópuðu til sín
Íslands- og Norðurlandameistara-
titlum í skólaskák.
Hjörvar náði fyrsta stórmeistara-
áfanga sínum á Evrópumóti lands-
liða í Porto Carras árið 2011, þar sem
hann lagði m.a. snillinginn Alexei
Shirov í glæsilegri sóknarskák. Hann
tryggði sér svo stórmeistaratitilinn á
EM-taflfélaga á Rhodos 2013.
Hann er nú næststigahæsti skák-
maður Íslands með 2580 stig. Hjör-
var Steinn náði besta árangri
íslensku landsliðsmannanna á
Evrópumóti landsliða í Laugardals-
höll sl. haust, og er til alls líklegur
gegn Short, þótt enski meistarinn
skarti nú 2671 skákstigi.
Spennandi og skemmtilegt
einvígi framundan
Nigel Short og Hjörvar Steinn munu
tefla sex atskákir í MótX-einvígu í
Salnum. Umhugsunartími er 25
mínútur fyrir hvorn keppanda. Það
er mun styttri tími en í hefðbundn-
um kappskákum, og því mun
skemmtilegri fyrir áhorfendur,
enda má búast við tímahraki með
tilheyrandi fjöri. Einvígið hefst
laugardaginn 21. maí klukkan 14
og mun Theódóra S. Þorsteinsdótt-
ir leika fyrsta leikinn. Þrjár skákir
verða tefldar á laugardaginn og þrjár
á sunnudeginum.
Auk MótX og Hróksins taka Kópa-
vogsbær, Reykjavík Residence Hotel,
Heimilistæki, Edda útgáfa og skák-
deild Breiðabliks þátt í þessari
skemmtilegu skákhátíð.
Skáklífið í Kópavogi hefur blómst-
rað að undanförnu og sífellt fleiri
grunnskólar láta að sér kveða. Þá
er mikill kraftur í skákdeild Breiða-
bliks undir forystu Halldórs Grétars
Einarssonar. Framtíðin í skáklífi
Kópavogs er því björt og MótX-ein-
vígið er ekki síst hugsað til þess að
gefa ungum skákáhugamönnum í
Kópavogi kost á að sjá og upplifa
stórviðburð á skáksviðinu.
Dagskrá MótX-
einvígisins í Salnum:
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
OG MATVÆLASKÓLINN FERÐAMÁLASKÓLINN LEIÐSÖGUSKÓLINN
Upplýsingar í síma 594 4000
Stutt, hagnýtt starfsnám
HEILSA OG MATUR
MATSVEINN – MATARTÆKNIR