Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Side 5

Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Side 5
Kópavogsblaðið 5Föstudagur 20. maí 2016 Matsveina-og matartæknanám er fyrir þá sem starfa eða vilja starfa við matreiðslu og stjórnun í eldhúsum leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaða og heilbrigðisstofnana. Námið er einnig heppilegt fyrir þá sem starfa á fiski- og flutningaskipum og í ferðaþjónustu. Innritun stendur yfir á menntagatt.is Snillingarnir Nigel Short og Hjörvar Steinn mætast í MótX-einvíginu Hjörvar Steinn Grétarsson er yngsti stórmeistari Íslands í skák. Goðsögnin Nigel Short og Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti stórmeistari Íslands, mætast í MótX-einvíginu í Salnum í Kópavogi, helgina 21.-22. maí. Skák- félagið Hrókurinn skipuleggur þenn- an stórviðburð í íslensku skáklífi, og má búast við mjög skemmtilegu einvígi, en báðir meistararnir eru þekktir fyrir frumlegan stíl og snill- dartilþrif á skákborðinu. Aðgangur að einvíginu er ókeypis og eru Kópavogsbúar á öllum aldri hvattir til að mæta og fylgjast með sögulegri viðureign. Tefldi við Kasparov um heimsmeistaratitilinn Nigel Short fæddist 1965 og var undrabarn í skák. Fjórtan ára gamall varð hann yngsti alþjóðameistari Laugardagur 21. maí Kl. 14: Setningarathöfn og 1. skák. Kl. 15: 2. skák. Kl. 16: 3. skák. Sunnudagur 22. maí Kl. 14: 4. skák. Kl. 15: 5. skák. Kl. 16: 6. skák og verðlauna- afhending. Nánari upplýsingar veitir Hrafn Jökulsson, sími: 695 0205. StórViðBurður í Skák í kópaVOgi sögunnar. Stórmeistari varð hann 19 ára og var þá yngstur allra í heimin- um sem báru þann eftirsótta titil. Short hefur unnið tugi alþjóðlegra skákmóta og verið í fremstu röð í áratugi. Íslendingar minnast sigurs hans á hinu gríðarlega sterka IBM- skákmóti í Reykjavík 1987 þar sem jöfrar á borð við Tal, Timman og Korchnoi voru meðal keppenda, auk bestu skákmanna Íslands.  Short vann sér rétt til að tefla um heims- meistaratitilinn við sjálfan Garry Kasparov árið 1993, en beið lægri hlut. Galdrastrákur úr Grafarvogi Hjörvar Steinn Grétarsson fæddist 1993 - árið sem Short glímdi við Kasparov um heimsmeistaratit- ilinn - og vakti kornungur mikla at- hygli fyrir hæfileika sína. Hann var lykilmaður í sigursælum skáksveit- um Rimaskóla, sem sópuðu til sín Íslands- og Norðurlandameistara- titlum í skólaskák.  Hjörvar náði fyrsta stórmeistara- áfanga sínum á Evrópumóti lands- liða í Porto Carras árið 2011, þar sem hann lagði m.a. snillinginn Alexei Shirov í glæsilegri sóknarskák. Hann tryggði sér svo stórmeistaratitilinn á EM-taflfélaga á Rhodos 2013. Hann er nú næststigahæsti skák- maður Íslands með 2580 stig. Hjör- var Steinn náði besta árangri íslensku landsliðsmannanna á Evrópumóti landsliða í Laugardals- höll sl. haust, og er til alls líklegur gegn Short, þótt enski meistarinn skarti nú 2671 skákstigi. Spennandi og skemmtilegt einvígi framundan Nigel Short og Hjörvar Steinn munu tefla sex atskákir í MótX-einvígu í Salnum. Umhugsunartími er 25 mínútur fyrir hvorn keppanda. Það er mun styttri tími en í hefðbundn- um kappskákum, og því mun skemmtilegri fyrir áhorfendur, enda má búast við tímahraki með tilheyrandi fjöri. Einvígið hefst laugardaginn 21. maí klukkan 14 og mun Theódóra S. Þorsteinsdótt- ir leika fyrsta leikinn. Þrjár skákir verða tefldar á laugardaginn og þrjár á sunnudeginum. Auk MótX og Hróksins taka Kópa- vogsbær, Reykjavík Residence Hotel, Heimilistæki, Edda útgáfa og skák- deild Breiðabliks þátt í þessari skemmtilegu skákhátíð. Skáklífið í Kópavogi hefur blómst- rað að undanförnu og sífellt fleiri grunnskólar láta að sér kveða. Þá er mikill kraftur í skákdeild Breiða- bliks undir forystu Halldórs Grétars Einarssonar. Framtíðin í skáklífi Kópavogs er því björt og MótX-ein- vígið er ekki síst hugsað til þess að gefa ungum skákáhugamönnum í Kópavogi kost á að sjá og upplifa stórviðburð á skáksviðinu. Dagskrá MótX- einvígisins í Salnum: MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI OG MATVÆLASKÓLINN FERÐAMÁLASKÓLINN LEIÐSÖGUSKÓLINN Upplýsingar í síma 594 4000 Stutt, hagnýtt starfsnám HEILSA OG MATUR MATSVEINN – MATARTÆKNIR

x

Kópavogsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.