Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Blaðsíða 6
Kópavogsblaðið6 Föstudagur 20. maí 2016
Tónsalir er rytmískur tónlistarskóli
þar sem leitast er við að viðhalda
gleðinni í hljóðfæranáminu.
Bæjarlind 12. Sími 534-3700. www.tonsalir.is
...BARA GAMAN...
Nú er opið fyrir umsóknir í eftirfarandi tónlistarnám:
* Gítarnám
* Píanónám
* Trommunám
* Rafbassanám
* Söngnám
Upplýsingar og innritun á
www.tonsalir.is
Skemmtilegt tónlistarnám
Formaður Siglingafélagsins
Ýmis: „Ekki andvíg brú yfir
Fossvog.“
Brúin
Sigríður Ólafsdóttir, formaður Siglingafélagsins Ýmis, segir að fyrirhuguð brú á milli Fossvogs
og Kársness verði mikil samgöngu-
bót sem geri Kársnes ennþá meira
aðlaðandi útivistar- og athafna-
svæði. Hún segist ekki vera andvíg
þeirri framkvæmd og sjái mikil tæki-
færi fólgin í breyttum áherslum í
nýtingu vestasta hluta Kársnesins,
þ.e. Kópavogshafnar og nærum-
hverfi. Sú uppbygging muni styðja
við vöxt og uppbygginu skútusiglinga
og annarrar haftengdrar starfsemi.
„Í dag er mjög þrengt að siglinga-
félaginu Ými með landfyllingum og
nálægri byggð. Fyrirhuguð brú er í
raun síðasti reknaglinn í kistu skútu-
siglinga inni í Fossvogi. En jafnframt
er ljóst að ný tækifæri, sem grillir í
með nýjum hugmyndum um skipu-
lag vestasta hluta Kársnessins, ákaf-
lega heillandi fyrir siglinga- og skútu-
fólk,“ segir Sigríður og ítrekar að hún
sé að lýsa eigin skoðun en ekki fél-
agsins. „Mögleikar vestasta hluta
Kársnessins til að verða miðstöð ný-
sköpunar, atvinnuuppbyggingar og
jafnvel rannsókna á haftengdum
málefnum, ásamt því að bjóða upp
á aðstöðu fyrir sjósport af öllu tagi,
eru miklir. Sérstaklega þegar horft
er til þess að Reykjavíkurhöfn og
fleiri hafnir á höfuðborgarsvæðinu
eru yfirfullar og hægt er að móta
Kópavogshöfn á þann máta að úr
verði svokölluð yndishöfn“ segir
Sigríður.
Nú standa yfir miklar framkvæmd-
ir á landfyllingu vestan megin við
Siglingafélagið þar sem eiga að rísa
fjölbýlishús og bílastæði. Sigríður
segir þessar framkvæmdir, auk
náttúruskilyrða, hafi þau áhrif að
höfn siglingafélagsins grynnki til
muna. Nú sé eingöngu hægt að
koma þar fyrir kænum, litlum
seglskútum og kajökum. „Um má
kenna setburði sem kemur frá
landfyllingunni. Búið er að flytja
mikið magn af jarðvegsefni til fram-
kvæmdanna sem hefur mikil áhrif
innar í firðinum. Náttúrufar og um-
hverfi í voginum hefur breyst mjög
mikið á síðustu árum, og í raun
alveg frá því farið var að gera land-
fyllingar vestast á Kársnesi fyrir um
30 árum,“ segir Sigríður og bætir því
við að hásjávað verði að vera til að
meðalstórar skútur komist inn í
höfnina hjá Siglingafélaginu.
„Það hefur þrengt mjög að okkur
hér síðustu misseri og í dag hentar
Fossvogurinn bara litlum kænum.
Einu sinni var hægt að hvolfa
kænum í voginum en það er varla
hægt lengur á mörgum stöðum
vegna grynninga,“ segir Sigríður
„Siglingafélagið á erfitt með að byggja
starfsemi sína einungis á litlum
eins eða tveggja manna bátum.
Þegar við missum kjölbátana,vegna
þrengsla og grynninga, þá má segja
að botninn sé dottinn úr starf-
seminni. Skútumenningin er nú svo
gott sem farin héðan,“ segir Sigríður
og bætir því við að kostnaður
við dúpkunarframkvæmdir hlaupi
á milljónum.
Húsakynni Ýmis voru vígð árið
2009 en Siglingafélagið er með
rekstarleigusamning við Kópavogs-
bæ sem á mannvirkin. Sigríður segir
félagsaðstaðstöðuna með veislusal
sé til fyrirmyndar en mikið vanti upp
á aðstöðu fyrir bátana. Illa nýttar
skemmur við Kópavogshöfn væri
það sem myndi auka aðdráttarafl
Siglingafélagsins til muna.
Voru það þá mistök að byggja upp
aðstöðu fyrir Ými á Kársnesi, með
ærnum tilkostnaði?
„Staðsetningin hér Fossvogsmegin á
Kársnesinu er ef til barn síns tíma.
Þá voru uppi áform um að reisa stór-
skipahöfn við Kópavogshöfn og það
þótti ekki fara saman að vera með
barnastarf og stór skip. Að byggja
upp núverandi aðstöðu fyrir Ými
var því lendingin á þeim tíma. Mín
skoðun er sú að félagið eigi miklu
frekar að vera við Kópavogshöfn. Þar
eru nú fyrir; HSSK, Smábátafélagið
Kvikan, fyrirtækið Rafnar sem smíðar
báta, bátaþjónustufyrirtæki og fleiri
haftengd starfsemi sem styður hvort
við annað. Hugmyndir hafa verið
viðraðar um að þarna verði tölu-
verð starfsemi tengd sportveiði,
ferðamennsku, verslun og þjónustu.
Það væri hægt að búa til þekkingar-
sjómiðstöð á Kársnesi í samstarfi
við eftirlits-, þekkingar- og rannsók-
narstofnanir. Að mínu viti þá er það
augljóst að Kópavogshöfn getur
tekið við þeirri starfsemi sem Reykja-
víkurhöfn getur ekki lengur sinnt
og jafnvel boðið miklu betri að-
stöðu og þjónustu. Siglingar er fjöl-
skyldusport og það skiptir máli
að við horfum á þær sem menn-
ingartengda dægradvöl sem tengist
náttúrunni. Við erum með allt stoð-
kerfi til staðar. Þarna eru mörg tæki-
færi til vaxtar.“
Hvað með sjólag fyrir utan Kópa-
vogshöfn. Er það ekki hættulegt
fyrir ungt og óreynt siglingafólk?
„Alls ekki. Sjólag þar er ekkert erfið-
ara en á flestum sambærilegum stöð-
um í heiminum þar sem siglinga-
félög eru starfrækt. Það þarf ekki að
æfa siglingar í afluktum og þröng-
um firði eins Fossvogurinn er. Í raun
er það frekar neikvætt í huga siglinga-
fólks. Innan hafnarinnar er einnig
mjög fínt svæði þar sem yngsta fólkið
getur æft sig.“
Sigríður Ólafsdóttir formaður Siglingafélagsins Ýmis.
Fyrirhuguð brú yfir Fossvog.