Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Qupperneq 6

Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Qupperneq 6
Kópavogsblaðið6 Föstudagur 20. maí 2016 Tónsalir er rytmískur tónlistarskóli þar sem leitast er við að viðhalda gleðinni í hljóðfæranáminu. Bæjarlind 12. Sími 534-3700. www.tonsalir.is ...BARA GAMAN... Nú er opið fyrir umsóknir í eftirfarandi tónlistarnám: * Gítarnám * Píanónám * Trommunám * Rafbassanám * Söngnám Upplýsingar og innritun á www.tonsalir.is Skemmtilegt tónlistarnám Formaður Siglingafélagsins Ýmis: „Ekki andvíg brú yfir Fossvog.“ Brúin Sigríður Ólafsdóttir, formaður Siglingafélagsins Ýmis, segir að fyrirhuguð brú á milli Fossvogs og Kársness verði mikil samgöngu- bót sem geri Kársnes ennþá meira aðlaðandi útivistar- og athafna- svæði. Hún segist ekki vera andvíg þeirri framkvæmd og sjái mikil tæki- færi fólgin í breyttum áherslum í nýtingu vestasta hluta Kársnesins, þ.e. Kópavogshafnar og nærum- hverfi. Sú uppbygging muni styðja við vöxt og uppbygginu skútusiglinga og annarrar haftengdrar starfsemi.   „Í dag er mjög þrengt að siglinga- félaginu Ými með landfyllingum og nálægri byggð. Fyrirhuguð brú er í raun síðasti reknaglinn í kistu skútu- siglinga inni í Fossvogi.  En jafnframt er ljóst að ný tækifæri, sem grillir í með nýjum hugmyndum um skipu- lag vestasta hluta Kársnessins, ákaf- lega heillandi fyrir siglinga- og skútu- fólk,“ segir Sigríður og ítrekar að hún sé að lýsa eigin skoðun en ekki fél- agsins. „Mögleikar vestasta hluta Kársnessins til að verða miðstöð ný- sköpunar, atvinnuuppbyggingar og jafnvel rannsókna á haftengdum málefnum, ásamt því að bjóða upp á aðstöðu fyrir sjósport af öllu tagi, eru miklir. Sérstaklega þegar horft er til þess að Reykjavíkurhöfn og fleiri hafnir á höfuðborgarsvæðinu eru yfirfullar og hægt er að móta Kópavogshöfn á þann máta að úr verði svokölluð yndishöfn“ segir Sigríður. Nú standa yfir miklar framkvæmd- ir á landfyllingu vestan megin við Siglingafélagið þar sem eiga að rísa fjölbýlishús og bílastæði. Sigríður segir þessar framkvæmdir, auk náttúruskilyrða, hafi þau áhrif að höfn siglingafélagsins grynnki til muna. Nú sé eingöngu hægt að koma þar fyrir kænum, litlum seglskútum og kajökum. „Um má kenna setburði sem kemur frá landfyllingunni. Búið er að flytja mikið magn af jarðvegsefni til fram- kvæmdanna sem hefur mikil áhrif innar í firðinum. Náttúrufar og um- hverfi í voginum hefur breyst mjög mikið á síðustu árum, og í raun alveg frá því farið var að gera land- fyllingar vestast á Kársnesi fyrir um 30 árum,“ segir Sigríður og bætir því við að hásjávað verði að vera til að meðalstórar skútur komist inn í höfnina hjá Siglingafélaginu. „Það hefur þrengt mjög að okkur hér síðustu misseri og í dag hentar Fossvogurinn bara litlum kænum. Einu sinni var hægt að hvolfa kænum í voginum en það er varla hægt lengur á mörgum stöðum vegna grynninga,“ segir Sigríður „Siglingafélagið á erfitt með að byggja starfsemi sína einungis á litlum eins eða tveggja manna bátum. Þegar við missum kjölbátana,vegna þrengsla og grynninga, þá má segja að botninn sé dottinn úr starf- seminni. Skútumenningin er nú svo gott sem farin héðan,“ segir Sigríður og bætir því við að kostnaður við dúpkunarframkvæmdir hlaupi á milljónum. Húsakynni Ýmis voru vígð árið 2009 en Siglingafélagið er með rekstarleigusamning við Kópavogs- bæ sem á mannvirkin. Sigríður segir félagsaðstaðstöðuna með veislusal sé til fyrirmyndar en mikið vanti upp á aðstöðu fyrir bátana. Illa nýttar skemmur við Kópavogshöfn væri það sem myndi auka aðdráttarafl Siglingafélagsins til muna.    Voru það þá mistök að byggja upp aðstöðu fyrir Ými á Kársnesi, með ærnum tilkostnaði? „Staðsetningin hér Fossvogsmegin á Kársnesinu er ef til barn síns tíma. Þá voru uppi áform um að reisa stór- skipahöfn við Kópavogshöfn og það þótti ekki fara saman að vera með barnastarf og stór skip. Að byggja upp núverandi aðstöðu fyrir Ými var því lendingin á þeim tíma. Mín skoðun er sú að félagið eigi miklu frekar að vera við Kópavogshöfn. Þar eru nú fyrir; HSSK, Smábátafélagið Kvikan, fyrirtækið Rafnar sem smíðar báta, bátaþjónustufyrirtæki og fleiri haftengd starfsemi sem styður hvort við annað. Hugmyndir hafa verið viðraðar um að þarna verði tölu- verð starfsemi tengd sportveiði, ferðamennsku, verslun og þjónustu. Það væri hægt að búa til þekkingar- sjómiðstöð á Kársnesi í samstarfi við eftirlits-, þekkingar- og rannsók- narstofnanir.  Að mínu viti þá er það augljóst að Kópavogshöfn getur tekið við þeirri starfsemi sem Reykja- víkurhöfn getur ekki lengur sinnt og jafnvel boðið miklu betri að- stöðu og þjónustu. Siglingar er fjöl- skyldusport og það skiptir máli að við horfum á þær sem menn- ingartengda dægradvöl sem tengist náttúrunni. Við erum með allt stoð- kerfi til staðar. Þarna eru mörg tæki- færi til vaxtar.“   Hvað með sjólag fyrir utan Kópa- vogshöfn. Er það ekki hættulegt fyrir ungt og óreynt siglingafólk?  „Alls ekki. Sjólag þar er ekkert erfið- ara en á flestum sambærilegum stöð- um í heiminum þar sem siglinga- félög eru starfrækt. Það þarf ekki að æfa siglingar í afluktum og þröng- um firði eins Fossvogurinn er. Í raun er það frekar neikvætt í huga siglinga- fólks. Innan hafnarinnar er einnig mjög fínt svæði þar sem yngsta fólkið getur æft sig.“ Sigríður Ólafsdóttir formaður Siglingafélagsins Ýmis. Fyrirhuguð brú yfir Fossvog.

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.