Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Qupperneq 8
Kópavogsblaðið8 Föstudagur 20. maí 2016
Sunnudaginn 22. maí kl. 14:00, mun Skólakór Kársness halda upp á 40 ára starfsafmæli sitt
með tónleikum í Eldborgarsalnum
í Hörpu. Þar koma fram allir kórar
skólans; litli kór Kársnesskóla,
stúlknakór Kársnesskóla, drengjakór
Kársnesskóla og Skólakór Kársness,
rúmlega 300 börn og unglingar frá
3. bekk upp í 10. bekk. Tónleikunum
lýkur með samsöng allra kóranna
þar sem tónleikagestum gefst færi
á að taka undir. Efnisskráin er
viðamikil og fjölbreytt og á henni
eru mörg þeirra laga sem kórbörn
hafa sungið inn í hjörtu landsmanna
síðustu 40 ár. Sérstakir gestir á
afmælistónleikunum eru gömlu
kórfélagarnir úr Skólakór Kárs-
ness, stórsöngvarinn Gissur Páll
Gissurarson og söngstjarnan Emil-
Gissur Páll man vel eftir fyrstu æf-ingunni með skólakór Kárs-
ness. „Ég hef verið um tíu ára
aldurinn og mætti á æfingu hjá
Tótu um haustið. Hún hreif alla
krakkana með sér með eldmóði og
áhuga. Hún var dugleg að pikka út
þá sem höfðu hreinan tón og góð
tóneyru. Áður en ég vissi var hún
farin að hringja heim til mín og
sækja mig og fleiri krakka því nú
áttum við að fara að koma fram
og syngja á Hótel Loftleiðum.
Svo voru allt í einu fleiri æfingar
og tónleikar. Hún og Marteinn,
heitinn, maður hennar voru
óþreytandi í alls konar snatti og
stússi í kringum okkur. Þau hikuðu
ekki að fara með 80 börn í æfinga-
búðir í sveit. Það var ekkert vesen
og bara gaman. Söngurinn kom
bara eðlilega og náttúrulega í al-
gjöru flæði. Hún fræddi og smitaði
frá sér og í minningunni var þetta
mjög jákvætt og gefandi. Allt í einu
var ég farinn að syngja einsöng
því Tóta sagði mér að gera það og
það var þá bara ekkert mál og bara
gaman. Auðvitað er ég gera það
sem ég er að gera í dag af því ég
Emilíana Torrini söng með Skóla-kór Kársness á sínum yngri árum.
Hún segist líklega ekki hafa orðið
söngkona í dag ef hún hefði aldrei
gengið í skólakórinn. Þjálfunin hafi
verið mikil, skemmtunin talsverð og
einnig æfing í söng, tónfræði, skyn-
jun og framkomu. „Ég glímdi við
feimni á fyrstu árum grunnskólans
og þorði til dæmis ekki að taka þátt
í skólaleikritum þótt mig langaði
mikið til þess,“ segir Emilíana.
„Þegar ég byrjaði í kórnum breyttist
eitthvað innra með mér. Ég vandist
glímunni við sviðsskrekkinn og að
koma fram varð einhvern veginn
eðlilegt og sjálfsagt. Tóta er einhver
mesti fyrirmyndakennari sem ég
hef hitt og ég á henni margt að
þakka. Ég man vel eftir tónlistar-
tímum hjá henni í Kársnesskóla
þegar hún var að reyna að kenna
okkur að borða hollt og setti ham-
borgara og franskar í blandara og
spurði hvernig okkur litist á rusl-
fæðið,“ segir Emilíana og hlær að
minningunni. „Ég man að ég tengd-
ist tímunum hennar rosalega vel.
Þegar ég lít í kringum mig finnst
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söng-kona í Madrid og listrænn stjórn-
andi tónlistarhátíðarinnar á Kirkju-
bæjarklaustri, segist þakklát fyrir tíma
sinn í Skólakór Kársness. „Ég er sann-
færð um það að mér hefði aldrei dott-
ið í hug að verða atvinnusöngkona,
ef ég hefði ekki fengið það dýrmæta
tækifæri sem ég fékk til þess að syn-
gja í Skólakór Kársness. Þar lærði ég,
ókeypis, að leita að hreinum tóni,
hlusta, styðja röddina, móta hendin-
Emilíana Torrini
og Gissur Páll
syngja með Skólakór Kársness á afmælistónleikum
íana Torrini en þau syngja nokkur
lög með kórunum. Fyrrum kórfélag-
ar eru sérstaklega hvattir til að koma
á tónleikana og rifja upp gömul
uppáhaldslög og gamlar minningar.
Miðasala á tónleikana er á tix.is.
Skólakór Kársness er landsþekktur
og hefur lengi verið atkvæðamikill
í íslensku tónlistarlífi og iðulega er
leitað til hans þegar mikið liggur við.
Orðspor kórsins hefur einnig borist
víða um lönd og hann hefur unnið
til ótal verðlauna og viðurkenninga
innanlands sem utan. Barnakórarnir
í Kársnesskóla hafa líka gegnt þýð-
ingarmiklu samfélagslegu hlutverki
í Kópavogi og sungið við ótal skírnir,
fermingar, giftingar, jarðarfarir,
merkisafmæli og aðrar hátíðlegar
athafnir sem snerta bæjarbúa, jafnt
unga sem aldna. Meginmarkmið
kórsins er að gefa öllum nemend-
um Kársnesskóla kost á að taka þátt
í öflugu kórstarfi sem einkennist af
sönggleði, samkennd og samvinnu.
Föstudagsmorguninn 20 maí kl. 8:30
- 10:00 er velunnurum kórsins, for-
eldrum og gömlum kórfélögum
boðið í afmæliskaffi og morgunsöng
í Kársnesskóla við Vallargerði. Þar
verður hægt að skoða sýningu sem
nemendur skólans hafa undirbúið í
tilefni afmælisins. Einnig verða sýn-
dar gamlar upptökur úr sjónvarpi og
frá tónleikum og kórferðalögum, en
Skólakór Kársness hefur ferðast víða
og tekið þátt í mörgum kórahátíðum
og menningarviðburðum víðsvegar
í Evrópu, Kanada og Japan.
Stjórnendur eru Þórunn Björnsdóttir
og Álfheiður Björgvinsdóttir.
var í skólakór Kárnsess. Þarna var
grunnurinn lagður að svo mörgu
hjá mér.“ Gissur segir eitt atvik sér-
staklega minnistætt standa upp úr
frá þessum árum.
„Það var í tónmenntatíma hjá
Tótu. Þegar við mættum var hún
nýbúin að poppa og setja í stóra
skál. Ilmurinn af nýju poppi var út
um alla stofu. Þegar við ætluðum
að fá okkur sagði hún að poppið
væri fyrir okkur í næstu viku. Við
mættum borða það allt þá. Hún
ætlaði að geyma það inni í skáp.
Þetta fannst okkur mjög skrítið og
ósanngjarnt. En þá sagði hún að
sumir geta alveg borðað viku-
gamalt popp og þótt það mjög gott.
Og sumir vilja bara borða nýtt
popp og það er líka allt í lagi. Svo
tengdi hún þetta við klassíska tón-
list og popptónlist og gerði báðum
þannig jafn hátt undir höfði. Hún
var ekkert að taka niður dægurtón-
list eða gera klassískri tónlist eitt-
hvað hærra undir höfði. Bara, að
við áttuðum okkur á muninum.
Þarna kom hún að kjarna málsins.
Við skildum þetta mjög auðveld-
lega. Ég gleymi þessu aldrei.“
afmæliStónlEikar
gar í tónlist, syngja mig saman við
aðra, gefa og taka, fylla upp í hljóm
með því að syngja miðröddina, og
syngja einsöng,allt í því yndislega
jákvæða, skemmtilega og örugga
umhverfi sem Þórunn skapaði.
Hún var eins og aukamamma,
sem gaf okkur sönggleði, pláss til
að uppgötva hæfileika okkar og
sjálfsöryggi til þess að flytja tónlist.“
mér eins og að tónlistarfólk sem
lagði stund á tónlist á sínum yngri
árum, eins og til dæmis í kór, skynji
tónlist á annan hátt en flestir aðrir.
Það eru margir tímar sem fara þá í
æfingar og að koma fram og syngja
svo auðvitað hefur þetta jákvæð og
mótandi áhrif,“ segir Emilíana og
nefnir að þar hafi ástríða kennara
mikið að segja. „Tóta kenndi að þú
getur verið mjög góður söngvari en
ef engin tilfinningaleg innistaða er
á bak við það þá heyrist það strax.
Hún kenndi okkur að hugsa vel um
textana og hvað lægi á bak við hvað
þeir þýddu. Ég fór snemma að lesa
ljóð og hafa áhuga á tjáningu með
orðum. Texti, laglína og flutning-
ur er hin heilaga þrenning. Tóta
hjálpaði mér mikið með þetta og
auðvitað var líka mikill stuðning-
ur heima fyrir hjá mömmu. Síðar
tóku þær Þuríður Pálsdóttir við og
Jórunn Viðar þegar ég lærði hjá
þeim óperusöng.“ Aðspurð segist
Emilíana hlakka til að koma fram
með Skólakór Kársness á ný og
hitta gamla vini og kunningja.
Gissur Páll Gissurarson, tenór.
Emilíana Torrini, söngkona.
1977 árgangurinn í Kársnesskóla hefur látið mikið að sér kveða í menningar- og listalífi landsins. Í árganginum má finna,
meðal annarra; Emilíönu Torrini, söngkonu, Erp Eyvindarsson, rappara, Gissur Pál Gissurarson, óperusöngvara, Guðrúnu
Jóhönnu Ólafsdóttur, söngkonu á Spáni og Grím Hákonarson, kvikmyndagerðamann. Á myndinni hér að ofan, sem tekin er
árið 1986, má sjá þau Gissur Pál, Emilíönu og Guðrúnu Jóhönnu, fremst í horninu til hægri í hnapp en þarna eru þau
nýbyrjuð að búa sig undir frækinn söngferil eins og mörg önnur kórbörn úr Skólakór Kársness. Einnig má sjá Grím Hákonar-
son, kvikmyndagerðamann í fremstu röð. Lengst til hægri grillir í Þóru Marteinsdóttur, tónskáld.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
söngkona.