Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Qupperneq 9
Kópavogsblaðið 9Föstudagur 20. maí 2016
Á neðri hæð Gerðarsafns opn-aði í haust skemmtilegt kaffihús sem nefnist Garð-
skálinn. Þar er hægt að njóta úrval
girnilegra veitinga undir ljúfum
jazz tónum. Vönduð matreiðsla úr
fyrsta flokks hráefni lýsir best veit-
ingunum.
Það eru ungu hjónin Ægir Friðriks-
son og Íris Ágústsdóttir sem tóku
að sér rekstur Garðskálans í haust
og sinna rekstrinum af mikilli
ástríðu. Ægir er matreiðslumaður
sem hefur starfað m.a. sem yfir-
kokkur á Icelandair Hotel Natura,
starfað erlendis en einnig starfað
í mörg ár á Grillinu. Íris er innan-
hússhönnuður, mentuð í Barce-
lona og hefur starfað sem slíkur á
Íslandi. Það hefur alltaf blundað í
þeim að opna sinn eigin veitinga-
stað, að fá tækifæri að gera allt eftir
sínu höfði. Þau voru ekki lengi að
hugsa sig um þegar tækifæri gafst að
reka kaffihús í Gerðarsafni. „Þegar
við komum inn í rýmið í fyrsta skipti
sáum við strax möguleikana og feng-
um bæði tilfinningu um að þetta
væri „okkar staður.“ Svo vorum við
bara svo heppin að allt gekk upp og
hefur samstarfið við Menningar-
húsin og Gerðarsafn verið yndislegt,“
segir Íris með bros á vör. „Okkar hug-
myndafræði er að vera með góðan
mat og kökur, gerðar frá grunni með
umhyggju og ást. Við berum virðingu
fyrir hráefninu og viðskiptavinum
okkar og það er að skila sér, enda er
fastakúnna hópurinn okkar sístækk-
andi.“ Glerbyggingin sem kaffihúsið
er í minnir sérstaklega á garðskála og
þaðan kom nafnið. „Það hefur verið
mjög huggulegt hjá okkur í vetur, að
getað setið inni en verið samt „úti“.
Nú erum við að fá útihúsgögn þann-
ig að það verður líka hægt að sitja
úti í sumar. Við verðum samt með
teppi fyrir kaldari dagana ef einhver
vill. Í sumar er svo á döfinni að bjóða
upp á „picnic“ körfur fyrir viðskipta-
vini sem þeir geta tekið með sér út
á túnið og notið veðursins og veitin-
ganna okkar.“
Opið er í Garðskálanum
þri-sun 11:00-17:00.
Girnilegar veitingar í
Garðskála Gerðarsafns
kynning