Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Síða 10

Kópavogsblaðið - 20.05.2016, Síða 10
Kópavogsblaðið10 Föstudagur 20. maí 2016 DanS Dönsuðu í SunnuhlíðLágmynd af Valda vallarverði afhjúpuð Ljóðað í Gjábakka Sóley Sara 16 ára og Kristófer Ágúst 17 ára sem dansa í landsliði Íslands komu og dönsuðu fyrir fólkið í Sunnuhlíð á dögunum. Vistmenn og aðstandendur höfðu gaman af. Gamlir vinir, kunningjar, samstarfsfélagar og ættingjar Valda heitins Vallar- varðar heiðruðu minningu hans í liðinni viku. Þær Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Þórdís Katla Sigurðardóttir, ungir leikmenn Breiðabliks afhjúpuðu lágmynd af Valda, og fórst það vel úr hendi. Gömlu kempurnar Willum Þór Þórs- son, Sigurjón Kristjánsson, Þorsteinn Geirsson og Ingvaldur Gústafsson létu sig ekki vanta. Heisi kom með „heilaga möl“ frá Vallargerðisvelli. Valdaklíkan svonefnda. Marteinn Sigurgeirsson lætur fátt fara fram hjá sér í bæjarlífinu og festi á filmu það sem fram fór á meðan Ingibjörg Hinriksdóttir flutti ræðu. Egill Úlfarsson dreifði appelsínum. Skólahljómsveit Kópavogs lék og spilaði. Glatt var á hjalla, bæði hjá „gömlum“ fótboltakempum sem og aðstandendum Valda og velunnurum þessa frábæra verkefnis. kópaVOgSVöllur Ljóðahópur Gjábakka verður með útgáfuteiti í Gjábakka vegna útkomu á nýjustu bók hópsins þann 25. maí kl. 20. Hópur- inn hefur starfað síðan árið 2001 og  er þetta 16. ljóðabókin sem ljóðskáldin senda frá sér. Skáldin árita bækurnar sé þess óskað. Allir eru velkomnir. „Snæland hefur verið að þróast í svipaða átt og Dairy Queen í Banda- ríkjunum, sem margir hafa mjög góða reynslu af,“ segir Pétur Smára- son, framkvæmdastjóri hjá Snæland sem áður var Snæland VIDEO „Árið 1997 byrjuðum við að leggja áherslu á grillmat og árið 2008 lækkuðum við verðið verulega og vorum rúm- lega helmingi ódýrari en aðrir. Við notum einungis úrvals hráefni frá SS og bjóðum upp á sér innfluttar franskar kartöflur ásamt því að með öllum máltíðum eru ískaldir drykkir frá Vífilfell í boði. Við höfum kapp- kostað að vera með ódýrar máltíðir en samt með besta mögulega hráefn- ið.“ Fyrir einungis 1.090 kr er hægt að skella í sig ostborgara, frönskum og ísköldu gosi frá Vífilfell. Snæland hefur upp á margt að bjóða eins og samlokur, báta og pítur en einnig er hægt að panta gómsætan beikon borgara eða lúxus borgara sem er með eggi og beikon. „Lúxusborga- rinn er mjög vinsæll á föstudögum,“ segir Pétur sem segir þann borgara vera í uppáhaldi hjá sér. Snæland – Ís – Grill kynning Verð á námskeið kr. 12.500.- 11. - 14. júní 2016 Tímasetning: 12:00 - 16:15 Hver æfing er 1klst og 15 mín. Þátttakendur: Börn fædd 2007 - 2002 Hópur 1 2007 - 2006 Hópur 2 2005 - 2002 Aðalþjálfarar: Stefán Logi Magnússon (FC Bayern Munchen, Nordsjælland, Lilleström, KR, Íslenska landsliðið) Valþór Hilmar Halldórsson Markmannsþjálfari yngri flokka KR 2009 - 2016 Staðsetning: Æfingasvæði KR í vesturbænum Hámark 5 markmenn á hvern þjálfara Takmarkaðu fjöldi er á námskeiðinu. Skráning og allar upplýsingar um námskeiðið fara í gegnum icekeeper1@gmail.com Eftirfarandi upplýsingar verða að koma fram í skráningunni: Fullt nafn iðkenda, fæðingarár og félagslið. Nafn ábyrgðarmanns, sími og netfang. Þið finnið okkur á Facebook.

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.